Morgunblaðið - 14.01.2017, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 14.01.2017, Qupperneq 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú gerir allt til að reyna að tryggja félagslegt öryggi þitt. Innsæi þitt leiðir þig nákvæmlega þangað sem þú átt að vera. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú er ráð að einbeita sér að heimili, fjölskyldu og öllu sem henni tengist á næst- unni. Ef þú virðist einum of vandfýsinn í eig- in garð, er það kannski merki um eitthvað. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að endurvekja hæfileika þinn til að tjá þig. Hún áttar sig kannski í nærveru vinar sem notið hefur velgengni. Leggðu þig allan fram. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur haft yfrið nóg að starfa að undanförnu en sérð nú fram á að eiga tíma aflögu fyrir sjálfan þig. Farðu samt varlega því einhver reynir viljandi að villa þér sýn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú munt hugsanlega segja eitthvað, til að sanna mál þitt, sem þú munt sjá eftir. Hafðu því í huga máltækið: Aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Eitthvað mun vekja með þér efa- semdir um eigið ágæti í dag. Hvernig væri að slaka einni eða tveimur og sjá hvernig fólk bregst við þeirri framtakssemi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er gott að hafa stjórn á öllum hlut- um en nauðsynlegt að vita hvenær maður á að sleppa hendinni af öðrum. Djarfar ákvarðanir eru þær einu sem eru einhvers virði. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú tekur þátt í markverðum samræðum við fólk sem þú vilt vekja áhuga hjá. Ef þú minnist gætilega á umkvörtunar- efni heilar það sambandið. Mundu að þú berð ábyrgð á eigin hamingju. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert ánægðastur þegar þú ert í hlutverki forystusauðar. Betra er að vera samkvæmur sjálfum sér þótt það kosti sitt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur verið svo upptekinn í vinnunni að vinir og vandamenn hafa þurft að sitja á hakanum. Undirbúðu þig vandlega og vertu málefnalegur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Mundu í samræðum við aðra að frelsi þitt nær ekki lengra en þangað sem frelsi hins tekur við. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Viðhaltu sakleysi þínu. Mundu að þú getur ekki vænst þess að aðrir sýni þér ör- læti nema þú gerir það sama. Hver er sinnar ógæfu smiður líkt og gæfunnar, svo ekki kenna öðrum um það sem aflaga fer. Vegan-mataræði hefur notið sí-vaxandi vinsælda sem end- urspeglast meðal annars í því að þegar þetta er skrifað eru 12.245 manns í hópnum Vegan Ísland á Facebook. Ákveðin vitundarvakn- ing á sér stað á hverju ári með Veganúar, sem er átak á vegum Samtaka grænmetisætna á Ís- landi. Markmiðið er ekki síst að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða. x x x En hvað þýðir það að vera veg-an? „Veganismi er vel skil- greind hugmyndafræði sem felur m.a. í sér þá grundvallarskoðun að öll hagnýting dýra sé siðferðislega röng. Sama hvort dýrið sé drepið eða það haldið lifandi til nýtingar afurða þess, hvort sem það er spendýr eða skordýr. Vegan-fólk borðar t.d. ekki hunang og kaupir ekki ull. Sumt fólk borðar næstum því alveg vegan en fær sér kannski hunang í te og gengur í ullarsokkum. Það má alveg velja sér það en flokkast samt sem áður ekki sem vegan-neysluhegðun,“ skrifar einn stjórnandi síðunnar á Facebook til upplýsingar fyrir nýja meðlimi. x x x Áberandi er hversu margir veit-ingastaðir eru farnir að bjóða uppá vegan-rétti en þetta mat- aræði er hvað vinsælast á meðal yngri kynslóðarinnar. Krafa neyt- enda er að fá að vita hvað er í matvörunum sem þeir innbyrða. Til dæmis er ekki allt áfengi veg- an en hægt er að fletta upp öllu víni og bjór á vefsíðunni Barni- vore.com. Stundum er notað hun- ang í drykki og við hreinsun eru kannski notaðar eggjahvítur eða gelatín. x x x Það er heldur ekki allt nammivegan en inni á Vegan Ísland hópnum var birt mynd af 100% vegan nammibar í verslun í Finn- landi við góðar undirtektir með- lima. Grænmetismataræði lands- manna byrjaði útfrá heilsubylgju en ekki er sama að segja um veg- an-mataræðið. vikverji@mbl.is Víkverji Alvæpni Guðs Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans. (Efesusbréfið 6:10) Vísnagátan er sem endranær eft-ir Guðmund Arnfinnsson: Nafnar hér fjórir fræknir: Forstjóri, dýralæknir. Vígslubiskup hinn besti. Bringusundskappinn mesti. Árni Blöndal svarar: Forstjóra Flugleiða Sigurð ég sé. Sigurður læknar hesta og fé. Sigurður vígslubiskup er slyngur. Svo er bringusunds Þingeyingur. Helgi R. Einarsson segist hafa kynnst þremur Sigurðanna forðum, einkum Þingeyingnum frá Yzta- felli, sem var víst náttúrubarn í sundmenntinni: Sigurður mér sýnist er svarið líklegasta. Vaskar kempur vappa hér um völlinn. Punktur, basta. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Sigurður helstur í Hafró, hugar að tönnum dýra, veitti hjörðinni hugfró, hetjan í bringu skýra. Þessi er skýring Guðmundar: Sigurð í „Ríkinu“ sé ég þar. Sigurð hér dýralækni finn. Sigurður hirðir sálna var. Sigurður Þingeyingurinn. Og svo er limran: Horfinn er Þorgeir af þingi, þar snúast menn í hringi, enginn veit neitt eða neinu fær breytt nema hann Sigurður Ingi. Og síðan er laugardagsgátan: Sólarglæta sést ei par, samt er kominn janúar, veður á súðum suðrafar, seilist ég til gátunnar: Nú er stefnan vestur á við. Víst á báðum eruð þið. Kona þessi eign þín er. Ætt til forna merkir hér. Árni Blöndal lét áramótakveðjur fylgja svari sínu: Vænstu þakkir vil ég færa Vísnahorni og gátusmið af þeim mega allir læra orðafar að glíma við. Marga gleður Moggagáta mörg eru svörin góð ég tel ýmsir af þeim oft sig státa enda lausnin rímuð vel. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það er margur Sigurðurinn Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að varðveita minningarnar um tíma ykkar saman. ÉG ER MINN EIGIN HERRA OG ÉG GAF SJÁLFUM MÉR FRÍ EFTIR HÁDEGI ÉG ER KOMINN AFTUR FRÁ KÍNA, HELGA… …OG VIÐ ERUM ÞEIR SEGJA AÐ ÞAÐ SÉ FJÁRSJÓÐUR Í HVERRI KÖKU! „ÞÆR ERU MEIRA AÐ SEGJA FRÁDRÁTTARBÆRAR FRÁ SKATTI EF ÞÚ ERT ATVINNUGLÆPAMAÐUR.“ „ÞESSI ER SJÁLFVIRK.“ BYSSUR Í ALVÖRUNNI? EN ÞÆR ERU SVO LITLAR! RÍK!! RÍK! RÍK! lÍs en ku ALPARNIR s alparnir.is Tilboð - skíði, bindingar, skór & stafir ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727 TILBOÐS-PAKKI DÖMU79.995 TILBOÐS-PAKKIHERRA84.995

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.