Fréttablaðið - 12.09.2017, Side 10
Milljónir heimila án rafmagns í Flórída
Vitað er um fjóra sem fórust er fellibylurinn Irma skall á Flórída. Irma taldist í gær annars stigs hitabeltisóveður. Donald Trump Banda-
ríkjaforseti segist munu nýta öll úrræði til að hjálpa íbúum ríkisins. Tjónið af Irmu og Harvey er metið um 30 þúsund milljarðar króna.
Við flytjum snilligáfu til þeirra sem rækta hana
16
-2
68
8
–
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
Bandaríkin Sex milljónir heimila í
Flórída voru án rafmagns í gær eftir
að fjórða stigs fellibylurinn Irma
gekk þar á land. Þýðir það að heimili
um 62 prósenta íbúa voru rafmagns-
laus þegar Fréttablaðið fór í prentun
í gær.
Bylurinn var staddur yfir miðju
Flórídaríkis í gær og á leið í norð-
vestur. Hann hafði þó veikst eftir að
hann gekk á land og flokkaðist sem
annars stigs hitabeltisóveður í gær.
Talið er að fjórir hið minnsta hafi
farist í óveðri gærdagsins í Banda-
ríkjunum. 37 létu lífið þegar storm-
urinn gekk yfir Karíbahafseyjar. Þar
af dóu tíu á Kúbu.
Rick Scott ríkisstjóri flaug yfir
Keys-svæðið, sem er syðst í ríkinu, í
gær. Í viðtali við Miami Herald sagði
hann að raflínur hefðu slitnað víðs-
vegar um ríkið. „Fjölmargir vegir eru
einnig ófærir þannig að allir þurfa
að sýna þolinmæði á meðan við
vinnum okkur út úr þessu.“
Scott sagði að þeir Flórídabúar
sem rýmdu svæðið og flúðu til nær-
liggjandi ríkja þyrftu að bíða í þó
nokkurn tíma áður en þeir gætu
snúið heim. Koma þyrfti á rafmagni
á ný, gera við vatnslagnir og sam-
göngumannvirki.
„Fólk þarf að forðast það nú að
gera mistök eins og á til að gerast
við þessar aðstæður. Fólk fer oft þar
sem rafmagnslínur liggja á jörðinni,
þar sem er ekki óhætt að vera. Það er
svo mikið tjón víðs vegar um ríkið,“
sagði ríkisstjórinn.
Samkvæmt Miami Herald mega
íbúar Flórída búast við því að far-
símar þeirra nái sambandi á ný
innan skamms. Hins vegar gætu
verið dagar eða jafnvel vikur þar til
rafmagn verður komið á að nýju.
Segir jafnframt að í Miami-Dade-
sýslu sé nærri milljón án rafmagns
en tekist hafi að koma því á á um
tvö hundruð þúsund heimilum nú
þegar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
samþykkti í gær að lýsa yfir ham-
faraástandi í Flórída og opnaði þar
með á að ríkið fengi styrki frá alríkis-
stjórninni til að hjálpa til við upp-
byggingu. Áður hefur verið fjallað
um að sjóðir Almannavarna Banda-
ríkjanna séu að tæmast en stutt er
frá því fellibylurinn Harvey gekk yfir
Texas og Louisiana.
„Slæmu fréttirnar eru þær að
þetta er einhvers konar risavaxið
skrímsli,“ sagði Trump við blaða-
menn í gær og bætti því við að tjónið
væri afar mikið og dýrt yrði að end-
urbyggja ríkið. „Nú höfum við hins
vegar bara áhyggjur af mannslífum,
ekki peningum,“ sagði forsetinn.
Þá lofaði hann síðar um daginn
að alríkisstjórnin myndi beita sér
af fullum krafti til að hjálpa íbúum
Flórída. „Þetta eru gríðarlega alvar-
legar hamfarir og við munum nýta
öll okkar úrræði til að hjálpa sam-
löndum okkar. Þegar Bandaríkja-
menn eru í neyð taka Bandaríkja-
menn höndum saman. Við erum eitt
ríki,“ sagði forsetinn á minningarat-
höfn þar sem fórnarlamba hryðju-
verkaárásanna sem framdar voru
11. september árið 2001 var minnst.
Einkarekna veðurstofan Accu-
Weather birti í gær niðurstöður
rannsóknar sinnar þar sem tjónið
af völdum Irmu og Harvey er metið
á um 290 milljarða Bandaríkjadala
sem samsvarar um þrjátíu billjónum
króna eða 1,5 prósentum af vergri
landsframleiðslu Bandaríkjanna.
thorgnyr@frettabladid.is
Gífurlegt úrhelli fylgdi Irmu þegar fellibylurinn náði til Jacksonville. Afleiðingin var sú að margir óðu vatn upp í mitti
en aðrir gripu til fljótandi fararskjóta. Hver dropi til viðbótar viðheldur háu vatnsyfirborði. NordIcpHotos/AFp
Þetta eru gríðarlega
alvarlegar hamfarir
og við munum nýta öll
okkar úrræði til að hjálpa
samlöndum
okkar.
Donald Trump,
forseti Banda-
ríkjanna
1 2 . s e p t e m B e r 2 0 1 7 Þ r i Ð J U d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a Ð i Ð
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
5
-8
0
1
4
1
D
B
5
-7
E
D
8
1
D
B
5
-7
D
9
C
1
D
B
5
-7
C
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K