Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.01.2006, Síða 26

Víkurfréttir - 12.01.2006, Síða 26
 IÞROTTIRIBOÐI LANDSBANKANS íþróttaannáll Víkurfrétta Umsjón:Jón Björn Ólafsson og Þorgils Jónsson Annáll þessi er alls ekki tæmandi en bregður vonandi skemmtilegu Ijósi á blómlegt íþróttalíf Suðurnesja á síðasta ári Njarðvíkingar tóku áhættu rétt fyrir úrslitakeppni í körfunni, losuðu sig við Anthony Lackey og Matt Sayman og fengu Doug Wrenn og Alvin Snow til liðsins. Útkoman... snemmbúið sumar- frí. &I&RRSALDUR ÁRSINS Guðjón Þórðarson kom til Kefl- víkinga með fögur fyrirheit í farteskinu en grasið var víst grænna á Bretlandseyjum. Kefl- víkingar voru alveg bit. Eitthvað var Jeb Ivey að flækj- ast fyrir þyrluspöðunum á A.J. Moye í grannaslag Njarðvíkur og Keflavíkur laust fyrir áramótin. Útkoman var þriggja leikja bann hjá Moye og gekk nágrannarígur- inn skemmtilegi í gegnum endur- nýjun lífdaga í kjölfarið. Júdódeild Þróttar í Vogum hélt glæsilegt afmælismót Júdósam- bands íslands síðasta vetur. Magnús Hauksson og hans fólk sýndu glæsitilþrif jafnt á gólfinu sem og í umgjörðinni. Einstakurárangur V~5f^p;| ^Njarði/íkurpilta gfelRBURÐIRÁRSINS Eru einhverjir sem geta unnið '89 árganginn í Njarðvík? Svo hefur ekki verið síðustu árin og er flokkurinn einn sá sig- ursælasti í sögu körfuboltans hér á íslandi. Ekki sér enn fyrir endann á velgengni piltanna sem nú þegar eru farnir að fá mínútur í meistaraflokk. NS Kylfingarnir Róbert Svavarsson ogÆvar Pétursson náðu drauma- höggin í sumar. Róbert fór holu í höggi á Indlandi en Ævar sigr- aðist á Bergvíkinni í Leiru sem hefur valdið mörgum kylfingum hugarangri í gegnum árin. V wt ArW =(§jg Körfukrakkar komu saman í hundraðavís í Reykjanesbæ til þess að taka þátt í Samkaupsmót- inu s.l. vor. Sem fyrr var áhersla - Tnniaðstaða 18 holu púttvöllur- Aðstaða til að slá í net Golfhermir - Snóker - Getraunastarfsemi. Opnunartími: Virkadaga 13:00- 22:00 Helgar 10:00-22:00 • Kynningarverð á snóker kr. 500,- pr. klst. Vikuna 14.jan. - 21. jan. Opið fyrir alla. Enski b^ltinn og getraunir Laugardaginn 14. janúar fie/n útsending frá leik Man. City og Man. Utd. kl. 12:35 og kl. 15:00 Liverpool -Tottenham Á undan leik verður haldið púttmót frá kl. 71:00 -12:30. Byrjum á fullum krafti með getraunir - félagsnúmer GS 232 Boðið uppá pizzur frá Langbest og Coca Cola. Mætum öll og tippum Í2Í2K.d. Langbestú^þ G olfhermirinn lögð á að allir þátttakendur skemmtu sér vel og var ekki að sökum að spyrja. Sigursveinn Bjarni Jónsson, for- maður kd. Reynis, stóð við sitt er Sandgerðingar tryggðu sér sæti í 2. deildinni á komandi leik- tíð. Samkvæmt veðmáli við leik- menn hljóp hann sigurhringinn á hlébarðaskýlu um Gróttuvöll á Seltjarnarnesi við mikinn fögn- uð viðstaddra. Hvað gerir hann næsta haust? Vonandi verða Sandgerðingar aldrei íslands- meistarar... :RING ÁRSINS Magnús Þór Gunnarsson varð fyrir því óláni að nef- brotnaíúrslita- keppn inni á síðustu leiktíð. Hann skallaði hnéhinstindil- fætta Terrell Taylors í 8 liða úrslit- urn gegn Grindavík og þurfti því að notast við forláta plastgrímu í næstu leikjum. Gríman góða skekkti ekki mið fallbyssunnar sem lykilþáttur í þriðja Islands- meistaratitli Keflvíkinga í röð. [eautaskapur ársins Ingvi Rafn Guðmundsson varð fyrir fólskulegri árás í Eyjum þegar Páll „beinbrjótur” Hjarðar klippti hann niður í knattspyrnu- leik Keflavíkur og iBV s.l. surnar. Hann lék ekki meira með liði sínu á leiktíðinni en er á bata- vegi og kemur eflaust tvíefldur til leiks í vor. Vj«: EINN M1 gEai „EINNMESTU . SEMNRÐSTHEfUR 6* —1 GRV var það heillin. Sameinuð lið Grindavíkur, Reynis og Víðis náðu frábærum árangri í sumar og þar á meðal urðu stúlkurnar í 4. flokki Islandsmeistarar. Fróð- legt verður að sjá hvort framhald verður á samstarfinu og hvort uppskeran verði jafn ríkuleg. iRSINS Keflvíkingar lönduðu Islands- meistaratitlunum í karla- og kvennaflokki í körfuknattleik í vor. Þetta var þriðja árið í röð sem Keflavík vinnur tvöfalt og verður það afrek seint leikið eft- ir. mamti RSINS Guðjón Skúlason steig aftur út á parketið með Keflvíkingum síðla árs og mun eflaust láta að sér kveða eftir því sem líður á tímabilið. Stefán Bjarkason reim- aði einnig á sig skóna eftir 23 ára fjarveru og lék einn leik með Njarðvíkingum í Reykjanesmót- inu og gerði þar flautukörfu sem gaf 3 stig. Aron Ómarsson varð Islands- meistari í Baldursdeild (B-deild) Enduro - þolakstri 2005. Hann varð einnig í öðru sæti í Islands- meistarakeppninni í MX2 í motocrossi. Þessi ungi ökuþór á framtíðina fyrir sér og er von á fleiri viður- kenningum í safnið hans í náinni framtíð. lÍÞRÓTTAVIÐBURÐUR ÁRSINS Islandsmótið í höggleik fór fram á Hólmsvelli í Leiru og var mik- ið um að vera á Suðurnesjum þá daga er mótið stóð yfir. Haft var orð á því hve vel hefði heppnast að gera Leiruna klára fyrir mót- ið en röffið var þétt og refsaði mörgum. INGSMENN ÁRSINS Pumasveitin er orðin landsþekkt stuðningsmannasveit og hafa keppnislið Keflavíkur með ráð- um og dáð undanfarin misseri. Á Puma sveitin heiður skilið fyrir sitt framtak og vonandi að fleiri fylgi þeirra fordæmi. lEVRÓPUSKELFIR ÁRSINS Hörður Sveinsson var logandi heitur þegar Keflavík gjörsigraði Etzella á útivelli í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Hörður gerði 4 mörk í leiknum ytra og eitt í heimaleiknum og komst þar með í hóp ekki ómerkari mönnum en Hemma Gunn og fleiri góðum. lEllTTARAR ÁRSINS Hinir síungu púttarar í Pútt- klúbbi Suðurnesja voru iðnir við kolann á liðnu ári og héldu úti þróttmiklu starfi. Mót voru hald- in reglulega, jafnt innahúss sem utan og jafnan var mikil og góð þátttaka. I s 1 e n s k a landsliðið í körfuknattleik mátti sín lítils .;.ÍT gegn Kínverj- I' ‘ ■ é um með hinn 1 \ V tröllvaxna NBA leikmann Yao Ming innan- borðs í vináttuleikjum þjóðanna á haustmánuðum. Alls horfðu um 650 milljónir manna á seinni viðureign liðanna í beinni útsend- ingu í Kína og þar náðist eftir- minnileg mynd af Keflvíkingnum Arnari Frey gegn risanum. ÐIÁRSINS Hætt'að telja, þetta er Jói! Njarð- víkingurinn Jóhann Árni Ólafs- son setti óopinbert Islandsmet í yngriflokkum körfuboltans er hann gerði 89 stig í einum og sama leiknum í haust. Jóhann er einn efnilegasti leikmaður landsins og verðandi burðarás í Njarðvíkurliðinu sem og íslenska landsliðinu. tóSINS Það þarf ekki að fjölyrða um afrek ÍRB í sundlaugum hérlend- is og erlendis en síðastliðið ár syntu iðkendur iRB hreinlega í verðlaunum og viðurkenning- um. Einnig er vert að minnast á mikið og gott uppbyggingar- starf sem á sér stað hjá sunddeild Þróttar í Vogum. Íþróttafélagið NES hefur á að skipa einvala afreksfólki á flest- um sviðum íþrótta og unnust fjölmargir Islandsmeistaratitlar hjá félaginu í ár. Gaman verður að fylgjast með þessum sterka hópi íþróttamanna á nýja árinu. RSINS Jólasýning Fimleikadeildar Kefla- víkur verður umfangsmeiri með hverju árinu sem líður. Á síðasta ári var haldið upp á 20. starfsár deildarinnar með einni glæsileg- ustu sýningu í sögu deildarinnar. Hundruð manna lögðu leið sína í íþróttahúsið við Sunnubraut og fylgdust með tilþrifum iðk- endanna. 26 | VIKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR ÍKURFRÉTTIR Á NETINU vw.vf.is • LESTU IÐ DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.