Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.05.2006, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 24.05.2006, Blaðsíða 4
* Fjölbrautaskóli Suðurnesja: m. CMHIÞ @D[}MD IstöfnímaffiSmlafSfhririniuíffikkVafhfint airiÍmfiflolSmlSHnSI VíðjlökTathafnarinnartkvaddiskólameistari.Oddnviu dóttuSísjáTmýndíaðjneðan) og KristjánfJohannesson ■■■■ijJaiuMBáB 'A ■■ «'■ tiilgMr ■ v* osjMn látaTnubæðiEfStörfum eftir að hafa starfað við ■mhMÍmhk^: m\ -v Æ—m. 'wbp-v «m ðSí?[p0D fetáj^jsTbddnVifákk'afhent qullmerki JKristján fékk silfurmerki.1 ðSa&iMGg 80 nemar brautskráðir frá FS > ttatíu nemar voru brautskráðir frá Fjöl- brautaskóla Suður- nesja á vorönn 2006 sem var slitið á sal skólans á laugardag. Að þessu sinni útskrifuðust 44 stúdentar, 11 sjúkraliðar, 7 brautskráðust af starfsbraut, 6 úr verknámi og 12 af flugþjón- ustubraut. Nokkrir nemendur brautskráðust af tveimur námsbrautum. Konur voru 49 en karlar 31. Alls komu 49 úr Reykjanesbæ, 12 úr Grinda- vík, 6 komu úr Sandgerði og Garði, 3 úr Vogum og einn úr Garðabæ, Kópavogi, Neskaup- stað og Stykkishólmi. Við athöfnina voru veittar viður- kenningar fyrir góðan námsár- angur. Arnar Magnússon fékk viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda. Erlingur Þorsteins- son og Ómar Ragnarsson fengu viðurkenningu fyrir góðan ár- angur í tölvugreinum, Jóhanna Marsibil Pálsdóttir og Marta Sigurðardóttir fyrir árangur sinn í frönsku og Pálmi Steinar Guðmundsson fékk viðurkenn- ingu fyrir góðan árangur í sér- greinum húsasmíða. Nemendur starfsbrautar fengu viðurkenn- ingar fyrir góðan árangur; Árni Þór Rafnsson fyrir stærðfræði, Bryndís Brynjólfsdóttir fyrir tölvugreinar, Davíð Már Guð- mundsson fyrir myndlist og Sig- ríður Karen Ásgeirsdóttir fyrir textíl en Sigríður fékk einnig viðurkenningu fyrir framúr- skarandi árangur á starfsbraut. Linda Rós Björgvinsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan ár- angur í bókfærslu og þýsku og Bergrún Snæbjörnsdóttir fyrir árangur sinn í sögu, ensku og spænsku. Eva Sólveig Þórðar- dóttir fékk viðurkenningu fyrir spænsku, myndlist og textíl- og fatahönnun en við útskriftina klæddist hún kjól sem hún hannaði og saumaði. Haraldur Haraldsson fékk gjöf frá danska menntamálaráðuneytinu fyrir góðan árangur í dönsku en hann fékk einnig viðurkenn- ingar fyrir árangur sinn í eðlis- og efnafræði, ensku og þýsku. Að venju veitti Sparisjóðurinn í Keflavík nemendum skólans við- urkenningar fyrir góðan náms- árangur og afhenti Baldur Þórir Guðmundsson þær fyrir hönd Sparisjóðsins. Að þessu sinni hlaut Haraldur Haraldsson við- urkenningu fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi og hann hlaut einnig viðurkenningar fyrir ár- angur sinn í tungumálum, stærð- fræði og raungreinum. Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags Islands, afhenti skólanum gjöf til minningar um Jón Rúnar Árnason og Vil- borgu Jónsdóttur sem létust af slysförum 30. nóvember 2000. Gjöfin er kennsluforritið Festo fyrir vökva- og loftstýrikerfi og kemur að góðum notum við kennslu á vélstjórnarbraut skól- ans. Jón Rúnar var um árabil formaður Vélstjórafélags Suður- nesja og síðar stjórnarmaður hjá Vélstjórafélagi íslands en það voru þessi félög sem færðu skól- anum þessa veglegu gjöf. Full- trúar Suðurnesjadeildar Sjúkra- liðafélagsins gáfu sjúkraíiðum blóm og gjafir við útskriftina en nemendur afhentu deildinni gjöf að athöfn lokinni og kenn- urum sínum blóm. Við lok athafnarinnar kvaddi skólameistari Oddnýju Harðar- dóttur og Kristján Jóhannesson en þau láta nú bæði af störfum eftir að hafa starfað við skólann um árabil. Voru þeim færðar gjafir af því tilefni og þökkuð vel unnin störf í þágu skólans. Oddný fékk afhent gullmerki skólans og Kristján fékk silfur- merki. Texti: www.fss.is MUNDI Þvtlíkur lúx... að vera dúx! Haraldur Haraldsson, 18 ára Njarðvíkingur, var dúx Fjöl- brautaskóla Suðurnesja á lið- inni önn. Hann fór heim hlaðinn af verðlaunum eftir útskriftarathöfnina um helgina því hann hlaut viðurkenn- ingar fyrir stærðfræði, efnafræði, eðlisfræði, dönsku, ensku og þýsku auk þess að vera með hæstu meðal- einkunn. Haraldur kláraði skólann á þremur árum, en hann verður 19 ára í september. Við hringdum í Harald og hittum á hann í vinnunni. Hann vinnur í slætt- inum hjá Nesprýði og var þar líka í fyrrasumar. Fljótlega þegar hann tók að svara spurningum þá fóru vinnufélagar hans að grínast í honum fyrir að vera í viðtali. Hann sagðist ekki vera kominn með viðurnefni enn og tók gríninu vel. Hann segir að leyndardómurinn að góðum einkunnum sé einfaldur, mæta í tíma, skila verkefnum og læra fyrir próf. Stefnan hjá Haraldi eftir sumarið er að fara til Bandaríkjanna í Wesleyan háskólann í Norður-Karólínu fylki þar sem hann fer í fornám að Iæknisfræði. Hann fær myndarlega styrki frá skól- anum í ljósi glæsilegs námsárangurs en einnig vegna knattspyrnukunnáttu því Haraldur mun leika með liði Wesleyan. Það var þjálfari liðsins sem uppgötvaði Harald þegar hann kom í heimsókn til íslands og bauð honum að koma í nám við skólann. Framtíðin er því björt hjá þessum unga efnilega manni. VfKURFRÉTTIR i 21.TÖLUBLAÐ 27. ARGANGUR VÍKURFRÉTTJR Á NETiNU •www.vf.is* LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.