Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.08.2006, Page 23

Víkurfréttir - 10.08.2006, Page 23
Kaupskrárnefnd Varnarsvæða: Rýr uppskera eftir mikla fýrirhöfn Kaupskrárnefnd varnar- svæða hefur úrskurðað að laun félagsmanna í VSFK, sem starfa í mötu- neyti, ræstingu og sambæri- legum störfum á varnarsvæð- inu, skuli hækka um 0,2% frá fyrsta launatímabili í ágúst 2006. Á sama tíma skulu þeir fá greidda sérstaka eingreiðslu upp á 2500 kr. Kristján Gunn- arsson, formaður VSFK, segir þessa niðurstöðu mikil von- brigði. „Þetta mál er búið að vera í vinnslu síðan í mars með miklum bréfaskriftum, funda- höldum og endalausum fyr- irspurnum, vinnu við að gera paraðan samanburð á launum og hvað eina. Kaupskrárnefnd er búin reikna þetta út síðan í mars og loksins þegar hún kemst að niðurstöðu, er hún á þennan veg. Heldur var rýr upp- skeran eftir alla þessa fyrirhöfn svo ekki sé nú meira sagt,“ sagði Kristján Gunnarsson í samtali við VF. Kristján segir þessa niðurstöðu mikil vonbrigði ekki síst í ljósi þess að á sama tíma varð 8% launaskrið á almennum vinnumarkaði, samkvæmt nið- urstöðum Kjararannsóknar- nefndar. Aðspurður segir Krist- ján að reglum samkvæmt sé ekkert frekar hægt að aðhafast í málinu. Niðurstöðu Kaupskrárnefndar er hægt að nálgast í heild sinni á vef VSFK á vefslóðinni www. vsfkás Askorun og viðvörun vegna hraðaksturs í Sandgerði Mikil umræða er í gangi um hraðakstur í bæj- arfélaginu og er sú skoðun áber- andi að bæjar- yfirvöld þurfi að bregðast við sem og lög- regluyfirvöld á staðnum. Rétt er og satt að betra væri ef lögreglan yrði hér sýnilegri, en hún er efalítið að sinna sínum verkefnum í samræmi við fjármagn og mannafla. Bæjaryfirvöld hafa heldur ekki brugðist sínum skyldum er þetta mál varðar. Hámarkshraði í bæjarfélaginu var lækkaður niður í 30 km á síðasta ári og aðeins Standgatan hefur 50 km hámarkshraða. Hér verður að koma til samtaka- máttur samfélagsins og hugar- farsbreyting. Hraðanum verður að ná niður og við verðum að leggjast á eitt er það mál varðar. íbúar verða að líta í eigin barm og sjá til þess að ganga á undan með góðu fordæmi - nú er komið að okkur bæjarbúum að fara að lögum. Hraðahindrun í einni götu leysir ekki vandann. Hindrunin getur haft áhrif á þeim stað þar sem hún er sett en umferðarhraðinn færist að- eins til með afleiðingum sem við viljum ekki horfast í augu við. En ef heldur fram sem horfir þá eigum við eftir að upplifa stór- slys í bæjarfélaginu. Ef hinsvegar íbúar telja nauð- synlegt að fá hraðahindrun til að stöðva lögbrot þá þarf slík umsókn að koma fram frá meiri- hluta íbúa viðkomandi götu. Æskilegt væri að í slíkri umsókn kæmi fram hvar íbúarnir telji að hún komi að bestu notum og að viðkomandi lóðarhafi sætti sig við slíka hindrun fyrir framan sitt hús. Umsóknin er síðan tekin til meðferðar hjá nefnd á vegum bæjarfélagsins sem fjallar um umferðarmál. Umræða er til alls fyrst en við verðum að koma tillögum til bæjaryfirvalda með formlegum hætti í nútímasamfélagi. Það er markmið bæjarstjórnar að auka íbúalýðræðið. Við skulum hinsvegar takast á við hinn raunverulega vanda sem er, að það er brot á lögum að virða ekki hámarkshraðabæj- arfélagsins. Sigurður Valur Asbjarnarson, bœjarstjóri STÆRSTA FRÉTTA- OG AllGLÝSiNGABLAÐiÐ Á SUÐURNESJUM STUÐLABERG FASTEIGNASALA Guðlaugur H. Guðlaugsson löggiltur fasteigna- og skipasali Sölumenn: Halldór Magnússon og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson Hafnargötu 29,2. hæð, Keflavík • Sími 420 4000 • fax 420 4009 • sfudlaberg.is Njarðvíkurbraut 10, Njarðvík. Um 119m2 einbýli á einni hæð ásamt 50m2 bílskúr. í húsinu eru 3 rúmgóð svefnherbergi. Eignin býður upp á mikla möguleika. Háseyla 33, Njarðvík. Fallegt 116m2 einbýli á einni hæð ásamt bílskúrsgrunni. Fjögur góð herbergi em í húsinu og skápar í þremur. Parket er á stofu. Falleg eign á góðum stað. Týsvellir 8, Keflavík. Rúmlega 160m2. Sex herbergja einbýlishús ásamt 36m2 bílskúr. Rúmgóð eign í alla staði, ný eldhúsinnrétting ásamt tækjum, parket á flestum gólfum. Frábær staðsetning innst í bomgötu. Kjarrmói 4 Njarðvík. Um 160 m2 fimm herbergja parhús á tveimur hæðum ásamt ca. 25m2 bílskúr. Góðar innréttingar, parket og flísar á öllum gólfum. Glæsileg eign í alla staði á mjög góðum stað. Melavegur lb, Njarðvík Glæsilegt nýtt 4ra herb. raðhús á einni hæð. Eignin er innréttuð á afar skemmtilegan máta. Innkeyrsla er stipluð með rauðum lit, timbur verönd og glæsilegur garður er við húsið. Heiðarendi 4, Keflavík Glæsileg ný 4ra herbergja 120m2 íbúð á 2. hæð með sérinngangi. Allar innréttingar úr eik, granítflísar á gólfi og olíuborið eikarparket. Lækjarmót 17, Sandgerði. Tæplega 137m2 fimm herb nýtt parhús ásamt 28m2 innbyggðum bílskúr. Húsið mun skilast fullklárað að utan sem innan, hellulögð stétt og tyrfð lóð. Laust fljótlega. Faxabraut 37-C, Keflavík. Einkar glæsilegt 132m2 raðhús á tveimur hæðum ásamt 35m2 bílskúr. Ný vegleg innrétting er í eldhúsi og allir skápar eru nýjir sem og allar innihurðir. Nýjir gluggar og búið er að endumýja allar lagnir í húsinu. Forhitari á miðstöð. Hellulagðar stéttar með hitalögn. VÍKURFRÉTTIR : FIMMTUDAGURINN10. ÁGÚST2006| 23

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.