Fréttablaðið - 12.09.2017, Síða 21
Núvitund eða gjörhygli er þýðing á enska orðinu mindfulness og er einfald-
lega það að vita hvað er að gerast
á meðan það er að gerast. Að
einsetja sér að beina athyglinni að
núverandi augnabliki, hlutlaust og
taka því eins og það er,“ útskýrir
Bridget Ýr, eða Bee eins og hún er
ávallt kölluð, en hún hefur kennt
núvitund á Heilsustofnun NLFÍ frá
árinu 2006.
„Oft gleymist reyndar að tala um
að auk þess að vera með athyglina
í núinu snýst núvitund einnig um
að lifa í augnablikinu án þess að
dæma. Það þýðir að við lærum
að taka á móti hugsunum okkar,
tilfinningum og líkamlegum
einkennum, án þess að lenda í
baráttu,“ segir hún.
Námskeiðið, sem stendur í átta
vikur, er fyrir alla þá sem vilja bæta
líðan sína og líf sitt. Þó sérstaklega
fyrir þá sem eru að fást við einhver
vandamál, andleg eða líkamleg.
„Æ fleiri rannsóknir hafa birst á
allra síðustu árum sem hafa sýnt
fram á að núvitund nýtist afar vel
fólki sem er að berjast við verki,
háþrýsting, svefnerfiðleika, hjarta-
og æðasjúkdóma og krabbamein.
Núvitund nýtist einnig við sál-
fræðilegum vandamálum, á borð
við endurtekið þunglyndi, streitu,
kulnun, kvíða og ofsakvíða.“
Læra að
lifa í núinu
Bridget Ýr „Bee“ McEvoy kennir nám-
skeiðið Núvitund – mindfulness hjá
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Bridget Ýr „Bee“ McEvoy hefur kennt
fjölmörg námskeið um núvitund hjá
Heilsustofnun NLFÍ.
Rósa Richter, sálfræðingur og list-
meðferðarfræðingur.
Ótal rannsóknir hafa sýnt fram á að EMDR er hrað-virkasta meðferð sem völ
er á þegar fólk er að fást við smá
eða stór áföll. Stofnanir á borð við
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina
og APA, samtök sálfræðinga í
Bandaríkjunum, mæla með EMDR
sem fyrsta vali við úrvinnslu áfalla,
atvika eða upplifana sem áttu sér
stað í fortíðinni en hafa ennþá
töluverð áhrif á lífsgæði við-
komandi,“ útskýrir Rósa Richter
sálfræðingur og listmeðferðar-
fræðingur.
Hún hefur sjálf unnið mikið með
EMDR meðferð og hefur árangur-
inn komið henni á óvart. „Þetta er
öflugasta meðferð sem til er við
áföllum,“ segir Rósa sem fannst
þó leiðinlegt að geta aðeins boðið
upp á slíka meðferð til þeirra sem
hefðu efni á sálfræðimeðferð. „Þá
rakst ég á upplýsingar um suður-
ameríska sálfræðinga sem þróað
höfðu hópmeðferð í EMDR með
góðum árangri. Ég ákvað síðan í
samvinnu við Heilsustofnun NLFÍ
að bjóða upp á hópmeðferð þar
sem ég gæti blandað saman EMDR
og listmeðferð og hefur árangurinn
verið mjög mikill.“
Rósa bendir á að EMDR virki
ekki aðeins eftir áföll heldur einn-
ig við öðrum kvillum á borð við
þunglyndi, kvíða og fleiri raskanir.
„Sérfræðingar eru farnir að tengja
flestar þessar raskanir við einhvers
konar áföll sem fólk hefur orðið
fyrir. Þess vegna virkar EMDR
mjög vel og fólk nær að vinna á
vandanum sem það á að etja við
í dag með því að takast á við rót
vandans.“
Námskeiðið hentar því einnig
þeim sem hafa endurtekið reynt
að breyta óæskilegri hegðun eða
mynstri, hafa svo dottið í sama
farið aftur en eru tilbúnir að skoða
rót vandans. „Námskeiðið gerir
fólki kleift að öðlast dýpri skilning
á því sem liggur að baki hegðun-
inni og gefur fólki verkfæri til að
vinna bug á henni,“ segir Rósa.
Á námskeiðinu lærir fólk:
l aðferð sem hjálpar við að breyta
hegðun.
l að öðlast innri ró og frið með
hjálp hugleiðslu og slökunar.
l að hafa gaman, leika sér og
sleppa tökunum.
Nánari upplýsingar á www.heilsu-
stofnun.is
Tekist á við rót
vandamálanna
Á námskeiðinu „Aukið frelsi – aukin hamingja“ á Heilsu-
stofnun NLFÍ sameinar Rósa Richter vestrænar meðferðir
eins og EMDR og listmeðferðarfræði og aldagamlar leiðir
eins og hugsleiðslu, dans og sköpun.
Nánari upplýsingar í síma 483 0300
eða á netfangið heilsa@heilsustofnun.is
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands
Helgarnámskeið með Rósu Richter sálfræðingi og listmeðferðarfræðingi
Aukið frelsi
- aukin hamingja
Núvitund
– mindfulness
Námskeiðið hentar þér ef þú hefur endurtekið reynt að breyta óæskilegri hegðun
eða mynstri en hefur svo dottið í sama farið aftur og aftur. Með hjálp listarinnar
og EMDR meðferð munt þú læra einfalda en mjög virka aðferð sem þú getur
notað eftir námskeiðið til að fást við erfiðar tilfinningar. Rósa mun einnig kenna
grunn í hugleiðslu og núvitund.
Á námskeiðinu verður sungið, dansað, leirað, málað, hlegið og
sköpunarkraftinum gefinn laus taumur. Listin kallar fram allan tilfinningaskalann
og endurvekur barnið og skapandann sem býr innra með okkur.
Einnig er innifalið: ljúffengur og hollur matur, gisting í tvær nætur, aðgangur að
baðhúsi og sundlaugum. Verð: 59.000 kr.
Námskeið í núvitund við verkjum, kvíða, þunglyndi og streitu. Námskeiðið tengir saman
núvitund og hugræna atferlismeðferð. Unnið er í lokuðum hópum 12-16 einstaklinga.
Kennt er í átta skipti, einu sinni í viku í tvo tíma í senn. Þátttakendur þurfa að gera ráð
fyrir daglegum heimaæfingum á milli tímanna.
Á námskeiðinu eru lögð áhersla á að að beina athyglinni að núverandi augnabliki,
hlutlaust og taka því eins og það er.
Núvitund nýtist afar vel fólki sem er að berjast við verki, háþrýsting, svefnerfiðleika,
hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein. Núvitund nýtist einnig við sálfræðilegum
vandamálum, s.s. endurteknu þunglyndi, streitu, kulnun og kvíða.
Kennari er Bridget “Bee” McEvoy, RPN, en hún hefur kennt núvitund á Heilsustofnun
frá árinu 2006. Öll námskeiðsgögn eru innifalin, aðgangur að sundlaugum á
námskeiðstímanum og matarklúbbskort sem veitir 30% afslátt af hádegis- og
kvöldverði. Verð: 59.000 kr.
Næstu námskeið verða
22.-24. september og
8.-10. nóvember 2017
Næstu námskeið hefjast
11. október 2017
og 7. febrúar 2018
Átta vikna námskeið, kennt á miðvikudögum kl.15:30-17:30
Grænumörk 10, 810 Hveragerði
Sími 483 0300 - www.heilsustofnun.is
KYNNINGARBLAÐ 5 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 2 . s E p t E M B E R 2 0 1 7 NÁMsKEIÐ
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
5
-8
9
F
4
1
D
B
5
-8
8
B
8
1
D
B
5
-8
7
7
C
1
D
B
5
-8
6
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K