Fréttablaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 26
Ég hélt að læknirinn væri að grínast og trúði varla eigin augum þótt ég sæi sjálf þrjú kríli á sónarskjánum,“ segir Val- borg sem átti í mesta basli með að halda andlitinu á meðan hún var í sónarnum. „Um leið og ég kom út af sjúkrahúsinu sprakk ég úr hlátri, alein. Ég hló endalaust. Ég hafði þrisvar farið í sónar áður og alltaf sást einn hjartsláttur. Þrátt fyrir það spurði ég alltaf hvort fóstrið væri örugglega bara eitt, og jú, það var pottþétt bara eitt. Innri tilfinning sagði mér þó annað og þess vegna þótti mér svo fyndið og skondið þegar hið rétta kom í ljós.“ Valborg hefur alltaf verið viss um að móðurhlutverkið ætti vel við hana. Árið 2012, þá 25 ára, fékk hún hugdettu um að eignast barn ein, með aðstoð tæknifrjóvg- unar, en taldi skynsamlegt að hika aðeins með framkvæmdina. „Ég vildi bíða og sjá hvort ég áttaði mig á hvað hugmyndin væri klikkuð og hvort ég hætti ekki við. Það gerðist ekki og með tímanum varð ég æ vissari um að þetta væri það rétta. Af hverju, veit ég ekki. Þetta var bara týpískt ég.“ Meðganga Valborgar með þrí- bura í maganum gekk furðu vel þótt hún hafi vissulega reynt mikið á líkamann. „Það er ótrúleg upplifun og kraftaverk að fá að ganga með öll þessi börn og að það gangi svona vel. Að finna þau öll sparka, hvert á sínum stað, var yndislegt og ég fann fljótt hvað þau voru ólíkir karakterar. Þau komu svo í heim- inn eftir 33 vikna meðgöngu og voru 5, 6 og 8 merkur. Börnin voru óskaplega dugleg, voru bara í tvo daga í hitakassa á vökudeildinni þar sem við vorum í þrjár vikur.“ Fæddi fyrst andvana son Það var sannkölluð hamingju- stund þegar Valborg fékk hvít- voðungana sína þrjá í fangið þann 19. janúar síðastliðinn. „Það var ótrúleg tilfinning og mjög langþráð að heyra grát lifandi barna þegar þau komu í heiminn. Mér var mjög létt að þau væru loks komin öll lifandi. Börnin voru tekin með keisara og fóru beint á vökudeildina. Ég fékk þau svo í fangið nokkrum tímum síðar, sem var auðvitað besta tilfinning í heimi. Ég var lengi að trúa því að ég ætti þau í alvörunni öll,“ segir Valborg og brosir sæl að minn- ingunni. Valborg varð fyrst barnshafandi eftir tæknifrjóvgun árið 2014 en í desember sama ár fæddist dreng- urinn Pétur Emanúel andvana eftir tæplega 30 vikna meðgöngu. „Að missa barnið sitt er lífs- reynsla sem breytir manni fyrir lífstíð og ætti ekkert foreldri að þurfa að jarða barnið sitt. Ég vissi þó að ég ætlaði ekki að gefast upp og ákvað strax að leggja mig alla fram til þess að Pétur Emanúel fengi systkini sem vonandi fengi að lifa. Þessi erfiða reynsla setti mikið mark á meðgönguna núna og ég var aldrei róleg. Ég held að ég hafi andað eðlilega í fyrsta skipti í marga mánuði þegar ég heyrði þriðja barnið gráta á skurðstof- unni. Þá vissi ég að ég færi heim af sjúkrahúsinu með lifandi barn, og meira að segja þrjú,“ segir Valborg, þakklát læknum og ljósmæðrum Landspítala; og sannfærð um að hún hefði aldrei komist í gegnum þríburameðgönguna ef ekki hefði verið fyrir þétt eftirlit þeirra og stuðning. Ólíkir einstaklingar Tilvera Valborgar tók stakka- skiptum við að fá þrjú ungbörn inn á heimilið. Hún er Akureyringur og hafði undanfarin þrettán ár starfað í Sumarbúðum KFUM og KFUK í Vatnaskógi. „Það breyttist auðvitað allt við daglegt líf, líkt og gerir hjá öllum foreldrum með tilkomu barns. Hér Þríburarnir Bergdís Kara, Brynjar Kári og Bríet Karítas. Systurnar eru eineggja og segir Valborg þær geta verið ansi líkar í útliti þótt henni finnist þær líka afar ólíkar. „Ef ég er að flýta mér get ég alveg ruglast á þeim en ég er nú fljót að átta mig!“ segir hún og hlær. MYND/ AUÐUNN NÍELSSON Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Heilsu Qigong 5 helstu ástæður þess að iðka qigong Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, sem merkir “lífskraftur”, og gong, sem merkir “nákvæmar æfingar”. Skráning í síma 553 8282 1. Aukin vellíðan og lífsþróttur Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi, jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról. 2. Dregur úr þrálátum sársauka Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt. 3. Betra blóðstreymi Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið súrefnisflæði í líkamanum. 4. Dregur úr spennu Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi. Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð. 5. Byggir upp sjálfsvirðingu Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega. Þú finnur okkur á Facebook vakna allir brosandi um klukkan sex á morgnana og þá förum við fram úr og hefjum daginn. Börnin vaka yfirleitt í tvo til þrjá tíma áður en þau taka fyrsta lúr dagsins. Þau sofa mismikið enda mjög ólíkir einstaklingar þótt þau séu þrí- burar. Hér eru matartímar á þriggja tíma fresti og leik- eða svefntími þess á milli. Það er aldrei dauður tími og alltaf líf og fjör allan daginn,“ segir Valborg og kann því svo sannarlega vel. „Það gengur bara vel að vera ein- stæð móðir þriggja ungbarna. Ég reyni allavega mitt besta og held að mér farist þetta bara nokkuð vel úr hendi. Vitaskuld er verkefnið krefj- andi en jafnframt svo skemmtilegt. Sem betur fer erum við heppin með fólkið okkar og eru foreldrar mínir og móðursystur duglegar að hjálpa til. Fyrir það erum við mjög þakklát; hér er alltaf hægt að nota auka hendur.“ Móðir Valborgar sér til þess að dóttir hennar fái stundum náðar- stund. „Eðlilega hef ég lítinn tíma fyrir sjálfa mig sem stendur, en mamma kemur stundum og fer með börnin í gönguferð svo að ég geti kannski sofið í tvo tíma án truflunar, skroppið í búðina eða sinnt ein- hverju sem þarf að græja.“ Valborg verður í fæðingarorlofi í sextán mánuði en fæðingarorlof lengist um þrjá mánuði fyrir hvert barn og þegar börn eru getin með aðstoð gjafa fær móðirin rétt til að nota mánuðina sem faðirinn annars fengi. Þá á móðir, sem á barn sitt ein, rétt á barnalífeyri sem greiddur er af ríkinu og er upp- hæðin sú sama og ef um meðlag væri að ræða. „Því fylgir auðvitað mikill kostn- aður að eignast barn. Við fengum bílstólana og þríburavagninn að gjöf, sem munaði heilmiklu. Þessir hlutir eru dýrir en eitthvað sem verður að eiga. Þetta gengur allt saman upp enn sem komið er og ég vona að það muni ganga jafn vel áfram,“ segir Valborg. Samúðargrátur í kór Valborg er full tilhlökkunar fyrir framtíðinni og nýtur hvers dags með þríburunum. „Það eru algjör forréttindi að fá að eiga þríbura. Það er svo gaman að sjá þau þroskast og uppgötva heiminn. Þau sýna hvert öðru mik- inn áhuga og eru strax byrjuð að rífa dót og snuddur hvert af öðru. Þau eru rosalega ólíkir karakterar en jafnframt mjög samrýnd. Ef eitt grætur fara til dæmis hin tvö oft líka að gráta, bara til að vera með í kórnum!“ Systkinin heita Bergdís Kara, Bríet Karítas og Brynjar Kári. „Ég fór í marga hringi með nafna- valið enda er mikil ábyrgð fólgin í því að velja barni sínu nafn. Eitt nafnanna hafði ég ákveðið fyrir mörgum árum, svo ég horfði út frá því. Ég vildi til dæmis ekki að þau yrðu á mjög ólíkum stöðum í staf- rófinu og fannst leiðinlegt ef eitt væri alltaf framarlega en eitt síðast, upp á skóla og slíkt. Mér fannst líka að annaðhvort þyrftu öll eða ekk- ert að heita í höfuðið á einhverjum, svo ég ákvað að öll skyldu fá nöfn sem ekki voru fyrir í fjölskyldunni. En fyrst og fremst valdi ég nöfn sem mér þykja falleg og að mörgu leyti var það tilviljun að þau áttu svona vel saman,“ útskýrir Valborg. Hún segist vissulega vekja athygli með börnin þegar þau fari í spássitúr um bæinn. „Mér fannst það rosalega óþægi- legt fyrst, en það er að venjast. Það kemur oft fyrir að fólk stoppi mig og spyrji hinna og þessara spurninga og hvort ég eigi öll þessi börn. Ég viðurkenni að mig langar stundum að fá að vera í friði og vera venjuleg mamma sem þarf ekki að svara spurningum þegar ég fer í gönguferð. Við erum voða venjuleg fjölskylda þótt börnin hafi öll fæðst á sama degi,“ segir hún kankvís. Karlar verði ekki óþarfir Valborg vakti athygli fyrir gagn- rýni á háan kostnað, lélegan tækjabúnað og slaka þjónustu Art Medica, sem var eina læknastöðin sem sinnti tæknifrjóvgunum hér á landi þar til sænska fyrirtækið IVF Sverige keypti hana og lagði niður. Í staðinn var opnuð ný stofa, IVF Klíníkin, sem býður upp á nýjustu aðferðir í ófrjósemismeðferðum. „Ég sagði skilið við Art Medica en er ánægð með að tæknin hér heima hefur tekið miklum framför- um með nýjum tækjum. Mér skilst líka að skipulagið hafi breyst til hins betra en kostnaður við með- ferðirnar hefur því miður hækkað enn frekar,“ segir Valborg, sem eftir mikla umhugsun fór til Danmerkur í tæknifrjóvgun. „Það var eiginlega svolítið gott að fara í annað umhverfi þar sem maður gat einbeitt sér að því að upplifa og njóta, því það fer mikið í gegnum hugann í meðferðunum. Tæknifrjóvgunum fylgir mikið andlegt og líkamlegt álag, sérstak- lega ef meðferðirnar eru orðnar margar. Ég fór fjórar ferðir til Dan- merkur sem að lokum skiluðu mér þessum frábæra árangri.“ Valborg telur einstaklings- bundið hvort tæknifrjóvgunar- leiðin henti konum í barneignar- hugleiðingum. „Þessi leið var sú rétta fyrir mig og hentaði mér vel, en ég myndi ekki mæla með þessu við hvern sem er, alls ekki. Mér finnst líka mikilvægt að það verði ekki að tískubylgju að konur eignist börn sín einar með gjafa. Ég vil ekki að karlmenn verði óþarfir og það er mikilvægt að hafa hugfast að upp- eldi er að sjálfsögðu auðveldara fyrir tvo en einn, ef um samhenta einstaklinga er að ræða.“ Spurð hvort hana langi í fleiri börn segist Valborg ekki viss um að mega svara þeirri spurningu játandi. „Ég geri ráð fyrir að fæstir sem eignast þríbura eignist fleiri börn og ætli flestum þyki ekki nóg komið. En ég játa að ég gæti vel hugsað mér eitt eða tvö í viðbót, svona eftir nokkur ár. Ég veit þó ekki hvað verður, enda ekki sjálf- sagt að eignast börn. Ég er bara yfir mig þakklát fyrir þetta flotta þríeyki mitt.“ Og hamingjan er við völd hjá Valborgu og gleðigjöfunum þremur. „Að vera þríburamamma er frábært hlutverk. Það eru algjör forréttindi að fá að fylgjast með þessum litlu einstaklingum á hverjum degi og vakna með þeim brosandi á hverjum morgni. Þetta er eiginlega þreföld gleði.“ Að missa barnið sitt er lífsreynsla sem breytir manni fyrir lífstíð. Sú reynsla setti mikið mark á seinni meðgönguna og ég var aldrei róleg. Ekki fyrr en ég heyrði þriðja barnið gráta á skurðstofunni. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . S E p t E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R 0 1 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 3 -6 1 4 C 1 D A 3 -6 0 1 0 1 D A 3 -5 E D 4 1 D A 3 -5 D 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.