Fréttablaðið - 12.09.2017, Qupperneq 2
Veður
Norðaustankaldi á Vestfjörðum,
en annars hægari norðaustlægur
vindur. Rigning í flestum landshlut-
um, en þurrt að kalla á Vesturlandi.
Hiti 4 til 14 stig. sjá síðu 18
DANMÖRK Danskar stórútgerðir
hafa selt fjórum sænskum útgerð-
um 23 prósent af kvóta sínum. For-
maður félags strandveiðimanna,
Søren Jacobsen, segir þetta afar
slæmt. Undanfarinn áratug hafi 49
litlum höfnum verið lokað vegna
þess að kvótarnir eru komnir á svo
fáar hendur.
Jacobsen segir í viðtali við danska
ríkisútvarpið að fiskurinn sé sam-
eiginleg auðlind þjóðarinnar sem
verið sé að selja úr landi. Þar með
tapist mörg störf.
Sænskar útgerðir eiga nú danska
síldar- og makríl-
k v ó t a u p p
á r ú m l e g a
einn milljarð
d a n s k r a
króna.
– ibs
Reiði vegna sölu
á kvóta til Svía
Allt til reiðu á Alþingi
Starfsmenn Alþingis lögðu í gær lokahönd á undirbúning fyrir störf þingsins sem sett verður í dag eftir sumarhlé. Fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár
verður lagt fram á fimmtudag. Búist er við að sveitarstjórnarkosningar í vor liti starfið inni á þingi eftir áramót. Sá nánar á síðu 4 Fréttablaðið/SteFán
Danskar útgerðir selja kvóta úr landi.2x10
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
Láttu mæla
í þér sjónina
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
stjóRNsýslA Átta ráðuneyti eyddu alls
tæplega 2,7 milljónum króna í leigu-
bílaferðir fyrir starfsfólk sitt í ágúst.
Þetta er meðal þess sem kemur fram
í yfirliti sem birt hefur verið á vefsíð-
unni opnirreikningar.is sem tekin var
í gagnið í gær.
Tilgangur nýju vefsíðunnar er að
bæta aðgengi að fjárhagsupplýsingum
ríkisins þar sem skoða má yfirlit yfir
greidda reikninga úr bókhaldi ráðu-
neyta nánast í rauntíma.
Í gær var birt yfirlit yfir ágústmánuð
og þar er ein þjónusta sem virðist
koma oftar fyrir en aðrar. Það eru
reikningar fyrir viðskipti starfsfólks
ráðuneytanna við leigubílafyrirtækið
Hreyfil.
Ríkið er með tveggja ára samning
um leigubílaakstur við Hreyfil eftir
útboð Ríkiskaupa í fyrra. Leigubílana
notar starfsfólk í erindagjörðum við-
komandi ráðuneyta, til dæmis ef
komast þarf til fundar og er ætlast til
að leigubílar séu notaðir á stórhöfuð-
borgarsvæðinu. Ef um lengri ferðir
út á land er að ræða ber þó að leigja
bílaleigubíla samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins.
Af þessum átta ráðuneytum sem
nýttu sér þjónustu Hreyfils í síðasta
mánuði stendur utanríkisráðuneytið
upp úr. Starfsfólk þess eyddi lang-
mest allra ráðuneyta, eða tæplega 1,6
milljónum króna. Munar þar mest um
reikning frá 9. ágúst sem nemur alls ríf-
lega 886 þúsundum króna.
Næst á eftir er velferðarráðuneytið
með 377 þúsund krónur, atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið eyddi 220
þúsund krónum og innanríkisráðu-
neytið 132 þúsundum.
Fréttablaðið leitaði skýringa á
miklum kostnaði hjá utanríkisráðu-
2,7 milljónir í leigubíla
frá ráðuneytum í ágúst
Átta ráðuneyti greiddu hátt í þrjár milljónir króna fyrir leigubílaferðir í ágúst.
Utanríkisráðuneytið eyddi nær 1,6 milljónum. Leigubílar eru notaðir í ýmis
erindi á stórhöfuðborgarsvæðinu. Ber að leigja bílaleigubíla fyrir lengri ferðir.
Stöðugur straumur leigubíla virðist liggja að ráðuneytunum. Fréttablaðið/Vilhelm
leigubílaferðir ráðuneyta 1. til 31. ágúst
ráðuneyti Fjöldi reikninga Upphæð kr.
Utanríkisráðuneyti 22 1.571.825
Velferðarráðuneyti 16 377.793
Atvinnuvega- og nýskráðun. 3 220.869
Innanríkisráðuneyti 12 132.478
Fjármála- og efnahagsráðun. 12 115.989
Forsætisráðuneyti 7 92.521
Umhverfis- og auðlráðun. 9 90.214
Mennta- og menningarmálar. 10 84.763
alls kr. 2.686.452
neytinu sem segir eðlilegt að kostn-
aður vegna leigubíla sé mun hærri þar
en hjá öðrum ráðuneytum. „Hluti af
skyldum ráðuneytisins þegar kemur
að heimsóknum erlendra gesta er að
sjá um akstur.“
886 þúsund króna reikningurinn er
sagður hafa fallið til í júní og sé tilkom-
inn vegna tveggja viðburða. Annars
vegar fundar utanríkisráðherra Eystra-
saltsráðsins og móttöku aðmírálanna
Johnstones og Townsends. Drjúgur
hluti heildarupphæðarinnar komi til
vegna hátíðarhaldanna 17. júní sem
fjöldi erlendra sendiherra sótti. Bent er
á að viðkomandi reikningar hafi verið
bókaðir og greiddir í ágúst, en mestur
kostnaður fallið til fyrr í sumar.
Ef kostnaður vegna leigubílaferða
ráðuneytanna í ágúst er dæmigerður
fyrir aðra mánuði er ljóst að ráðuneyt-
in verja ríflega 32 milljónum í fargjöld
með leigubílum á ári.
mikael@frettabladid.is
NOREGuR Ríkisstjórn Ernu Sol-
berg, forsætisráðherra Noregs, hélt
velli í þingkosningum í Noregi í
gær. Er Fréttablaðið fór í prentun
var búið að telja ríflega tvo þriðju
hluta greiddra atkvæða og höfðu
stjórnarflokkarnir þá 87 þingmenn
en stjórnarandstaðan 82 þingmenn.
Niðurstaðan er vonbrigði fyrir
Verkamannaflokkinn sem mældist
með um fjörutíu prósenta fylgi í
könnunum fyrir nokkrum vikum.
Úr kjörkössunum fékk flokkurinn
þó aðeins um 27 prósent. Jonas
Gahr Støre, formaður flokksins,
verður því ekki forsætisráðherra.
Hægriflokkur Solberg og Fram-
faraflokkurinn hafa starfað saman
í ríkisstjórn síðustu fjögur árin með
stuðningi Kristilega þjóðarflokksins
og Venstre. Smærri flokkar landsins
koma ekki til með að vera í odda-
sæti við stjórnarmyndun líkt og
kannanir höfðu bent til. – jóe
Stjórn Solberg
hélt meirihluta
sAMFÉlAG „Þó að embætti Ríkislög-
reglustjóra fari fram á þetta þá getur
Útlendingastofnun í raun sagt nei
og þar við situr,“ segir Guðmundur
Karl Karlsson, fjölskylduvinur Mal-
eki feðginanna Haniye og Abrahim.
Ríkislögreglustjóri fór í gær fram á
að brottflutningi þeirra úr landi yrði
frestað vegna formgalla á birtingu
ákvörðunar um hann. Útlendinga-
stofnun á eftir að taka afstöðu. Í
dag verður lagt fram frumvarp um
ríkisborgararétt handa feðginunum
og annarri fjölskyldu sem einnig er
fyrirhugað að fari úr landi á fimmtu-
dag. – jóe
Óvíst hvort
frestun fæst
haniye
maleki
1 2 . s E p t E M b E R 2 0 1 7 Þ R I ð j u D A G u R2 F R É t t I R ∙ F R É t t A b l A ð I ð
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
5
-7
1
4
4
1
D
B
5
-7
0
0
8
1
D
B
5
-6
E
C
C
1
D
B
5
-6
D
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K