Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.03.2006, Síða 12

Víkurfréttir - 16.03.2006, Síða 12
Bæjarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ vorið 2006: María Sigurðardóttir verður með skyggnilýsingarfund sunnudaginn 19. mars kl. 20:30 í Tjarnarsal Stóru Vogaskóla, Vogum, Vatnsleysuströnd. Húsið opnar kl. 20:00, aðgangseyrir við innganginn. Allir velkomnir. SCvenfélagið Fjóla Víkurbrauf 1 1 Sandgerðisbæ Símar: 423 7500 848 5366 v.pulsir mánudaga og miövikudaga kl.17:30 eöa kl.18:45 Jógatimar þriöjudaga og fimmtudaga kl.18:00 eöa kl.19:15 Námskeið hefjast 20.mars 6íómaskreytíngar * ©pi® mán. - fim. 10 -18 föst. - lau. 10 -19 sun. 12 -18 BÍémaknd Tjarnargötu 3 - Keflavík sími 421 3855 EB A-listinn boðar tveggja turna slag A-listinn í Reykjanesbæ boðar tveggja turna slag í komandi bæjarstjórnarkosn- ingum í Reykjanesbæ, en sameiginlegt framboð framsóknarmanna, Samfylkingar og óháðra opnaði kosningaskrifstofu sína á sunnudag að Hafnargötu 62, Glóðinni, auk þess sem fullskipaður listi var kynntur. I tilkynningu frá A-listanum segir að listanum sé sérstaklega stillt upp til að fella núverandi meiri- hluta Reykjanesbæjar, þar sem landslagið kalli á breytingar. Þau leggi sterka áherslu á að auka aðgengi kjósenda að stefnumótun bæjarfélagsins óháð flokkum og að bæjarbúar hafi raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á ákvörðunartöku er varða bæjarfélagið. Efstu sæti skipa að mestu reynt fólk í bæjarstjórn- málum, en athygli vekur að í 6. sæti, baráttusæt- inu, er fyrrverandi fjármálastjóri Reykjanesbæjar, Reynir Valbergsson sem starfaði hjá Reykjanesbæ í 9 ár. Þá skipar Eysteinn Jónsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra, 2. sætið á listanum og er hann einnig nýr í bæjarpólitíkinni í Reykjanesbæ. Listinn er svohljóðandi: 1. Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunar- mannafélags Suðurnesja og bæjarfulltrúi 2. Eysteinn Jónsson, aðstoðarmaður ráðherra 3. Sveindís Valdimarsdóttir, kennari og bæjarfulitrúi 4. Ólafur Thordersen, framkvæmda- stjóri og bæjarfulltrúi 5. Guðný Kristjánsdóttir, stuðningsfulltrúi 6. Reynir Valbergsson, fjármálastjóri 7. Lilja Samúelsdóttir, rekstrarráðgjafi 8. Eysteinn Eyjólfsson, kennari 9. Brynja Lind Sævarsdóttir, formaður FUF (Félags Ungra Framsóknarmanna) 10. Arngrímur Guðmundsson, yfireftirlitsmaður öryggissviðs 11. Guðbjörg Jónatansdóttir, framhaldsskólakennari 12. Brynjar Harðarson, skólasafnvörður 13. Magnús Þórisson, matreiðslumaður 14. Auður Sigurðardóttir, verkstjóri 15. Arnar Magnússon, nemi og formaður NFS (Nemendafélags Fjölbrautarskóla Suðurnesja) 16. Hafdís Helga Þorvaldsdóttir, leikskólakennari 17. Steinþór Jóhannsson, framkvæmdastjóri 18. Oddný Mattadóttir, húsmóðir 19. Eðvarð Þór Eðvarðsson, kennari 20. Hjálmar Árnason, alþingismaður 21. Þórdís Þormóðsdóttir, félagsráðgjafi 22. Kjartan Már Kjartansson, framkvæmdastjóri Áhugasömum er bent á að skrifstofan er opin alla virka daga frá 17 til 22 og á laugardögum frá 10 til 12. Eysteinn Jónsson oddviti Fram- sóknarmanna Síðastliðinn sunnudag var framboðslisti A- listans samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á fjölmennum fulltrúaráðs- fundi Framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ. A-listinn er sameiginlegt framboð Framsóknar- flokks, Samfylkingarinnar og óflokksbundinna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara í Iok mai á þessu ári. Oddviti Framsóknarmanna, Kjartan Már Kjart- ansson, gaf ekki kost á sér í eitt af efstu sætum listans vegna breytinga og nýrra verkefna sem Kjartan tók við í störfum sínum fyrir Latabæ. Það var því ljóst að tillaga yrði gerð um nýjan oddvita Framsólaiarflokksins í Reykjanesbæ. Uppstillingar- nefnd gerði tillögu um að efsti framsóluiarmaður á lista hins sameiginlega framboðs yrði Eysteinn Jónsson, aðstoðarmaður ráðherra. í Reykjanesbæ „Uppstillinganefnd leitaði til mín og bað mig um að taka 2. sæti á sameiginlegum lista sem jafnframt þýddi að ég yrði nýr oddviti Framsókn- armanna í Reykjanesbæ. Ég samþykkti þetta og ákvað að takast á við það verkefni sem mér var boðið, en er jafnframt afar þakklátur fyrir það traust sem mér sýnt með þessu. A-listinn er skip- aður breiðum hópi fólks með sterka skírskotun til samfélagsins og tel ég að uppstillingarnefndin hafi leyst sitt verkefni afar farsællega. Ég hef átt langt og gott samstarf með Kjartani Má og er afar þakklátur fyrir þann tíma og störf hans í þágu okkar bæjarfélags. Kjartan er duglegur, klár og útsjónarsamur einstaklingur og mun hans krafta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar verða saknað,” sagði Eysteinn í samtali við Víkurfréttir. VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 12 VIKURFRÉTTIR 11. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.