Morgunblaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 14. DAGUR ÁRSINS 2017 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Nafn stúlkunnar sem lést 2. Ráðalaus eftir sjálfsvíg 12 ára … 3. Ofbeldið stóð yfir í átta ár 4. Myndir af Subway-samlokum …  Sýning á verkum myndlistarkon- unnar Katrínar Matthíasdóttur verð- ur opnuð í anddyri Norræna hússins í dag kl. 15. Katrín sýnir annars vegar portrettmyndir af sonum sínum þremur og hins vegar myndir sem vísa til heimsvár, misskiptingar, mengunar og loftslagsbreytinga. Verkin eru áleitin og til þess falin að vekja áhorfandann til umhugsunar um sameiginlega ábyrgð okkar allra á framtíðinni, að því er segir á vef Norræna hússins. Portrett og heimsvá  Nýárstónleikar tónlistarhópsins Elektra Ensemble verða haldnir á morgun kl. 17 í Norðurljósum í Hörpu. Flutt verða lög úr söng- leikjum eftir Gers- hwin og Bernstein auk ástríðufullra tangóa. Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Gissur Páll Gissurarson syngja með hópnum. Söngleikjalög og ástríðufullir tangóar  Og aftur að nýárstónleikum því ný- árstónleikar fjölskyldunnar fara fram í Hömrum í Hofi á Akureyri á morgun kl. 14. Á þeim verða fluttar margar af perlum Strauss-feðga og dansaðir Vínarvalsar. Johann Strauss sjálfur mun hugsanlega mæta í eigin per- sónu. Tónleikarnir eru samstarfsverk- efni Töfrahurðar, Tónlistarfélags Ak- ureyrar, Dansskóla Önnu Breiðfjörð, Menningarfélags Akureyrar og 1862 Nordic Bistro og sögu- maður og leikari er Ásta Sig- hvats Ólafs- dóttir. Mætir Strauss? FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-15 m/s sunnan- og vestanlands eftir hádegi og snjó- koma, en slydda eða rigning við ströndina og hlánar. Dregur úr vindi í kvöld. Á sunnudag Sunnan hvassviðri eða stormur og vætusamt sunnan og vestan til, en hæg- ari og þurrt að mestu um landið norðaustanvert. Hiti 4 til 12 stig síðdegis. Snýst í suð- vestanátt með éljum vestan til á landinu um kvöldið og kólnar. „Mér finnst alveg vera innistæða fyrir sigri á móti Slóvenunum. Þeir eru með allt öðruvísi lið heldur en Spán- verjarnir og breiddin hjá þeim er ekki eins mikil og áður. Ef við náum að halda vörninni góðri allan tímann og náum að stoppa fyrstu línuna hjá þeim þá er mikið unnið,“ segir Ásgeir Örn Hallgrímsson um leik Íslands og Slóveníu á HM í Frakklandi í dag. »1 Innistæða fyrir sigri gegn Slóvenum í dag „Ég er ekki ánægður með þessa nýju reglu um auka- mann í sókn. Ég tel að hún strípi leikinn og geri hann einfaldari. Ég sé þegar merki þess,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Ís- landsmeistara Hauka í handknattleik karla, um skoðanir sínar á reglunni um sjöunda sóknarmanninn sem kom í handboltaregl- urnar á síðasta ári. »2-3 Aukamaðurinn í sókn ekki til bóta Tékkar hafa áhuga á að fá Adam Hauk Baumruk, leikmann Íslandsmeistara Hauka í handknattleik, í landslið sitt. Þeir hafa kannað hug hans til þess að gefa kost á sér í tékkneska landsliðið. Adam Haukur mun velta málinu al- varlega fyrir sér en hann hlaut ekki náð fyrir augum Geirs Sveins- sonar lands- liðsþjálfara þegar 28 manna hóp- urinn fyrir HM í Frakklandi var valinn í byrjun desember. »1 Tékkar vija fá Adam Hauk í sitt landslið Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Á bak við bláa hurð á gömlu gulu steinhúsi í Kristjánshöfn í Kaup- mannahöfn leynist einn vinsælasti og umtalaðasti veitingastaður borg- arinnar, Kadeau sem skartar Michel- instjörnu. Einn þeirra sem þar ráða ríkjum er hinn hálfíslenski Kristen Eyfjörð Pedersen. Sá sem hyggst sækja staðinn heim þarf að kynna sér staðsetninguna áð- ur, því að á húsinu er ekkert sem gef- ur til kynna að það hýsi einn besta veitingastað borgarinnar við sundið. Ekkert skilti og enginn matseðill í ramma framan á húsinu, eins og gjarnan er á veitingastöðum. Við dyrnar er lítill skjöldur sem á stendur Kadeau og þegar blaðamaður hringir dyrabjöllu kemur Kristen til dyra. Hann á íslenska móður og danskan föður, hann hefur starfað á Kadeau í tvö ár og gegnir þar stöðu sem á dönsku kallast „restaurantchef“, en í því felst að hann hefur umsjón með veitingasal staðarins og skipuleggur daglegan rekstur. Kristen er 26 ára, en er enginn nýgræðingur í veitinga- bransanum þrátt fyrir ungan aldur. „Ég hef unnið á veitingastöðum hálfa ævina, síðan ég var 13 ára. Ég byrjaði í uppvaski og hef þjónað og unnið ým- is störf á veitingastöðum meðfram námi. Það má líklega segja að ég þekki veitingastaðarekstur frá öllum sjónarhornum.“ Áhrif frá Borgundarhólmi Á Kadeau er eldaður matur undir áhrifum frá dönsku eyjunni Borgund- arhólmi, en eigendur staðarins, þeir Rasmus Kofoed, Nicolai Nørregaard og Magnus Høegh Kofoed, eru þaðan og að sögn Kristens ákváðu þeir að opna Kadeau í kjölfar velgengni veit- ingastaðar þeirra á Borgundarhólmi. Er hægt að tala um Borgundar- hólmseldhúsið eins og t.d. franska eldhúsið eða norræna eldhúsið? „Það held ég ekki,“ svarar Kristen. „Þetta er norrænn matur með tilteknum áherslum. Eyjan liggur austar en aðrir hlutar Danmerkur og þar vaxa jurtir og grænmetistegundir sem ekki er að finna annars staðar í land- inu.“ Eins og afar vel hannað heimili Fleira en maturinn á Kadeau hef- ur vakið athygli. Hönnun staðarins þykir einstök, talsvert hefur verið fjallað um hana í hönnunarblöðum og vel má taka undir það. Að ganga inn á staðinn er líkast því að ganga inn á afar vel hannað heimili þar sem ekk- ert hefur verið sparað í innréttingum og húsgögnum. Eldhúsið er opið og þar má fylgjast með matreiðslu og undirbúningi og þegar blaðamann ber að garði um hádegisbil er fjöldi matreiðslumanna að störfum við að undirbúa kvöldið. Veitingasalurinn er ekki stór, hann tekur um 30 gesti og er yfirleitt fullsetinn. Blaðamaður hefur orð á þessari heimilisstemningu við Kristen og hann tekur undir. „Það var útgangs- punkturinn í allri hönnuninni, segir hann. Margir gestanna segja að þeim líði eins og heima hjá sér eða eins og þeir séu í heimsókn hjá einhverjum. Það er það sem við viljum.“ En hvað finnst Kristen sjálfum skemmtilegast að elda? „Það er svo margt. Eiginlega allt úr fersku hrá- efni, það verður að vera mikið af grænmeti, gjarnan kál. Ég elska það. Og fiskur, hann verður að vera með.“ Kristen segir að íslenskt hráefni, m.a. söl og kúfskel, hafi verið notað á Kadeau. „Það passar virkilega vel inn í okkar áherslur,“ segir hann. Byrjaði 13 ára í uppvaskinu  Kristen vinnur á Michelinstað í Kaupmannahöfn Morgunblaðið/Anna Lilja Á Michelinstað Kristen Eyfjörð Pedersen hefur starfað í tvö ár á Kadeau. Hann hefur unnið hálfa ævina á veitingastöðum, síðan hann var 13 ára. Ljósmynd/Marie Louise Munkegaard Að störfum Innréttingar og hönnun á Kadeau hafa vakið athygli. Kadeu fékk Michelin-stjörnu árið 2013 og hefur fengið afar jákvæðar umsagnir á öll- um helstu veitingahúsavefsíðum og í mat- artímaritum, m.a. valdi danska dagblaðið Politiken Kadeau besta veitingastað Kaupmannahafnar þrjú ár í röð. En hvað er á boðstólum á Kadeau? Boðið er upp á 15 rétta matseðil, þar sem m.a. má finna skelfisk, lax, humar, svínakjöt og önd. Mikil áhersla er á græn- meti og ferskar jurtir og maturinn er oft bragðbættur á nýstárlegan og framandi hátt, eins og t.d. með stráum, þangi og furunálum. Hvað er í matinn? STRÁ, ÞANG, FURUNÁLAR OG NÝSTÁRLEG NÁLGUN Ljósmynd/ M.L. Munkegaard

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.