Fréttablaðið - 12.09.2017, Side 4
Tækni Búist er við því að Apple
muni kynna nýjan og afar dular-
fullan snjallsíma í dag samhliða því
að kynna iPhone 8 og iPhone 8 Plus.
Eins og áður hefur komið fram
mun nýi síminn bera nafnið iPhone
X en það nafn fannst þegar fjöl-
margir tækniáhugamenn grúskuðu
í gögnum stýrikerfisins iOS11 sem
lak á netið á dögunum.
Upplýsingar sem fundust í hinu
lekna stýrikerfi gefa ágætis mynd
af iPhone X. Má til dæmis nefna
þriggja gígabæta vinnsluminni,
líkt og er í iPhone 7 Plus, og sex
kjarna Apple A11 örgjörva. Þá mun
síminn hafa að minnsta kosti eina
tólf megapixla myndavél á bakhlið-
inni, jafnvel tvær, og sjö megapixla
myndavél á framhliðinni.
Athyglisverðast þykir hins vegar
að gögnin bendi til þess að öll fram-
hlið iPhone X verði skjár, líkt og má
sjá á Samsung Galaxy S8. – þea
Dularfullur
iPhone kynntur
Fjölmiðlar „Ég vil skila skýrslu til
ráðherra í þessum mánuði,“ segir
Björgvin Guðmundsson, formaður
nefndar sem fjallar um bætt rekstr-
arumhverfi einkarekinna fjölmiðla.
Það var Illugi Gunnarsson, þáver-
andi mennta- og menningarmála-
ráðherra, sem skipaði nefndina
hinn 3. janúar síðastliðinn. Illugi
sagði að nefndin væri skipuð í fram-
haldi af því að fulltrúar einkarek-
inna fjölmiðla hefðu vakið athygli
stjórnvalda á erfiðleikum sem blasa
við í rekstri þeirra. Núverandi ráð-
herra, Kristján Þór Júlíusson, tekur
við skýrslunni af nefndinni. – jhh
Styttist í skil á
fjölmiðlaskýrslu
Björgvin
Guðmundsson
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
SLÁANDI SEPTEMBER
AFSLÁTTUR
*Tilboðið gildir til 30. september 2017
- 1.000.000 kr.
Allir sem kaupa eða panta nýjan Dodge hjá Ís-Band í september, geta fengið sláandi afslátt.
Með 1.000.000 kr afslætti.
DÆMI: 7 manna lúxusjeppi
9.990.000 kr.
MEÐ AFSLÆTTI: 8.990.000 kr.
STjórnmál Alþingi kemur saman í
dag. Viðmælendur Fréttablaðsins
búast við átakavetri. Fyrstu fjárlög
sitjandi ríkisstjórnar verða lögð
fram á fimmtudaginn, en fjárlög
yfirstandandi árs voru afgreidd áður
en ríkisstjórnin var mynduð.
„Þessi fjárlög hljóta að verða
prófsteinn á stjórnarsamstarfið og
hvort það haldi, því hún hefur aldrei
farið í gegnum fjárlög saman, þessi
ríkisstjórn,“ segir Grétar Þór Eyþórs-
son, prófessor í stjórnmálafræði,
aðspurður um ástand og horfur við
upphaf þings. Birgir Ármannsson,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, tekur í svipaðan streng.
„Þetta verður fyrsti heili þingvetur
ríkisstjórnarinnar og það mun því
reyna meira á hana og hún getur
ekki skýlt sér á bak við að hún sé
nýtekin við,“ segir Birgir.
Markmiðið er uppgangur
„Það er viðfangsefni ríkisstjórnar-
innar í heild að standa þannig að
ríkisfjármálum að við getum vænst
áframhaldandi uppgangs í stað þess
að lenda í einhverjum spíral niður á
við,“ segir Birgir og bendir á að það
geti verið meiri vandi að stjórna rík-
isfjármálum þegar vel árar en þegar
herðir að.
Birgir bendir einnig á viðkvæma
stöðu í kjaramálum og gera megi ráð
fyrir að þau verði rædd á þinginu í
vetur. „Það ræður miklu um þann
árangur sem stjórnin getur náð í
efnahagsmálum að vel takist til á
vettvangi kjaramála,“ segir hann.
Vantar 18 milljarða króna
Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar
var samþykkt síðastliðið vor án
þess að fyllt væri upp í það skarð
sem myndaðist þegar fallið var frá
því að setja ferðaþjónustuna upp í
almenna virðisaukaskattsþrepið.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
bíða þess nú að sjá hvernig fyllt
verður í það skarð og búa sig undir
átök um ríkisfjármálin í haust.
„Stjórnarflokkarnir eru með 18
milljarða óleysta á milli sín og við
sjáum væntanlega hvernig þeir ætla
að leysa það þegar bandormurinn
kemur,“ segir Svandís Svavarsdóttir,
þingflokksformaður Vinstri grænna,
og bætir við: „Fjármálaráðherra og
hans flokkur vildi sækja þetta til
ferðaþjónustunnar en flokkur for-
sætisráðherra vildi það ekki og þess
vegna var fallið frá því. Talað var
um að úr þessu yrði skorið í haust.
Þannig að við munum væntanlega
sjá það þegar fjárlögin verða lögð
fram hvernig það verði leyst.“
Undir þetta tekur Logi Már Ein-
arsson, formaður Samfylkingarinn-
ar. Hann telur að stjórnin muni líka
eiga erfitt með landbúnaðarmálin,
sjávarútvegsmálin og Evrópumálin.
Fleiri nefna landbúnaðarmál. Sér-
staklega vanda sauðfjárbænda sem
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í
stjórnmálafræði, telur að stjórninni
gæti orðið skeinuhættur. „Mér sýn-
ist hann gæti vafist fyrir stjórnar-
samstarfinu svona miðað við yfir-
lýsingar sem menn eru að gefa.“
Kosningavetur fram undan
Kosið verður til sveitarstjórna næsta
vor og eiga menn von á að það muni
setja nokkurn svip á seinni hluta
þingvetrarins.
„Auðvitað hefur það alltaf ákveð-
in áhrif á störf þingsins. Þá má
vænta þess að flokkarnir á þinginu
reyni eftir bestu getu að stilla sér
þannig upp og haga málflutningi
sínum þannig að það nýtist sam-
herjum þeirra á sveitarstjórnar-
stiginu og búast má við því að það
verði meira áberandi eftir því sem
nær dregur,“ segir Birgir.
Grétar Þór á þó helst von á því að
borgarmálin geti haft áhrif í þing-
inu. „Þróun mála í Reykjavík og
kosningabaráttan þar gæti farið að
hafa áhrif eftir áramót,“ segir Grétar
og nefnir einnig að staðan í Reykja-
nesbæ og pólitíkin þar geti haft
áhrif inn í þing vegna þeirrar stöðu
sem þar hefur verið uppi.
adalheidur@frettabladid.is
Prófsteinn á stjórnarsamstarfið
Fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar verða lögð fram á fimmtudag. Útlit er fyrir átakavetur á Alþingi. Fjármál
ríkisins verða allsráðandi út árið en seinnipart vetrar gætu sveitarstjórnarkosningarnar litað þingstörf.
Ríkisráð kom saman á Bessastöðum í gær og Alþingi verður sett í dag. Búist er við átakavetri. FRéttABlAðið/SteFán
Þróun mála í
Reykjavík og
kosningabaráttan þar gæti
farið að hafa áhrif eftir
áramót.
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í
stjórnmálafræði
STjórnSÝSla Nemi við Háskóla
Íslands fær ekki fæðingarstyrk
námsmanna frá Fæðingarorlofssjóði.
Ástæðan er sú að hún féll í áfanga.
Konan eignaðist barn síðari hluta
árs 2016. Í nóvember sótti hún um
fæðingarstyrk námsmanna en var
synjað þar sem hún hafði ekki verið
í fullu námi samfellt í að minnsta
kosti sex af síðustu tólf mánuðum.
Konan komst að þungun sinni
í miðri prófatíð á vorönn ársins
2016. Þá önn hafði hún verið í 26
einingum í skólanum en stóðst próf
í sextán einingum. Sagði hún meðal
annars að uppgötvunin hefði haft
þau áhrif á hana að hún gat ekki
einbeitt sér í því prófi sem hún féll
í. Ekki var í boði fyrir hana að taka
endurtektarpróf. Haustönnina á
undan hafði hún staðist 30 einingar.
Fullt nám telst vera 22-30 einingar.
Fæðingarorlofssjóður mat það
svo að konan hefði ekki verið í
fullu námi á vorönn 2016. Þá taldi
sjóðurinn að tiltekin tímalengd
náms hennar á haustmisseri 2015 og
haustmisseri 2016 að fæðingardegi
barnsins næði ekki sex mánuðum.
Konan lagði fram vottorð frá
læknum sem í stóð að hún sýndi
einkenni þunglyndi og kvíða.
Sérfræðilæknir Fæðingarorlofs-
sjóðs var á annarri skoðun og því
voru ekki talin skilyrði til að veita
styrkinn af heilsufarsástæðum
móðurinnar. Þessi niðurstaða var
staðfest af úrskurðarnefnd velferðar-
mála. – jóe
Fær ekki fæðingarstyrk námsmanna því hún féll í einum áfanga
námskonan eignaðist barn undir lok síðasta árs. nORDiCPHOtOS/GettY
1 2 . S e p T e m b e r 2 0 1 7 Þ r i ð j U D a G U r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
5
-8
5
0
4
1
D
B
5
-8
3
C
8
1
D
B
5
-8
2
8
C
1
D
B
5
-8
1
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K