Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Síða 2
Helgarblað 13.–16. janúar 20172 Fréttir Nýjar vörur Fagmenn byrjuðu sem lögbrjótar Heimabruggarar undrandi á sektardómi Þórbergs Traustasonar vegna áfengs krækiberjasafts Þ essi dómur vekur furðu í samfélagi heimabruggara enda er fáheyrt að dæmt sé í slíkum málum hérlendis þar sem augljóst er að sölu- ásetningur var enginn. Ég man eftir einu máli í Eyjum fyrir nokkrum árum og síðan þessu. Að mínu mati verður að breyta þessum lögum og aðlaga þau að nútímanum,“ segir Þórgnýr Thoroddsen, varaborgar- fulltrúi Pírata og meðlimur í Fágun, félagi áhugafólks um gerjun, í sam- tali við DV. Tilefnið er nýfallinn dómur Hér- aðsdóms Austurlands þar sem Þór- bergur Traustason var dæmdur til þess að greiða tæpa milljón í sekt- ar- og málskostnað fyrir brot á áfeng- islögum. Lögreglan gerði upptæka 95 lítra af áfengu krækiberjasafti á heimili kærustu Þórbergs. Hann hélt því fram fyrir dómi að hafa gleymt saftinu í hálft ár inni í geymslu og það hafi óvart gerjast. Skýringar Þórbergs voru ekki teknar trúanlegar. Ísland sker sig úr Heimabruggun á léttu áfengi hefur rutt sér mjög til rúms undanfarin ár. Á árum áður var heimabruggun á léttvíni vinsæl en mesta framþró- unin hefur verið í bruggun á heimagerðum bjór. Samfé- lag heimabruggara er mjög virkt. Haldið er úti vinsælu spjallsvæði á Facebook með um 1.500 meðlimum auk þess sem stofnað hefur ver- ið sérstakt félag um þetta áhugamál, Fágun. Fyrir utan að safna og miðla fróð- leik um bruggun hafa fé- lagar meðal annars barist fyrir því að gerð á léttu áfengi til einkanota verði leyfð. Slíkt er með öllu bannað hér- lendis en til samanburðar heimila öll hin Norðurlöndin heimabruggun á áfengi undir 22% af styrkleika og í ótakmörkuðu magni. Tvennt ólíkt Í núgildandi lögum hérlendis er bannað að brugga allt áfengi, jafn- vel til einkanota, sem er yfir 2,25%. Fágun hefur barist fyrir því að gerður verði greinarmunur á sterku áfengi og léttu í lögunum og framleiðsla á hinu síðarnefnda verði heimil- uð. „Áfengislöggjöfin hér á landi er í hróplegu ósamræmi við það sem tíðkast í öllum vestrænum lýð- ræðisríkjum sem við miðum okk- ur við og því þarf að breyta,“ segir Þórgnýr. Hann bendir á að heima- bruggun og ólögleg sala sé tvennt ólíkt. „Það er fásinna að slá þessu tvennu saman. Bruggun til sölu verður ekki að bruggun til sölu fyrr en sala fer fram. Þá er heima- bruggun á léttu víni örugg iðja. Það er afskaplega ólíklegt að búa til veigar sem hafa skaðleg áhrif umfram áhrif áfengis á líkamann,“ segir Þórgnýr. Hann segir að sú þekking og reynsla sem heimabruggarar hafi öðlast hafi skilað sér margfalt til sam- félagsins. „Við sjáum það á uppgangi nýrra og smærri brugghúsa. Þar er mikil gróska og kaldhæðnislegt til þess að hugsa að fagmennirnir sem standa á bak við þann iðnað hafi ver- ið lögbrjótar til þess að byrja með,“ segir Þórgnýr. Hann segir að með- limir Fágunar muni berjast áfram fyrir því að núgildandi lögum verði breytt. „Sú vinna er þegar hafin og vonandi verður lögð fram laga- breytingartillaga á komandi kjör- tímabili,“ segir Þórgnýr. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Áfengislöggjöf- in hér á landi er í hróplegu ósamræmi við það sem tíðkast í öllum vestrænum lýð- ræðisríkjum sem við miðum okkur við og því þarf að breyta. Þórgnýr Thoroddsen Vonar að áfengislögum verði breytt á þessu kjörtímabili þannig að heimabrugg á léttu víni verði heimilt. Mynd SigTryggur Ari„Við lítum þetta mál alvarlegum augum“ Síðskeggjaður, hvíthærður mað- ur hefur að undanförnu reynt að gefa nemendum í nágrenni Grundaskóla á Akranesi trúarrit. Til þess hefur hann enga heim- ild. Skessuhorn greindi frá þessu á fimmtudag. Maðurinn mun ekki hafa sýnt af sér ógnandi hegðun eða reynt að bjóða þeim aðra hluti en Nýja testamentið. Fram kemur að hann aki jafnan á brott þegar hann verði var við starfsfólk skól- ans. „Við lítum þetta mál alvar- legum augum og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að ná tali af þessum manni og gera honum grein fyrir því að við viljum að hann láti af þessari iðju,“ er haft eftir Flosa Einarssyni, aðstoðar- skólastjóra Grundaskóla. Gæsla í kringum skólann hef- ur verið hert vegna þessa. Sorg í Grindavík Flaggað var í hálfa stöng víða í Grindavík á fimmtudag eftir að 18 ára stúlka lést í umferðarslysi á fimmtudagsmorgun. Lögreglan lokaði Grindavíkurvegi, norðan við afleggjarann að Bláa lóninu, en strax var ljóst að um alvar- legt umferðarslys væri að ræða. Í skeyti frá lögreglu sagði: „Klukkan 08:56 barst tilkynn- ing til lögreglunnar á Suðurnesj- um um harðan árekstur tveggja bifreiða á Grindavíkurvegi norð- an við afleggjarann að Bláa lón- inu. 18 ára stúlka lést í slysinu. Einn aðili er alvarlega slasaður og er á gjörgæsludeild. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum.“ Stúlkan sem lést í slysinu var búsett í Grindavík. u ndanfarin ár hefur hlutfall út- borgaðra launa heimilis, sem varið er til greiðslu fasteigna- láns, farið hækkandi. Í dag er hlutfallið að jafnaði 20 til 21 prósent en var um 18 prósent skömmu eftir efnahagshrunið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju efnahagsyfirliti VR. Þar segir að hlutfallið í dag sé í takt við árin 2000 til 2004 en vísbendingar um að hækkandi hlutfall útborg- aðra launa, sem varið er í greiðslu fasteignaláns, sé áhyggjuefni. „Þetta snertir helst þau heimili sem eru að kaupa sér sína fyrstu fasteign eða stækka við sig,“ segir í tilkynningu sem VR sendi frá sér vegna málsins. Í efnahagsyfirlitinu er einnig fjallað um neyslumynstur íslenskra heimila og það borið saman við hin Norðurlöndin. Svo virðist vera sem mynstrið, það er hversu stóru hlut- falli útgjalda heimilis er varið í til- tekna vöru eða þjónustu, sé svipað því sem þekkist á hinum Norður- löndunum. „Hlutfall útgjalda vegna húsnæðis, hita og rafmagns er lægra en í Danmörku en hærra en í Sví- þjóð, Noregi og Finnlandi.“ n Hærra hlutfall tekna í húsnæði Efnahagsyfirlit VR varpar ljósi á þrönga stöðu ungs fólks Fasteignir Vísbendingar eru um að hærra hlutfall tekna íslenskra heimila fari í húsnæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.