Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.2006, Page 15

Víkurfréttir - 05.01.2006, Page 15
Fréttaannál Víkurfrétta er œtlað að varpa Ijósi á atburði síðasta árs. Annállinn er ekki tæmandi en gefur einhverja mynd affrétta- árinu tvöþúsund ogfimm e. kr. Sameiginlegt frambcc i Reylijanesbæ 2006 Framsókn-Samfylking- Óflokksbundnir,. ; Fm m T 4 JL* -4 1 L r>» ÁSTARSAMBAND ÁRSINS: Samfylking og Fram- sókn í eina sæng Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin í Reykjanesbæ hafa ákveðið að bjóða fram sam- eiginlegan lista í sveitarstjórn- arkosningum í Reykjanesbæ í maí 2006, með þátttöku og aðkomu óflokksbundinna. Þetta var tilkynnt á blaðamanna- fundi í Kaffltári í haust. Flokkarnir eru sammála um að leggja áherslu á að byggja upp innviði og mannauð sveitarfé- lagsins. Sérstök áhersla verður lögð á uppbyggingu atvinnulífs, bætt kjör barnafjölskyldna, lýðræðisleg vinnubrögð, að tekinn verði upp gjaldfrjáls leikskóli í áföngum og unnið að bættum hag eldri borgara. VINNUVEITANDI ÁRSINS: Varnarliðinu óheimilt að afnema ferðapeninga slökkviliðsmanna Hæstiréttur staðfesti í nóvember dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá febrúar sl. að starfsmanna- haldi Varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli hafi verið óheimilt að afnema greiðslu ferðapen- inga til slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli sem búa á Höfuðborgarsvæðinu. íslenska ríkið, sem var stefnt fyrir hönd Varnarliðsins, var dæmt til að greiða Lands- sambandi Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna 300.000 krónur í málskostnað og mun þurfa að greiða slökkviliðs- mönnunum ferðapeningana afturvirkt frá 1. febrúar 2004. FALLDRAUGAR ÁRSINS: Crindavík sleppur enn Grindvíkingar unnu glæsi- legan sigur á grönnum sínum í Keflavík í síðustu umferð Landsbankadeildarinnar, 2-1. Með því björguðu þeir sér frá falli enn einu sinni og geta enn sagst vera eina liðið sem aldrei hefur fallið úr efstu deild. Eftir tímabilið réðu þeir til sín Sigurð nokkurn Jónsson sem á að sjá til þess að spenna Grindvíkinga verði á hinum enda deildarinnar næstu ár. PENINGAPLOKK ÁRSINS: Lífeyrissjóðurinn lækkar réttindi Ákvörðun Lækkun réttinda sjóðsfélaga vekur hðrðviðbrðgð Lífeyrssjóðs Suðurlands um að lækka réttindi sjóðs- félaga sinna um 16 % frá og með mánaðar- mótum októ- ber og nóvember vakti hörð viðbrögð meðal sjóðsfélaga. í samtali við Víkurfréttir sagði Friðjón Einarsson, fram- kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins, að þeim væri að sjálfsögðu þvert um geð að grípa til þess- ara aðgerða. Þær væru hins vegar af nauðsyn þar sem viðvarandi atvinnuleysi und- anfarin ár og stóraukin örorka hefðu lagst þungt á sjóðinn. Fegurðarsamkeppni Suðurnesja fagnar 20 ára afmæli á þessu ári. Nú er leitað eftir tilnefningum í keppnina í ár sem verður hin glæsilegasta á afmælisár. Keppnin nú er fyrr á ferðinni en oft áður og því er óskað eftir tilnefningum fljótt og vel. Ef þú veist um verðugan fulltrúa í keppnina um Ungfrú Suðurnes 2006. þá vinsamlega komdu ábendingunni á Oddnviu Nönnu Stefánsdóttur í síma 862 4704. Víkurfréttir munu fylgjast vel með undirbúningi keppninnar og verða þátttakendur kynntir í Víkurfréttum og í Tímariti Víkurfrétta. Nánar um það síðar. Auglýst er eftir umsóknum í dagvist aldraðra í Grindavík sem fyrirhugað er að setja á stofn í Víðihlíð þann 1. febrúar n.k. Um er að rceða fimm vistunarrými og ber að leggja fram umsóknir á bæjarskrifstofu. Nánari upplýsingar veita forstöðumaður dagvistar aldraðra, Elín Þorsteinsdóttir, í síma 895 8163 og félagsmálastjóri, Nökkvi Már Jónsson, i síma 420 1100. Suðurnesjamenn athugið! 1 tilefni af því að Ökuskóli S.G. hefur nú fært starfsstöð sína til Suðurnesja bjóðum við upp á eftirfarandi tilboð: Leigubifreið kr. 75.000,- Vörubifreið kr. 148.000,- Eftirvagn kr. 46.000,- Allur pakkinn kr. 275.000,- (þ.e. leigu-, vöru-, hópb. og eftirvagn) ISIámskeiðið hefst þriðjudaginn 10. janúar nk. kl. 17.30. Missið ekki af þessu einstaka tilboði! Skráning í símum 581 2780, 567 9094, 822 2908 og 692 4124 Visa og Euro raðgreiðslur til allt að 36 mánaða .rfg^j|lí KIISKÚLI SIMI 581 2780 aukin ökuréttindi LEIGUBIFREID VÖRUBIFREID HÚPBIFREID STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGA8LAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 5. JANÚAR 2006 15

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.