Víkurfréttir - 30.03.2006, Blaðsíða 14
jfc* Jjt* * *fc jfc * ^
‘P’ið ítöfum aCCtfyrir
femdnguna þína
“Kfirti, servíettur, 6fómas£reytittgar,
6orðskreytingar, 6fóm og svo miftið úrvaC
faCCegrafermittgargjafa
Undirbúningur fyrir
fermingarveislu Þor-
steins Rúnars Stein-
þórssonar, Fífumóa 5a í Njarð-
vik, stendur nú sem hæst. Þor-
steinn Rúnar ferinist í Keflavík-
urkirkju nk. sunnudag, 2. apríl
kl. 14:00. Hann féll hins vegar
út af listum kirkjunnar og nafn
hans því hvorki í Víkurfréttum
í síðustu viku, né í Fermingar-
barnablaðinu.
Þorsteinn Rúnar heldur því
veislu eins og önnur fermingar-
börn sem fermast á sunnudag
og vonast til að sjá þá sem boðið
hefur verið til veislunnar og eins
geta aðrir sem vilja senda strák
fermingarskeyti látið stíla það á
Fífumóa 5a í Njarðvík.
Þorsteinn
fermist um
helgina
MADE IN USA
propacpetfood.com
frprern/u
;
jffll
IHmhi H ■MdbL.
1 ffm 1 ; 'fI'
Fermingarundir-
búningurinn að hœtti Axels
Jónssonar veitingamanns
Axel Jónsson er okkur Suðurnesjamönnunum vel kunn-
ugur. Hann er margrómaður veitingamaður og er mikill
viskubrunnur þegar kemur að matargerð og undirbún-
ingi stórra veislna, hátíðarhalda og matarboða.
Við hjá Víkurfréttum vildum forvitnast aðeins
um hvort einhverjar tískusveiflur væru líka hvað
varðar matarborðin í fermingarveislunum.
Undanfarin ár hafa orðið þó nokkrar breytingar
á fermingarundirbúningi hvað varðar veisluhöld
að sögn Axels Jónssonar veitingamanns en Axel
hefur verið í þessum undirbúningi síðan 1978 eða
i s.l. 28 ár.
„Fyrstu árin voru þetta þessi hefðbundnu köldu borð með tilheyr-
andi meðlæti en einnig alltaf eitthvað um kaffiveislur. Það var meira
um það hér áður fyrr að fólk hélt veislurnar heima hjá sér en núna
eru allir veislusalir í bænum upppantaðir með nokkurra ára fyrir-
vara, þrátt fyrir fjölmörg glæsiheimilin.
í dag er meira um létta rétti og það hefur líka aukist að halda veislur
í hádeginu strax eftir ferminguna í kirkjunni, einnig kemur fyrir að
fólk haldi veisluna daginn áður en fermt er, þá aðallega vegna skorts
á veislusölum.
Einnig er mikið um að húsmæður og „húsbændur" geri veisluna
sjálf og fái þá ráðgjöf hjá okkur varðandi magn og fl.
Aðalatriðið finnst mér þó það að barnið fermist og sé ánægt með
það, og það fái að sjá sína nánustu fjölskyldu, því það er allt of
sjaidan sem fjölskyldur hittast við gleðileg tækifæri, og sem betur
fer eru ættarmótin alltaf að verða vinsælli og vinsælli.
Að sjálfsögðu tökum við að okkur að skipuleggja ættarmót eins og
fermingarveislur sem og aðrar samkomur.
Gangi okkur öllum vel á fermingardaginn'.
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLECA!
14 IVÍKURFRÉTTIR : 13.TÖLUBLAÐ : 27. ÁRGANGUR