Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Side 4
Helgarblað 13.–16. janúar 20174 Fréttir
Laugavegur 24
Sími 555 7333
publichouse@publichouse.is
publichouse.is
BENTO BOX
11.30–14.00 virka daga / LUNCH
11.30–15.00 um helgar / BRUNCH
1.990 kr.
Hærra verð og skattar skilvirk
leið til að draga úr neyslu
n Sígarettupakkinn ætti í raun að vera dýrari til að mæta kostnaðinum sem reykingum fylgir
Þ
ær forvarnaraðgerðir sem
hafa skilað hvað bestum ár-
angri til að draga úr notkun
áfengis og tóbaks er skert að-
gengi að vörunni með hækk-
uðu verði og takmörkun á sýnileika
eins og með banni á auglýsingum á
vörunni og sýnileikabanni í búðum,“
segir Viðar Jensson, verkefnisstjóri
tóbaksvarna hjá Landlæknisemb-
ættinu.
Neyslustýring með sköttum
gagnrýnd
DV leitaði álits Viðars á umfjöllun
blaðsins á þriðjudag þar sem sýnt var
fram á hátt hlutfall skattlagningar á
áfengi og tóbak í kjölfar hækkana nú
um áramótin, sérstaklega á neftóbak.
DV ræddi við Ólaf Stephensen, fram-
kvæmdastjóra Félags atvinnurek-
enda, sem gagnrýndi skattpíningu
stjórnvalda í þessum málaflokki og
vildi meina að umtalsverðar hækk-
anir á áfengis- og tóbaksgjaldi
undanfarin ár virtust litlu hafa skilað.
Þá hélt Ólafur því fram að forvarnir
virkuðu betur en neyslustýring með
sköttum.
Pakkinn ætti að vera miklu dýrari
Viðar segir að tóbak hafi jafnan verið
skattlagt á skilvirkan hátt til að mæta
kostnaði ríkisins vegna tóbaksnotk-
unar landsmanna sem og til að draga
úr notkuninni og þeirri skaðsemi sem
henni fylgir. Hann bendir á að skýrsla
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands
frá árinu 2000 um samfélagslegan
kostnað vegna reykinga á Íslandi hafi
gefið til kynna að árlegur kostnaður
hafi verið áætlaður um 40,2 milljarð-
ar króna á verðlagi ársins 2014.
„Á Tóbaksvarnarþingi Læknafé-
lags Íslands árið 2009 kom fram að ef
sígarettupakki ætti að standa undir
þeim kostnaði sem neysla hans veld-
ur, þá þyrfti hann að kosta 3.666
krónur á verðlagi ársins 2014. Nú
stendur til að endurtaka þessa grein-
ingu Hagfræðistofnunar á þjóðhags-
legum áhrifum reykinga á Íslandi.“
Skilvirk leið til að draga úr neyslu
Þá bendir Viðar á að skuldbindingar
Íslands á sviði tóbaksvarna nái til al-
þjóðasamþykkta og milliríkjasamn-
inga. Fullgilding Íslands á ramma-
samningi um tóbaksvarnir árið 2004
hafi markað þáttaskil í skyldum
stjórnvalda til að innleiða og fram-
fylgja ákvæðum samningsins sem tók
gildi árið 2005.
„Sjötta grein rammasamnings
um tóbaksvarnir fjallar um ráðstaf-
anir í verðlags- og skattamálum til
að draga úr eftirspurn á tóbaki. Þar
segir að aðilar viðurkenni að ráð-
stafanir í verðlags- og skattamálum
séu skilvirk og mikilvæg leið til að
draga úr tóbaksneyslu ýmissa sam-
félagshópa, einkum meðal ung-
menna. Þar segir að innleiða þurfi
virka verðstýringu á tóbaki með hlið-
sjón af þróun neyslu tóbaks og skyld-
um stjórnvalda. Þannig verði tryggð
árleg endurskoðun á álagningu
tóbaksgjalds. Hér á landi er mikil-
vægt að horfa á raunverð á tóbaki
með tilliti til þróunar á kaupmætti.
Alþjóðaheilbrigðis málastofnunin og
Alþjóðabankinn mæla með að tóbak
hækki í verði árlega,“ segir Viðar og
bætir við að Ísland hafi náð góðum
árangri í tóbaksvörnum og hafi notið
góðs af alþjóðlegum samþykktum og
norrænni samvinnu.
„Nú eru fleiri íbúar hér á landi
sem aldrei hafa reykt en þeir sem
reykja eða hafa hætt. Neysla ungra
karlmanna á tóbaki í vör veldur þó
áhyggjum enda er þar stór hópur
ungs fólks að verða háður tóbaki sem
ef til vill hefði ella aldrei ánetjast því.“
Viðar segir að takmarkað aðgengi
að áfengi og tóbaki með takmörkun
á fjölda sölustaða, opnunartími og
sölufyrirkomulag falli einnig undir
virkar forvarnaraðgerðir.
„Þetta kemur skýrt fram í leið-
beiningum og ráðleggingum Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinn-
ar og byggja þessar leiðbeiningar á
niðurstöðum rannsókna.“ n
„Nú eru fleiri íbúar
hér á landi sem
aldrei hafa reykt en þeir
sem reykja eða hafa
hætt.
Viðar Jensson
Verkefnisstjóri
tóbaksvarna hjá
Landlæknisemb-
ættinu. MyNd AðSeNd
10. janúar 2018
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Maðurinn tvíkjálkabrotinn
M
aður á fertugsaldri og kona
hans urðu fyrir heiftarlegri
árás tveggja manna fyrir
utan Jakaból í Breiðholti
á miðvikudagskvöld. Jaka-
ból er líkamsræktarstöð fyrir hreysti-
menni og er rekið af fyrrverandi
sterkasta manni heims, Magnúsi Ver
Magnússyni. Magnús segir í samtali
við DV að hann hafi heyrt af árásinni.
Samkvæmt heimildum DV æfa
mennirnir lyftingar í Jakabóli.
DV hefur einnig heimildir fyrir því
að fórnarlambið sem starfar sem ör-
yggisvörður hefði mælt sér mót við
annan manninn ásamt konu sinni.
Þegar hann steig út úr bílnum varð
hann samstundis fyrir þungum högg-
um. Er fórnarlambið kinnbeins-
brotið og tvíkjálkabrotið. Var kallað
til sjúkrabíl og gekkst maðurinn
undir aðgerð á Landspítalanum á
fimmtudag. Heimildarmaður DV
segir að konu mannsins hafi verið
hent í jörðina og sparkað í hana þar
sem hún lá varnarlaus í jörðinni. DV
náði tali af Magnúsi Ver sem sagði að
líkams árás hafi átt sér stað en hann
hefði ekki frekari upplýsingar um
hana.
„Það áttu sér stað þarna einhverjir
pústrar milli einstaklinga þarna,“
sagði Magnús sem kvaðst ekki vita
nánari deili á árásarmönnunum. n
Ráðist á hjón
í Breiðholti