Morgunblaðið - 14.01.2017, Side 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
allan sem hann bar mjög fyrir
brjósti á meðan hann var bóndi.
Björn var bæði gjafmildur og
frændhollur, alltaf reiðubúinn að
snúast eitthvað fyrir vini og
vandamenn eins og reyndar allt
hans skyldfólk.
Björn var vel ritfær og áhuga-
maður um sagnfræði og forn-
muni. Hann skrifaði lipran en
meitlaðan texta um hin ýmsu
hugðarefni sín. Hann tók líka fín-
ar ljósmyndir og sinnti því
áhugamáli sínu af alúð. Björn
grúskaði í ýmsu og var margt til
lista lagt. Það var því ánægjulegt
að sjá að hann lenti á hárréttri
hillu þegar hann fékk starf sem
safnvörður á Byggðasafni Vest-
fjarða þegar hann lét af bústörf-
um í Vigur og fluttist til Ísafjarð-
ar.
Björn var eins og sniðinn fyrir
gömlu húsin í Neðstakaupstað á
Ísafirði þar sem hann hélt öllu í
góðu standi eins og honum einum
var lagið. Nálægðin við eyjuna
sína var honum líka afar mikil-
væg.
Það er mikill missir að Birni
frænda okkar og við söknum
hans sárt.
Ég votta Ingunni eiginkonu
hans og börnum þeirra, Baldri og
Snjólaugu, ásamt systkinum
hans mína dýpstu samúð.
Guð einn ræður hvenær ég
kem í þetta sinn, vinur minn.
Farðu í friði, elsku frændi minn
kæri.
Bjarni Brynjólfsson.
Það var harmafregn á fyrsta
degi nýs árs að kær frændi minn
og vinur, Björn Baldursson, væri
látinn.Við Böddi vorum jafnaldr-
ar, þau yngstu í barnahópi sex
systkina frá Vigur á Ísafjarðar-
djúpi. Hann var heimamaður í
Vigur en ég kom að sunnan á
hverju sumri í sveitina. Þar átti
ég mestu dásemdardaga æsk-
unnar í leik og störfum með hon-
um í kúarekstri, heyskap, dún-
tekju auk óteljandi uppátækja
okkar í þessari ævintýraveröld
meðal frændfólks sem bjó í eyj-
unni eða kom þangað hvert sum-
ar.
Böddi hafði ríkt næmi fyrir
náttúru og dýrum sem hann kom
fram við af virðingu, áhuga og
ræktarsemi. Hann lagði mikla al-
úð við æðarvarpið í Vigur og átti
frumkvæði að því að bjarga og
ala upp yfirgefna æðarunga.
Fyrr en varði höfðu margir ár-
gangar æðarfugla alist upp undir
verndarvæng hans sem sóttu
eðlilega alltaf aftur heim í eyjuna.
Það er gaman að sjá að Baldur
sonur hans tók við starfi unga-
hirðisins með góðum árangri.
Þau sterku tengsl sem Böddi átti
við æskuheimili sitt í Vigur, þar
sem hann stundaði einnig búskap
ásamt Salvari bróður sínum um
tíma, fylgdu honum til æviloka
þótt síðasta rúma áratuginn
byggi hann á Ísafirði.
Böddi var íhugull, yfirvegaður
og skipti sjaldan skapi. Hann var
gjarnan sposkur á svip og alltaf
stutt í húmorinn í hæfilegri
blöndu við stríðni, en hann var
líka einstakt ljúfmenni með góða
nærveru. Hann var sagnfræði-
grúskari og gagnfróður um allt
sem tengdist byggðasögu við Ísa-
fjarðardjúp. Þessir eiginleikar
hans nýttust vel í starfi hans sem
safnvörður hjá byggðasafni Vest-
fjarða. Fróðleiksgreinar hans
sem birtust á heimasíðu byggða-
safnsins bera vitni um dugnað
hans að vekja áhuga á og miðla
þekkingu um hvaðeina sem laut
að mannlífi, búskap, sjávarútvegi
eða skondnum sögum af minnis-
stæðum persónum fyrri alda á
Vestfjörðum og víðar. Mikið safn
liggur einnig eftir Bödda af heim-
ildum og fróðleiksmolum um
sögu Vigur og ábúenda hennar í
gegnum aldirnar, efni sem er
okkur í fjölskyldunni dýrmætt og
verður miðlað áfram til komandi
kynslóða.
Hann varð ekki samur eftir
áfall sem reið yfir í byrjun síðasta
sumars þegar hann missti líkam-
legan mátt að stóru leyti en hafði
þó náð góðum árangri í átt til
bata. Eftir fráfall Bödda ríkir
djúp sorg hjá fjölskyldunni í
Neðstakaupstað og hann er
syrgður af stórum hópi vina og
ættingja. Ég bið góðan Guð að
styrkja Ninnu, Baldur og Snjó-
laugu og systkinin frá Vigur á
þessum erfiða tíma.
Björg Thorarensen.
Elsku hjartans frændi minn,
komið er að kveðjustund hversu
sár sem hún er og endanleg. Mik-
ill er sá sársauki sem í umbreyt-
anleika sínum er svo þungur að
ekkert getur hann sefað. Þú kæri
drengurinn minn, svo yndislegur
og vænn, færðir okkur alltaf gleði
og væntumþykju með nærveru
þinni. Og sú mikla umhyggja, ást
og elska sem þú sýndir móður
þinni alla tíð var eins og þú allur,
heill í gegn. Reyndar var það
ávallt sú framkoma sem þú sýnd-
ir öllum, bæði mönnum og mál-
leysingjum, alla tíð í lífi og starfi
hvert sem þú fórst. Það var gæfa
mín og fjölskyldu minnar að fá að
kynnast þér meira hin síðari ár,
fá að starfa með þér við Byggða-
safn Vestfjarða og njóta annarra
samverustunda. Þér var svo ein-
staklega lagið að efla áhuga og
tiltrú á þau verkefni sem fyrir
lágu eða koma af stað koma.
Sögumaður af lífi og sál um
geymda menningu og lífshætti
liðinna ára. Þau voru stórstíg
sporin þín og örugg þótt hægt og
gætilega væru farin. Hugur þinn
laut til þátttöku í samfélagsmál-
um, bæði í þinni fyrri sveit við
Djúp og á Ísafirði. Verkefni þín
hjá Byggðasafni Vestfjarða bera
þess ljóst vitni. Elsku drengurinn
minn, mikið gladdir þú mig með
gjöf þinni sl. vor, gjöf sem gefin
var af elsku og hjartans hlýju
eins og þér var einum svo lagið.
Hér lýkur degi – Guð blessi
minningu þína.
Elsku hjartans Ingunn, Bald-
ur og Snjólaug, hugheilar sam-
úðarkveðjur og megi góður Guð
gefa ykkur styrk til að takast á
við sorg ykkar og missi. Systk-
inum og fjölskyldum sendi ég
samúðarkveðjur.
Ragnheiður Hákonardóttir
og fjölskylda.
Elsku Böddi. Í mörgum af
mínum dýrmætustu minningum
ert þú ljóslifandi og þannig mun
það alltaf verða. Þó að ekki sé
langt á milli okkar í árum talið
áttir þú stóran þátt í að koma mér
til manns, og fyrir það verð ég
ævinlega þakklátur.
Ég horfi til uppvaxtarára
minna í Vigur sem forréttinda
sem ég var svo lánsamur að
njóta. Þótt af nógu sé að taka
langar mig að minnast þess að-
eins hversu gaman þú hafðir af
því að stríða okkur krökkunum.
Sérstaklega þótti þér gaman að
gera okkur skíthrædd með
draugasögum og stundum lagðir
þú töluvert á þig með því að fela
þig á góðum stöðum og bíða í þó
nokkra stund eftir rétta augna-
blikinu, gefa svo frá þér einhver
drungaleg hljóð, þannig að við
urðum stjörf af hræðslu. Svo kom
hláturinn í kjölfarið því þú áttir
stundum erfitt með að leyna kæti
þinni eftir vel heppnaðan hrekk.
Á hinn bóginn varstu alltaf ljúfur,
hjálpsamur, einstakt góðmenni
og sem fyrr segir, mikill húmor-
isti.
Elsku frændi minn. Minning
þín lifir í huga og hjörtum okkar
allra sem vorum svo lánsöm að
eiga þig að.
Elsku Ninna, Baldur og Snjó-
laug. Megi allar góðar vættir
halda utan um ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Jónas Eyjólfur Jónasson.
Á gamlárskvöld barst mér sú
harmafregn að æskuvinur minn
Björn Baldursson frá Vigur væri
látinn langt fyrir aldur fram. Við
Böddi, eins og hann var alltaf
kallaður, kynntumst fyrir hart-
nær fjörutíu árum þegar hann
hóf skólagöngu í Barnaskólanum
í Hnífsdal. Líkt og margir sem
bjuggu í sveit á þessum tíma varð
hann ungur að yfirgefa foreldra-
hús og flutti til Bjargar systur
sinnar sem þá var skólastjóri í
Hnífsdal. Við vorum saman í
fimm manna bekk og urðum fljótt
bestu vinir. Við vorum heima-
gangar hvor hjá öðrum í mörg ár
og margt var brallað á þessum
tíma. Þegar skóla lauk á vorin fór
Böddi heim í Vigur og sást ekki
aftur fyrr en fyrsta skóladag að
hausti. Hann kunni alltaf best við
sig í heimahögunum í Vigur og
undi sér þar við lundaveiðar, dún-
tekju og önnur bústörf. Ég var
svo heppinn að heimsækja hann í
Vigur og hitta hann þar í essinu
sínu. Þetta voru góðir tímar.
Böddi var mörgum kostum
gæddur. Hann var mikill sveita-
strákur, hafði ríka kímnigáfu, var
einlægur, skemmtilegur og með
góða nærveru. Hann var hreinn
og beinn og þannig gerður að öll-
um líkaði vel við hann. Þegar
gagnfræðaskóla lauk skildi leiðir.
Ég fór í menntaskóla og flutti síð-
an til útlanda en Böddi fór í
bændaskóla og þaðan aftur vest-
ur. Þótt við hittumst sjaldan und-
anfarin ár var ávallt sterk taug á
milli okkar og fagnaðarfundir
þegar við hittumst. Við Böddi
hittumst nú í haust og sammælt-
ust um að hittast oftar. Hann
hafði gengið í gegnum erfið veik-
indi en bar sig vel. Vonaði ég að
hann myndi ná sínum fyrri styrk
sem fyrst. Ekki hvarflaði að mér
að þetta væri síðasti fundur okk-
ar æskuvinanna.
Við Sigríður Inga vottum Ing-
unni Ósk, eiginkonu Bödda, börn-
um þeirra og systkinum hans
innilega samúð.
Ég þakka kærum vini mínum
samfylgdina.
Blessuð sé minning góðs
drengs.
Jón Áki Leifsson.
Leiðir okkar Bödda hafa legið
saman frá blautu barnsbeini enda
nágrannar frá Vigur og Ögri. Það
voru leiðir vinskapar og sam-
starfs rétt eins og kynslóðanna á
undan okkur á þessum stöðum
enda sterk tengsl á milli þessara
staða í hinni gömlu Ögursveit.
Ein af minningum barnæsk-
unnar tengist því þegar Vigur-
fólkið kom í Ögur, siglandi á Vig-
urbátnum Gesti fyrir Ögurnesið
og að bryggju í Ögri. Nágrannar
á þessum slóðum þurftu að hafa
töluvert fyrir því að fara á milli.
Ekki milli húsa heldur eyjarinnar
og fastalandsins. Síðar átti Böddi
eftir að sigla Gesti í tengslum við
starf sitt hjá Byggðasafni Vest-
fjarða á Ísafirði. Ég man hvað
mér þótti það passa vel að einmitt
hann væri að sinna því starfi sem
hann gerði af alúð og fag-
mennsku eins og allt annað sem
hann tók sér fyrir hendur. Í sam-
skiptum við aðra, bæði menn og
málleysingja, sýndi Böddi alltaf
þessa sömu alúð og virðingu.
Hann heilsaði með kossi á kinn
og góðu faðmlagi. Hann var sér-
staklega mikill dýravinur og það
má auðvitað segja um marga en
hann var einstakur í umgengni
við málleysingjana enda sá mað-
ur það hversu dýrum leið vel ná-
lægt honum. Rólegt yfirbragð og
góð nærvera einkenndi hann og
svo gat hann verið skemmtilega
uppátækjasamur og stríðinn en á
góðan hátt.
Blóðtappi í heila í byrjun júní á
síðasta ári, rétt mánuði fyrir
fimmtugsafmæli Bödda sem átti
að sjálfsögðu að halda í Vigur,
var mikið áfall. En hann barðist
af kappi af þeim dugnaði sem ein-
kenndi hann. Og framfaraskrefin
voru mörg þó að Böddi segði
sjálfur að þetta mætti ganga bet-
ur. Það var ekki skrítið þó að
hann vildi að þetta gengi hraðar
því dugnaður og vinnusemi ein-
kenndi hann alla tíð þannig að
skerðingin fyrir þennan duglega
mann var mikil.
En þrátt fyrir framfaraskrefin
dugði það ekki til og við fengum
harmafregnina á gamlársdag.
Böddi er dáinn, hann er farinn
endanlega frá okkur og við vinir
hans og ástvinir eigum aðeins eft-
ir minningarnar um þennan ein-
staka mann og söknum hans
óendanlega mikið. Það er sárt
fyrir okkur öll en hugurinn hvílir
sérstaklega hjá Ninnu, Baldri og
Snjólaugu ásamt öðrum í fjöl-
skyldunni samhentu. Guð blessi
minningu Bödda, vinar míns, sem
kvaddi okkur alltof snemma.
Halldór Halldórsson.
Það var komið sumar á slétt-
unni miklu. Undirbúningurinn
fyrir hinn árlega akurskóla á Ís-
landi gekk vel og kanadísku stúd-
entarnir voru fullir tilhlökkunar.
Samkvæmt venju var stefnan
tekin á Vestfirði eftir stutta dvöl í
borginni og hópurinn vissi að
ferjan sem sigldi yfir Breiða-
fjörðinn héti í höfuðið á einum af
guðunum. Í þetta sinn var einnig
búið að bóka fyrirlesara á Ísafirði
sem hét sama nafni. Hann tók á
móti hópnum í Tónlistarskóla
Ísafjarðar og leiddi okkur inn í
björt salarkynni. Umræðuefnið
var bréf fyrirlesara til höfuð-
stöðva Sameinuðu þjóðanna þar
sem hann hafði lýsti áhyggjum
sínum vegna hugmynda sem þá
voru á sveimi um byggingu olíu-
hreinsunarstöðvar í einum af
fjörðunum.
Ferðalangarnir drukku í sig
erindið sem rataði tækjalaust í
hjartastað. Það eina sem þurfti
útskýringar við var sú staðreynd
að fyrirlesarinn var barn að aldri.
Hvaðan kemur þessi strákur? var
spurt.
Baldur er sonur Björns Bald-
urssonar frá Vigur. Björn á einn-
ig dóttur sem heitir Snjólaug og
þau systkinin eru fædd á eylandi
pabba síns í Ísafjarðardjúpi.
Ekki er gott að útskýra með orð-
um veganestið þaðan og hvernig
það hlýtur að móta sálarlífið, við-
horfin og gildin fyrir lífstíð. Hitt
er ljóst að pabbi þeirra Snjólaug-
ar og Baldurs lokkaði til sín
mömmu þeirra, hana Ninnu, í
Djúpið. Já, við erum að tala um
eina af ástarsögum 20. aldarinnar
og ávexti hennar. Hún sem var
búin að nema sönglistina í nokkr-
um af höfuðborgum Evrópu og
halda tónleika víðs vegar kom
siglandi vestur á firði með nót-
urnar sínar og koffortið eftir eitt
örlagaríkt sumarkvöld í Vigur.
Og þarna stíga Snjólaug og Bald-
ur sín fyrstu skref, umvafin dul-
magni náttúruafla, sögu kynslóða
og listarinnar. Þannig búin flytja
þau með foreldrum sínum á meg-
inlandið og hreiðra um sig á Ísa-
firði. Kannski er það til marks
um sláandi samhengið í tilver-
unni að Krambúðin á Ísafirði,
húsið sem fjölskyldan býr í, er
byggt árið 1757, ári eftir að Moz-
art fæðist.
Á þessum sólríka degi í Tón-
listarskóla Ísafjarðar fyrir ekki
svo löngu síðan gat enginn vitað
að Björn Baldursson frá Vigur
yrði fyrir alvarlegu áfalli sumarið
2016. Á sama hátt hefði enginn
getað séð brottför hans á gaml-
ársdag fyrir. Ekki einu sinni
systurnar í norrænu goðafræð-
inni hefðu getað spunnið harm-
rænni þráð. Við sem vorum þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að kynnast
öðlingnum horfum á eftir honum
með þakklæti, virðingu og sorg.
Við sjáum einnig að brottförin á
gamlársdag er ástarjátning til
handa eftirlifandi fjölskyldu og
hvernig nýárssólin gyllir slóðina
við ysta haf.
Birna Bjarnadóttir.
Þegar ég lít til baka verður
mér ljóst hvað ég var heppin fyrir
tíu árum að fá vinnuaðstöðu á
næsta borði við hann Bödda. Það
sem stendur upp úr er hrekkirn-
ir, glensið, grínið og sameiginleg-
ur áhugi á ýmsu sem mætti
flokka undir margt skrýtið í kýr-
SJÁ SÍÐU 32
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
SIGNÝ EGGERTSDÓTTIR,
Ægisvöllum 2,
Keflavík,
lést á bráðamóttöku Landspítalans
2. janúar.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 17. janúar
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Gigtarfélagið.
.
Páll Björgvin Hilmarsson,
Sigurður R. Magnússon, Magnea Grétarsdóttir,
Jóhanna María Pálsdóttir, Geir Reynir Egilsson,
Hildur Hilmars Pálsdóttir, Kristján Þ. Guðjónsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
sambýliskona, amma og langamma,
ÁSBJÖRG INGÓLFSDÓTTIR,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
sunnudaginn 8. janúar 2016, verður
jarðsungin frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 16. janúar klukkan 14.
.
Sigurþór, Ingólfur og Stefán Stefánssynir,
Hafdís Jónsdóttir, Garðar Árnason
og Matthildur Soffía Leifsdóttir,
Óskar Markússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURGEIR BJARNASON,
Drápuhlíð 15, Reykjavík,
áður Ólafsvík,
lést í faðmi fjölskyldunnar 10. janúar á
hjúkrunarheimilinu Eiri. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 19. janúar klukkan 15. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþökkuð en þeim er vilja minnast hans er bent á
Kirkjukór Ólafsvíkur.
.
Sigurdís Egilsdóttir,
Garðar G. Sigurgeirsson, Ásdís S. Gunnarsdóttir,
Vigdís Björg Sigurgeirsd., Gunnlaugur A. Einarsson,
Egill Rafn Sigurgeirsson, Svava Jónsdóttir,
Svala Sigurgeirsdóttir,
Sigurgeir Sigurgeirsson, Sigurbjörg Guðlaugsdóttir
og afabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUNNAR LÚÐVÍKSSON
bifvélavirki og ökukennari,
lést á öldrunarheimilinu Hlíð fimmtudaginn
12. janúar. Útför hans fer fram frá Akur-
eyrarkirkju föstudaginn 20. janúar klukkan 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á öldrunarheimilið Hlíð,
Akureyri.
.
Bryndís Gunnarsdóttir, Bjarni Jónsson,
Guðmundur Viðar Gunnarss., Margrét Svanlaugsd.,
barnabörn og barnabarnabörn.