Fréttablaðið - 29.08.2017, Side 16
Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457
Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Þetta hófst allt á því að nokkrir karlar í Hafnarfirði ákváðu að hjóla til Akureyrar sumarið
2009. Einn úr hópnum tilkynnti
móður sinni þetta og þá varð
henni að orði: „Já, þú ert bjartur.“
Þannig varð nafnið til,“ segir Örn
Hrafnkelsson, formaður hjólreiða-
félagsins Bjarts.
Til að byrja með var Bjartur
lokaður klúbbur. Smám saman
fjölgaði í hópnum þegar vinir og
kunningjar bættust við. „Haustið
2011 var ákveðið að opna félagið
og gera að almennum hjólaklúbbi.
Þann 19. október 2011 varð Bjartur
fyrsta hjólreiðafélagið í Hafnar-
firði. Við sóttum um og fengum
aðild að ÍSÍ enda var fólk farið að
taka þátt í keppnum og þurfti þá
að vera í löglegu félagi,“ útskýrir
Örn.
Upphaflegir félagar í klúbbnum
voru 15. Þegar félagið var opnað
voru 30 í því en í dag eru skráðir
félagar í Bjarti 130 og þar af um
hundrað virkir. „Í Bjarti eru bæði
karlar og konur og fólk á öllum
aldri.“
Skipulagðar æfingar
Bjartur er með skipulagðar æfingar
á mánudögum og miðvikudögum.
„Við hittumst við kaffihúsið Pallett
í Hafnarfirði en áður hefur verið
sendur út póstur þar sem látið er
vita hvað gert verður á æfingunni.
Þeir sem vilja ekki taka þátt í
sérstökum hjólaæfingum geta í
staðinn tekið þátt í samhjóli en
þá er hjólaður fyrirframákveðinn
hringur. Við köllum það að hjóla
til að njóta,“ segir Örn glaðlega
og tekur fram að allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hjólað í útlöndum
Að sjálfsögðu hjóla félagar í Bjarti
einnig aðra daga, bæði til vinnu
eða sér til skemmtunar. „Til dæmis
hittast fjallahjólarar aðra daga og
taka sínar æfingar. Gaman er að
segja frá því að flokkur frá okkur
fer til Austurríkis í byrjun septem-
ber til að hjóla þar í fjöllunum,“
segir Örn. Hann bendir á að
reynt sé að skipuleggja eina ferð
til útlanda hvert ár, til dæmis
verður farið til Tenerife í febrúar.
„Þá höfum við einnig tekið þátt í
ýmsum hjólaviðburðum á megin-
landinu.“
Líflegt mótahald
Félagar í Bjarti taka þátt í hinum
ýmsu mótum og eru í liðum sem
taka þátt í stórum viðburðum
á borð við Wow Cyclothon og
Bláalónsþrautina. Félagið stendur
einnig fyrir sínum eigin mótum.
„Við erum til dæmis með Pro-
logue sem eru þrjár keppnir sem
haldnar eru á Krísuvíkurvegi. Þá er
hjólað af miklu kappi 7,2 km niður
veginn. Við leggjum ávallt áherslu
á félagslega hlutann líka, það að
fólk hittist eftir mótið í kaffi og
samveru.“
Hjólreiðar raunhæfur valkostur
„Hjólreiðar eru orðnar raunhæfur
valkostur í samgöngum enda
er hjólreiðafólki alltaf að fjölga.
Sveitarfélögin hafa staðið sig vel í
að leggja stíga og aðstaðan er alltaf
að verða betri en þetta tekur allt
tíma og gerist í smáum skrefum,“
segir Örn sem sjálfur hjólar alltaf
í vinnu til Reykjavíkur úr Hafnar-
firði. Hann finnur mikinn mun
á að hjóla til vinnu í dag og fyrir
Borgarhringur hjá Bjarti 2017
Framhald af forsíðu ➛
fimmtán árum. „Á morgnana fer
ég hraðar en bílaumferðin,“ segir
hann glettinn og minnist þess að
hafa í upphafi verið álitinn hálf
skrítinn að hjóla á veturna. Í dag
þyki það eðlilegasti hlutur enda
hjól, búnaður, fatnaður og stígar
alltaf að verða betri.
Hjólamenning á réttri leið
Félögum í Bjarti er mikið í mun að
bæta hjólamenningu á landinu.
„Þetta er uppbyggingarstarf.
Við viljum með því bæta hjól-
reiðamenningu þannig að allir í
umferðinni geti lifað í sátt,“ segir
Örn en félagar í Bjarti reyna að
fylgja öllum reglum, hjóla aðeins
þar sem má, nota bjöllur og hægja
á sér þegar gangandi vegfarendum
er mætt. „Mér finnst umræðan
aðeins farin að róast en hún hefur
einkennst af dálitlum æsingi á milli
hópa í umferðinni. Smám saman
jafnar þetta sig og allir verða vinir.“
Hauststarfið hefst
Ýmislegt er fram undan hjá Bjarti
í haust. „Við verðum með nýliða-
kynningu og námskeið í fjalla-
hjólamennsku fyrir félagsmenn.
Þá höldum við innanfélagsmótið
heimsmeistaramót Bjarts við
Ástjörn sem kallast Ástjarnar-
sprettur, og svo heimsmeistaramót
Bjarts í kríteríumkeppni.“
Gott samstarf við TRI VERSLUN
Nokkrir af upphafsmönnum Bjarts
voru svo miklir áhugamenn um
hjólreiðar að þeir stofnuðu eigin
reiðhjólaverslun og reiðhjóla-
verkstæði sem er TRI VERSLUN á
Suðurlandsbraut 32. „Við eigum
í mjög góðu samstarfi við þá.
Félagsmenn fá sérstök kjör og við
kaupum í gegnum þá sérmerktan
fatnað og fylgihluti. Þeir styrkja
okkur með ýmsu móti enda eru
þeir allir félagsmenn í Bjarti,“ lýsir
Örn en TRI VERSLUN er þó einnig
með eigið keppnislið, Team Cube,
sem tekur þátt í ýmsum mótum.
Nánari upplýsingar um starfið hjá
Bjarti má finna á www.bjartur.org
og á Facebook undir Hjólreiða-
félagið Bjartur – www.facebook.
com/bjarturcc.
Allir eru velkomnir í félagið #bjartur
Örn Elding, formaður Bjarts, og Magnea Guðrún sem einnig er í TEAM CUBE.
Bjartur átti stóran þátt í því að TEAM CUBE vann sinn flokk í WOW Cyclothon
2017.
ára
Starfsmanna-
og munaskápar
www.rymi.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
8
-F
E
7
4
1
D
9
8
-F
D
3
8
1
D
9
8
-F
B
F
C
1
D
9
8
-F
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K