Morgunblaðið - 14.01.2017, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.01.2017, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það hafa öll spjót staðið á okkur. Ég hef samt þá trú, sama hvernig allt veltist, að þeir sem eru góðir í að rækta kjúkling muni eiga fram- tíð fyrir sér í framleiðslu á Íslandi,“ segir Ingvar Guðni Ingimundarson, kjúklingabóndi á Vatnsenda í Flóa. Skipulagsfulltrúi hefur auglýst deiliskipulag fyrir alifuglabú á nýj- um stað á jörðinni þar sem ætlunin er að stækka búið. Eigendur jarðarinnar hafa tekið frá rúmlega 5 hektara svæði, norð- an Villingaholtsvegar, og skipulagt þar lóðir fyrir sex kjúklingahús, alls um 6.000 fermetra að stærð, auk annarrar aðstöðu. Þar á að vera hægt að ala allt að 80 þúsund fugla, þegar öll húsin hafa verið byggð. Í kynningu skipulagsfulltrúa á deili- skipulaginu kemur fram að tilgang- urinn er að efla starfsemi búsins og bæta aðstöðu fuglanna. Byggja til að halda sama fjölda Hjónin á Vatnsenda, Ingimundur Bergmann og Þórunn Kristjáns- dóttir, hafa verið með kjúklingaeldi í áratugi og undir heitinu Kjúk- lingabúið Vor frá árinu 1993. Nú hefur ábyrgðin færst mikið á herðar sonar þeirra, Ingvars Guðna. Þau kaupa ungana dags gamla og ala upp í sláturstærð og selja þá til Reykjagarðs sem rekur sláturhús á Hellu og sölukerfi. Ingimundur segir að lengi hafi staðið til að bæta við, þó ekki væri nema einu eða tveimur húsum. „Kjúklingahúsin eru heima á bæj- arhlaðinu. Við vildum komast hjá því að bæta við þar. Villingaholts- vatn er hér við og til fegurðarauka í sveitinni. Þess vegna fórum við út í það að skipuleggja reit norðan þjóðvegar. Hann nýtist ekki vel í annað og við höldum að hægt sé að láta mannvirki þar hverfa svolítið,“ segir Ingimundur. Auknar kröfur sem gerðar eru til starfseminnar í reglugerð um vel- ferð alifugla sem sett var á árinu 2015 höfðu í för með sér að kjúk- lingabændur þurftu að fækka fugl- um um 10%. Búin minnkuðu sem því nemur. Bændur hafa því val um að reka búin þannig eða byggja ný hús til að halda sömu framleiðslu. Bændurnir á Vatnsenda hyggjast byrja á því að byggja syðsta húsið á nýju lóðinni. Ingvar Guðni er ekkert banginn við að hefjast handa við uppbyggingu. „Þetta er ágætis grein. Hún er sveiflukennd en í jafnvægi núna. Ferðamennirnir borða mikið af kjúklingi þannig að það er margt fólk að fæða og stöð- ug aukning í sölu,“ segir hann. Keppt við styrktar afurðir Aukinn innflutningur á kjöti er helsta ógn kjúklingaræktarinnar. Búist er við auknum innflutningi á næstu vikum og mánuðum vegna tollasamnings við Evrópusam- bandið sem gerður var á árinu 2015. Ingimundur er formaður Fé- lags kjúklingabænda. Segir hann að tollasamningurinn komi ekki aðeins við kjúklingabændur, hann hafi áhrif á kjötmarkaðinn í heild. Ef of- framboð og verðlækkun verður á einni kjöttegund hafi það áhrif á aðrar greinar og skaði markaðinn í heild. Ingvar Guðni segir að tollvernd kjúklingakjöts sé alltaf að minnka. Það sé vissulega slæmt þegar verið sé að hleypa inn afurðum sem njóti styrkja í Evrópusambandinu í sam- keppni við afurðir hér sem ekki njóti styrkja. Geta notað meiri hænsnaskít Í greinargerð með deiliskipulags- tillögunni kemur fram að samtals um 1.100 rúmmetrar af hænsnaskít muni falla til á ári frá húsunum sex sem gert er ráð fyrir á skipulaginu. Hann verði notaður sem áburður á ræktað land og til uppgræðslu. Ingvar segir að skíturinn sé verðmætur. Þau séu að hefja nauta- eldi á býlinu og verði áburðinum dreift á túnin og grasið nýtt í naut- in. „Þetta fer vel saman og við get- um vel notað meiri skít,“ segir hann. Kynslóðaskipti Ingvar Guðni Ingimundarson og Eydís Rós Eyglóardóttir eru um þessar mundir að taka við kjúk- lingaeldinu á Vatnsenda í Flóa. Þau eru hvergi bangin við að hefjast handa við uppbygginguna á bænum. Þeir góðu eiga framtíð fyrir sér í framleiðslu  Skipuleggja lóð fyrir 80 þúsund kjúklinga á Vatnsenda Páskaungar Bændur kaupa ungana dags gamla og ala í sláturstærð í kjúk- lingabúinu á Vatnsenda og selja þá til sláturhúss Reykjagarðs á Hellu. www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is Ferðafélag Íslands á 90 ára afmæli 2017 og við hefjum afmælisárið sunnudaginn 15. janúar með göngu um Öskju- hlíðina og Nauthólsvík undir styrkri forystu Péturs H. Ármanns- sonar, arkitekts og landsins helsta sérfræðings um byggingasögu höfuðborgarsvæðisins. Pétur hefur um margra ára skeið leitt sérstakar borgargöngur á vegum Ferðafélags Íslands. Í þessari göngu verður hugað að uppbyggingu og skipulagi Öskjuhlíðarinnar og merkileg saga svæðisins rifjuð upp. Gangan hefst kl. 10.30 frá Perlunni í Öskjuhlíð. Gengin er 4-5 km hringur. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. við upphaf afmælisárs FÍ Borgarganga Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Öll kínversk leikfimi • Heilsu Qi Gong 5000 ára tækni • Heilsubætandi Tai chi • Hugræn teygjuleikfimi • Kung Fu fyrir 4 ára og eldri Í samstafi við Kínverskan íþrótta háskóla Einkatímarog hópatímar Fyrir alla aldurshópa Þú finnur okkur á Facebook Í árslok 2016 námu aflandskrónu- eignir samtals 191 ma.kr. og höfðu minnkað um ríflega 128 ma.kr. frá 31. mars 2016. Í árslok var mest af aflandskrónunum í ríkisbréfum, rík- isvíxlum og öðrum bréfum með rík- isábyrgð, 105,6 ma.kr., í reiðufé og innstæðubréfum Seðlabankans voru 72,7 ma.kr. og 12,8 ma.kr. í öðru eignaformi. Þetta kemur fram í til- kynningu frá Seðlabanka Íslands, sem birt var í gær. Eins að hinn 22. maí 2016 hafi tek- ið í gildi lög nr. 37/2016 um meðferð krónueigna sem háðar eru sér- stökum takmörkunum. Lögin mæltu fyrir um afmörkun aflandskrónu- eigna og flutning þeirra á um- sýslureikninga í Seðlabankanum og á reikninga háða sérstökum tak- mörkunum. Í greinargerð með frumvarpinu var birt mat á heildar- umfangi aflandskrónueigna eins og þær voru 31. mars 2016, byggt á greiningu Seðlabanka Íslands. Aflandskrónueignir voru þá áætl- aðar 319,1 ma.kr. Í júní 2016 hélt Seðlabankinn gjaldeyrisútboð fyrir aflandskrónueigendur þar sem til- boðum var tekið fyrir samtals 82,9 ma.kr. Þá var eigendum afla- ndskrónueigna heimilt að eiga gjald- eyrisviðskipti við Seðlabankann á viðmiðunargenginu 220 krónur á evru til 1. nóvember 2016 og leituðu þá um 15,5 ma.kr. útgöngu. 128 milljörðum minni aflandskrónueignir  Eftir standa eignir upp á 191 milljarð Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Aflandskrónueignir nema 191 milljarði króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.