Morgunblaðið - 14.01.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
Í orðmargri stefnuyfirlýsinguríkisstjórnarinnar er ekki vikið
orði að fjölmiðlum. Vonandi stafar
það ekki af því að ríkisstjórnin
hafi ekki skilning á þýðingu fjöl-
miðla eða á stöðu þeirra hér á
landi og annars staðar í veröld-
inni.
Fjöl-miðlar
hafa á síð-
ustu árum
átt erfitt
uppdráttar
víða um heim og hafa þurft að
glíma við hraðar tæknibreytingar
og samkeppni frá samfélags-
miðlum, leitarvélum og fleiri fyr-
irbærum sem nýta sér efni fjöl-
miðlanna og hafa um leið tekjur af
efni þeirra.
Þessi fyrirbæri geta aldrei kom-ið í staðinn fyrir fjölmiðla. En
þau hafa gengið af mörgum þeirra
dauðum og gengið nærri öðrum.
Og þau búa við allt önnur skil-yrði en fjölmiðlar. Fyrirtæki
á borð við Facebook og Google
keppa við fjölmiðla, þar með talið
íslenska miðla, um tekjur, en þau
greiða til dæmis enga skatta hér á
landi.
Íslenskir fjölmiðlar máttu hinsvegar þola skattahækkun á síð-
asta kjörtímabili.
Við þetta bætist að frjálsir fjöl-miðlar á Íslandi þurfa að
keppa við ríkisfjölmiðil, sem þeir
þurfa meira að segja sjálfir að
hjálpa til við að halda uppi.
Umræðan á Íslandi, og íslensk-an, þurfa á frjálsum fjöl-
miðlum að halda. Það getur ekki
dregist lengur að stjórnvöld sýni
því skilning.
Frjálsir fjölmiðlar
þurfa sanngirni
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 13.1., kl. 18.00
Reykjavík -5 skýjað
Bolungarvík -7 skýjað
Akureyri -11 léttskýjað
Nuuk -5 skýjað
Þórshöfn -1 heiðskírt
Ósló -4 léttskýjað
Kaupmannahöfn 0 þoka
Stokkhólmur 0 alskýjað
Helsinki 1 snjókoma
Lúxemborg -1 léttskýjað
Brussel 1 rigning
Dublin 1 léttskýjað
Glasgow 2 heiðskírt
London 5 rigning
París 3 rigning
Amsterdam 2 slydduél
Hamborg 1 heiðskírt
Berlín 2 snjókoma
Vín 4 skýjað
Moskva -5 alskýjað
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 9 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 10 rigning
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -28 heiðskírt
Montreal -5 léttskýjað
New York 7 heiðskírt
Chicago -6 heiðskírt
Orlando 22 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:57 16:18
ÍSAFJÖRÐUR 11:29 15:56
SIGLUFJÖRÐUR 11:13 15:38
DJÚPIVOGUR 10:33 15:41
Fararstjóri: Eyrún Ingadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Suður-Afríka
Í þessari spennandi ferð um Suður-Afríku fara saman
framandi áfangastaðir, fjölbreytt landslag og milt veðurfar.
Við heimsækjum Jóhannesarborg, förum í tveggja daga
safarí í Krugerþjóðgarðinum innan um ljón, nashyrninga og
fíla, heimsækjum Höfðaborg og verðum vitni að því hvernig
hið hlýja Indlandshaf og kalda Atlantshafið mætast við
Góðrarvonarhöfða. Einstök ferð til að kynnast töfrum Afríku!
Allir velkomnir á kynningarfund 17. janúar kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
sp
ör
eh
f.
6. - 20. október
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Kumbaravogur er ekki á vegum
sveitarfélagsins og við komum ekki
að uppbyggingu hjúkrunarheimila á
svæðinu,“ segir Ásta Stefánsdóttir,
oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í bæj-
arstjórn og fram-
kvæmdastjóri
sveitarfélagsins,
spurð um ítrekun
stjórnar Félags
eldri borgara á
Selfossi til fram-
kvæmdastjóra og
bæjarstjórnar
Árborgar um að
hefja tafarlaust
viðræður við heilbrigðisyfirvöld um
að Kumbaravogi verði ekki lokað
fyrr en væntanlegt hjúkrunarheimili
hefur verið opnað á Selfossi. Kumb-
aravogi átti að loka í mars á þessu ári
en nýtt hjúkrunarheimili verður ekki
opnað í sveitarfélaginu fyrr en árið
2019.
„Ég hef ekki áhyggjur af því að
íbúum Kumbaravogs verði ekki
fundið annað húsnæði. Hins vegar
óttast ég að bið þeirra sem fyrir eru
á biðlista lengist þegar íbúum
Kumbaravogs er komið fyrir í öðru
lausu úrræði,“ segir Ásta og bendir
jafnframt á að fyrirhugað hjúkrun-
arheimili sem tekur til starfa á öðr-
um ársfjórðungi 2019 sé eingöngu 50
rýma hjúkrunarheimili. Það þarf að
hennar sögn að vera stærra.
Á fundi bæjarráðs í síðustu viku
óskaði bæjarráð eftir því að bygg-
ingu nýja heimilisins yrði flýtt sem
kostur er og ítrekaði að fulltrúar
sveitarfélagsins hefðu lagt áherslu á
að stækka þyrfti heimilið.
Þörf á hjúkrunarheimilum
Í bréfi sem Páll Matthíasson, for-
stjóri Landspítalans, sendi starfs-
fólki sínu vísar hann sérstaklega til
skorts á hjúkrunarheimilum.
„Eins og flestum er kunnugt er
mikið álag á spítalanum. Aðstreymi
sjúklinga er mikið og hefðbundin
tregða við útskrift þeirra sem búnir
eru að fá þjónustu á Landspítala og
þurfa stuðning annars staðar. Í dag
eru 95 einstaklingar á spítalanum
(að Vífilsstöðum meðtöldum) sem
bíða eftir hjúkrunarheimili. Við
þessar aðstæður skapast miklar ann-
ir á deildum spítalans og það er lyk-
ilatriði að öryggi sjúklinga sé alltaf í
fyrirrúmi,“ segir Páll í bréfi sínu en
hann skorar á nýja ríkisstjórn að
hrinda áformum sínum um eflingu
heilbrigðiskerfisins strax af stað.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Árborg Félag eldri borgara á Selfossi beinir tilmælum til bæjarstjórnar um
að ræða við heilbrigðisyfirvöld um stöðu hjúkrunarheimila í bænum.
Vilja fleiri hjúkr-
unarrými í bæinn
Óvissa vegna lokunar Kumbaravogs
Ásta
Stefánsdóttir
Til róttækrar skoðunar, er yfir-
skrift opins fundar, sem haldinn
verður Iðnó í hádeginu í dag, laug-
ardag, um alþjóðaviðskiptasamn-
inga. Fjallað verður um togstreitu
fjármagns og lýðræðis, eins og það
er orðað í auglýsingu.
Ræðumaður á fundinum er Ög-
mundur Jónasson, fyrrverandi
þingmaður ráðherra Vinstri hreyf-
ingarinnar - græns framboðs.
Fundarstýra verður Drífa Snædal,
framkvæmdastjóri Starfsgreina-
sambandsins.
Á fundinum ætlar Ögmundur að
fara yfir helstu alþjóðaviðskipta-
samningana, sem
nú er unnið að
víða um heim.
„Færð verða rök
fyrir því að þeir
skipti okkur öll
máli og komi
okkur öllum við,“
segir um fundinn
á heimasíðu Ög-
mundar.
Fundurinn
hefst kl. 12 og lýkur um kl. 13. Allir
eru velkomnir og aðgangur ókeyp-
is. Hægt verður að kaupa sér góm-
sæta súpu að hætti Iðnó.
Ræðir togstreitu fjármagns og lýðræðis
Ögmundur
Jónasson