Víkurfréttir - 16.03.2006, Blaðsíða 26
Glæsilegt Samkaupsmot
Mig langar að koma á
framfæri þökkum
_________til allra þeirra sem
stóðu að und-
irbúningi og
framkvæmd
Sam kaups-
móts ins í
körfu bolta
sem fram fór í
Reykjanesbæ
helgina 11. -
12. mars sl.
Sérstakar þakkir færi ég for-
stöðumönnum og starfsfólki
íþróttamannvirkja bæjarins
svo og forsvarsmönnum ung-
lingaráða körfuknattleiksdeilda
UMFN og Keflavíkur, sem störf-
uðu saman að þessu móti og
sáu til þess að framkvæmdin
var íþróttafélögunum og bæjar-
félaginu til mikils sóma.
Alls tóku um 1000 börn þátt
í mótinu ásamt fjölskyldum
sínum víðsvegar að af landinu
og er mótið það stærsta sem
haldið er á hverju ári.
Það er ljóst að til þess að slík
framkvæmd gangi upp þarf
góðvilja og samstarf margra að-
ila og má þar nefna Þjónustu-
miðstöð Reykjanesbæjar og
starfsfólk grunnskólanna þar
sem keppendur, þjálfarar og for-
eldrar gistu, en að auki lögðu
margir hönd á plóginn sem ekki
er hægt að telja upp hér.
Síðast en ekki síst má ekki
gleyma foreldrum barnanna
sem tóku virkan þátt í leik
þeirra á þessu móti, hvort sem
þeir voru í hlutverkum liðs-
stjóra, dómara eða áhorfenda.
Það var unun að horfa á loka-
athöfn mótsins og sjá hvernig
gleðin skein úr andlitum kepp-
enda sem allir fengu viðurkenn-
ingapeninga og gjafir fyrir þátt-
tökuna.
Svo glumdi í húsinu þegar allir
krakkarnir kölluðu einum rómi:
TAKK FYRIR OKKUR!
Mig langar að taka undir þessi
orð og hlakka til að sjá ykkur
öll að ári.
Stefán Bjarkason
Framkvæmdastjóri
Menningar,- íþrótta- og tóm-
stundasviðs
Reykjanesbæjar
Framtíðarleikmenn
berjast um boltann.
VF-sport
molar
Albert Sævarsson til
Njarðvíkur
MARKVÖRÐURINN Albert
Sævarson frá Grindavík er
genginn í raðir Njarðvíkinga
og mun standa á milli stang-
anna hjá þeim í sumar þar
sem stefnan er klárlega sett á
sæti í 1. deild.
Logi með 28 stig um
helgina
LOGI GUNNARSSON
landsliðmaður í körfuknatt-
leik og leikmaður Bayreuth
í Þýskalandi, gerir það ekki
endasleppt þessa dagana en
um helgina gerði hann 28
stig í sigri Bayreuth á Crails-
heim Merlins 74 - 89. Logi
var stigahæsti maður liðsins
og lék í 35 mínútur en auka-
lega við stigin 28 tók hann
1 frákast og stal 4 boltum.
Logi hefur því gert alls 105 í
síðustu þremur leikjum.
Skrifuðu undir hjá
Keflavík
STÓRT SKREF í framfara-
átt var stigið 4. mars s.l.
þegar Keflavík gerði leik-
mannasamninga við fram-
tíðarleikmenn Keflavíkur í
kvennaknattspyrnu. Um er
að ræða 8 leikmenn á fyrsta
ári í 2. flokki, fæddar 1989.
Leikmennirnir sem um
ræðir eru: Birna Marín Að-
alsteinsdóttir, Karen Sævars-
dóttir, Karen Herjólfsdóttir,
Sonja Ósk Sverrisdóttir,
Hildur Haraldsdóttir, Anna
Rún Jóhannsdóttir, Eva Krist-
insdóttir og Ingey Arna Sig-
urðardóttir.
Allt eru þetta leikmenn sem
hafa æft með meistaraflokki
í vetur og sumar hverjar
einnig á síðasta ári. Er mikil
ánægja meðal þeirra sem
standa að kvennaknattspyrn-
unni í Keflavík með þennan
áfanga þar sem þetta skref
er það fyrsta í áfanga þeim
að tryggja áframhaldandi 2.
flokks og meistaraflokksstarf
hjá Keflavík í framtíðinni.
I beinu framhaldi af þessum
stúlkum koma margar efni-
legar stelpur til með að stíga
sömu spor og þessir efnilegu
leikmenn. Þessu fylgir líka
sú vinna hjá þessum leik-
mönnum að stunda æfmgar
af mikilli elju.
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU -www.vf.is- LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!
26