Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.03.2006, Page 15

Víkurfréttir - 16.03.2006, Page 15
Frá vettvangi umferðarslyssins. Umferðarslys í slæmri færð í Hvassahrauni Umferðarslys varð skömmu fyrir mið- nætti á föstudagskvöld á mislægum gatnamótum á Reykjanesbraut í Hvassa- hrauni. Þar missti ökumaður stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á vegriði og skemmdist talsvert. Lögreglubílar úr Hafnarfirði og Keflavík voru sendir á vettvang, auk sjúkrabíla. Ekki munu hafa orðið alvarleg meiðsl á fólki. Akstursskilyrði á Reykjanes- braut voru erfið þegar slysið átti sér stað. Talsvert hafði snjóað og var nokkur snjór á brautinni þegar slysið átti sér stað. Umferð var beint niður fyrir mislægu gatnamótin á meðan lögregla at- hafnaði sig á vettvangi slyssins. | W FEB Á SUÐURNESJUM Aðalfundur félagsins verður haldinn í Selinu, Vallarbraut 4, Reykjanesbæ, laugardaginn 25. mars kl. 14.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Gestur fundarins er Karl Steinar Guðnason, framkvæmdastjóri Tryggingastofnunar ríkisins. Kaffiveitingar í boði Sparisjóðsins ÍKefiavíkur. Stjórn FEB á Suðurnesjum Slökkviliösmaöur kemur út af hótelinu eftir að slökkvistarfi lauk. Eldur á Flughóteli í Keflavík Eldur kom upp í skreyt- ingu á veisluborði á Flughóteli í Keflavík á föstudagskvöld. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað á staðinn, ásamt lögregl- unni í Keflavík. Starfsmaður hótelsins hljóp með brennandi skreytinguna inn á eitt herbergi hótelsins og henti henni þar í sturtuna og lokaði á eftir sér hurðinni eftir að hafa talið sig hafa slökkt í skreytingunni. Slökkviliðið var því eingöngu kallað til að reykræsta. Þegar slökkviliðs- menn mættu á staðinn kom hins vegar í ljós að enn logaði eldur sem hafði læst sig í handklæði og vegg á baðherberginu. Eldurinn var slökktur og hót- elið reykræst. Enginn þurfti að yfirgefa hótelið vegna atviks- ins og veislan, sem brennandi skreytingin tilheyrði, var færð til innan hótelsins. Lögreglan í Keflavík fer með rannsókn málsins. STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐiÐ Á SUÐURNESJUM VÍKURFRÉTTiR I FIMMTUDAGURINN16. MARS2006 15

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.