Fréttablaðið - 12.10.2017, Qupperneq 56
Er jeppinn tilbúinn í ferðalagið?
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16
BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS
Það eru fjölbreytt lög sem við flytjum, munkasöngvar í rólegri kantinum og hring-
dansalög,“ segir Alexandra Kjeld,
tónlistarkona í kvartettinum
Umbru, sem endurvekur katalónska
miðaldasöngva í kvöld í Landa-
kotskirkju. Yfirskriftin er Þeir vilja
stundum syngja og dansa og þar
er átt við pílagrímana sem höfðu
Montserrat-klaustrið í Katalóníu
sem fastan viðkomustað á ferðum
sínum. Þar fannst handrit með
söngvunum á 12. öld.
Í Umbru eru auk Alexöndru
sem leikur á kontrabassa þær Arn-
gerður María Árnadóttir á orgeli
og keltneskri hörpu, Guðbjörg
Hlín Guðmundsdóttir sem strýkur
fiðlustrengi og Lilja Dögg Gunn-
arsdóttir flautuleikari. Allar syngja
þær svo, en á hvaða tungumáli? „Að
megninu til latínu en í handritinu
eru líka tvö lög á katalónsku og eitt
á oksítönsku, sem er eldgamalt mál
frá Suður-Frakklandi,“ upplýsir
Alexandra. „Við höfum fengið góð
ráð hjá sérfræðingum og Katalóníu-
búum í sambandi við framburðinn
og styðjumst við gamlar upptökur.
Leggjumst alltaf í mikla rannsóknar-
vinnu þegar við förum í svona verk-
efni. Það hafa margir spreytt sig á að
flytja lögin og það er engin ein rétt
leið til þess. Maður getur ímyndað
sér að þau hafi verið sungin utan
klaustursins með öðrum textum.
En í þessu tilfelli eru þau sungin til
heiðurs Maríu mey.“
Tónleikarnir hefjast klukkan
20. Með Umbru koma fram Þór-
dís Gerður Jónsdóttir sellóleikari,
Kristófer Rodriguez Svönuson slag-
verksleikari og bassadeild Söng-
sveitarinnar Ægisifjar.
gun@frettabladid.is
Syngja á latínu, katalónsku og oksítönsku
Mér finnst ljóð vera málefna-leg og þau gefa mér klárlega eitthvað sem ég fæ hvergi ann-
ars staðar. Ég finn fyrir ákveðinni
tegund af gleði við að skrifa þau,“
segir Jónas Reynir Gunnarsson sem
í gær tók við verðlaunum, kenndum
við Tómas Guðmundsson, úr hendi
Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í
Höfða. Verðlaunin nema 700 þús-
und krónum og þau hlaut Jónas
Reynir fyrir ljóðahandritið Stór
olíuskip. Fyrstu eintök af bókinni
komu líka úr prentun í gær í útgáfu
bókaforlagsins Partusar.
Jónas Reynir er úr Fellabæ og
varð stúdent frá Menntaskólanum á
Egilsstöðum. Síðan hefur hann lokið
grunn- og meistaranámi í ritlist frá
Háskóla Íslands. „Það var ekki fyrr
en ég byrjaði á námskeiði hjá Sig-
urði Pálssyni skáldi sem ég byrjaði
að yrkja. Svo ég hef ekki verið lengi
að,“ segir hann. Í þakkarræðu sinni
í Höfða í gær las hann upp tölvu-
pósta sem hann hafði sent Sigurði
gegnum árin í fylgd með verkefna-
lausnum. Allir voru þeir stuttir og
lítt skáldlegir, á borð við: „Verkefni
5, b.kv. JRG,“ þar til sá síðasti flaug
í september: „Til þín elsku SP með
þökk fyrir ljóðlistina.“
Jónas hefur birt ljóð í Tímariti
Máls og menningar og Stúdenta-
blaði Háskóla Íslands, þar sem hann
hlaut fyrsta sæti í árlegri ljóðakeppni
blaðsins 2014. Árið 2015 varð hann
hlutskarpastur í leikritunarkeppni
sviðs listadeildar Listaháskóla Íslands
með verkinu Við deyjum á Mars og
sama ár kom út smásagan Þau stara
á mig hjá Partusi.
Fyrsta ljóðabók Jónasar, Leiðar-
vísir um þorp, kom einnig út hjá
Partusi nú í september 2017, sem
og fyrsta skáldsaga hans, Milli-
lending. Svo skemmtilega vill til
að Jónas mun leiða smiðju skálda
í alþjóðlega verkefninu Waters and
Harbours in the North sem Bók-
menntaborgin Reykjavík stendur
fyrir vikuna 16.-21. október. Skáldin
vinna saman að textum sem tengj-
ast hafnarborgum.
Fimmtíu og eitt handrit að ljóða-
bók barst til dómnefndar sem Úlf-
hildur Dagsdóttir, Þórarinn Eldjárn
og Illugi Gunnarsson skipuðu. Í
niður stöðu þeirra segir: „Stór olíu-
skip er sterkt og fallegt verk. Ljóðin
eru stílhrein og myndmálið ferskt
og grípandi. Heildarmyndin er fim-
lega smíðuð og kallar á endurlestur;
stóru olíuskipin sigla inn og út um
vitund lesandans og skilja eftir
sig fínlegt kjölfar tilfinninga sem
spanna allt frá depurð og eftirsjá til
hógværs fagnaðar.“
Aðspurð sagði formaður dóm-
nefndar, Úlfhildur Dags, öll hand-
rit hafa eitthvað til síns ágætis
og valið sé því alltaf vandasamt.
Kvaðst hafa séð nýútkomna ljóða-
bók Jónasar Reynis, Leiðarvísir um
þorp, og kannast við efnið því það
handrit hafi orðið í 2. sæti keppn-
innar í fyrra.
gun@frettabladid.is
Með þökk fyrir ljóðlistina
Fellabæingurinn Jónas Reynir Gunnarsson hlaut í gær Bók-
menntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2017 fyrir
ljóðahandritið Stór olíuskip sem kom út á bók sama dag.
Skáldið Jónas Reynir hlýðir á hvatningarorð af munni borgarstjórans Dags, að viðstöddu fjölmenni. FRéttablaðið/anton
intellecta.is
RÁÐNINGAR
Þær alexandra, Guðbjörg Hlín, lilja
Dögg og arngerður María.
Ljóð úr nýju bókinni Stór olíuskip
Hulduefnið sem fyllir upp í rifurnar á alheiminum
er kvöldkvíði
hann er ósýnilegur en mælist
vegna þyngdaráhrifa á allt í kringum hann.
1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r36 M e n n I n G ∙ F r É t t A b L A ð I ð
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
F
4
-8
9
1
0
1
D
F
4
-8
7
D
4
1
D
F
4
-8
6
9
8
1
D
F
4
-8
5
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K