Víkurfréttir - 24.05.2006, Blaðsíða 2
í hverju liggur munurinn?
í byrjun kjörtímabilsins seldi D-listinn allar
fasteignir bæjarins fyrir þrjá og hálfan milljarð
og nýtti stærstan hluta andvirðisins í rekstur,
Reykjanesbær stendur eftir eignalítill og skuldum
vafinn.
Auknar álögur D-listans á fjölskyldur birtast í
hæstu I e i ks kó I ag j ö I d u m í viðmiðunar-
sveitarfélögum, um 33% hærri en í Hafnarfirði
og 128% hærri en í Reykjavík þegar kjör
námsmanna og einstæðra foreldra eru skoðuð.
D-listinn hefur staðið að niðurskurði á framlögum
til barna hjá dagmæðrum, verulegum niðurskurði
á framlögum til Vinnuskólans og af stærstu
sveitarfélögunum sker Reykjanesbær sig eitt úr
um að niðurgreiða ekki kostnað foreldra vegna
þátttöku barna í íþróttastarfi - enda þarf D-listinn
að eiga fyrir húsaleigu sem er um 474 milljónir
á ári.
Samkvæmt úttekt ASÍ hafa fasteignagjöld
í Reykjanesbæ hækkað mest allra sveitarfélaga
á kjörtímabilinu eða um 61%. Á sama tíma
hækkuðu þau t.d. um 15% í Kópavogi. Rétt fyrir
jól 2005 felldi D-listinn tillögu Samfylkingar um
lækkun fasteignaskatta á elli- og örorkuþega.
D-listinn byrjaði kjörtímabilið á að leggja niður
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofuna og einblíndi
á stálpípuverksmiðju sem aldrei skilaði sér. Eftir
stendur 400 milljóna króna framkvæmd við lóð
verksmiðjunnar sem skilar engum tekjum.
1
2
3
4
A-listinn mun rifta óhagstæðum leigusamningum
við Fasteign hf. og kaupa aftur fasteignir
bæjarins. Þannig aukast ráðstöfunartekjur
bæjarins um 180 milljónir á ári sem A-listinn
hyggst verja til lækkunar útgjalda, bæta
þjónustuna við íbúa Reykjanesbæjar og halda
áfram uppbyggingu ( sveitarfélaginu. A-listinn
er eina framboðið sem sýnir fram á hvernig
fjármagna á loforðin.
A-listinn mun vinna gegn auknum álögum
D-listans á barnafjölskyldur á kjörtímabilinu með
því að lækka leikskólagjöld um helming og sjá til
þess að kostnaður foreldra hjá dagforeldrum verði
sá sami og á leikskólum.
A-listinn mun bjóða hverju barni á aldrinum 6-16
ára þátttökukort að andvirði kr. 25.000 sem nýta
má í íþróttum, tómstunda- eða menningarstarfi.
A-listinn mun lækka fasteignagjöld ellilífeyrisþega
og öryrkja verulega og miða þau við tekjur.
A-listinn hafnar einföldum skyndilausnum
D-listans í atvinnumálum og mun í staðinn fjölga
störfum á svæðinu með því að koma á fót
Nýsköpunarskrifstofu Reykjanesbæjar sem hafi
2,3 milljarða í stofnfé, frumkvöðlasjóði sem
auðveldi einstaklingum og fyrirtækjum aðgang
að nauðsynlegu áhættufjármagni til nýsköpunar.
Kynntu þér stefnu okkar á www.a-listinn.is