Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 6
Helgarblað 13.–16. janúar 20176 Fréttir
Smáralind - S: 578 5075 - www.bjarkarblom.iS
Persónuleg og
fagleg þjónus
ta
einstakar skreytingar
við öll tækifæri
Fimm launahæstu
fá 1,2 milljarða á ári
n Ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar væru fimm ár að vinna fyrir árslaunum knattspyrnumannanna
F
imm launahæstu atvinnu
menn Íslands í knattspyrnu
eru með alls 1.225 milljón
ir króna í grunnlaun á ári
hjá félagsliðum sínum. Það
tæki fimm íslenska lækna 22 ár að
vinna fyrir árslaunum knattspyrnu
mannanna og alla ellefu ráðherra
nýrrar ríkisstjórnar rúm fimm ár.
Birti laun atvinnumannanna
Líkt og DV fjallaði um á dögunum birti
blaðamaðurinn Óskar Hrafn Þor
valdsson nýverið lista yfir 57 launa
hæstu íslensku knattspyrnumenn
þjóðarinnar sem leika erlendis. Óskar
Hrafn hafði að eigin sögn sankað
upplýsingum að sér víða og unnið að
upplýsingasöfnuninni lengi í hjáverk
um og birti þær síðan á Twitter. Í sam
tali við DV í síðustu viku sagði hann
að upplýsingarnar væru áreiðanlegar,
þótt einhverjar efasemdir hefðu verið
viðraðar þar að lútandi. Listi Óskars
Hrafns sýnir grunnárslaun hvers og
eins leikmanns, umreiknuð í krónur
fyrir skatta í hverju landi fyrir sig. Ekki
eru teknar með í reikninginn ýmsar
bónusgreiðslur og eða auglýsinga
samningar.
Gylfi í launalegum sérflokki
Nú hefur Óskar birt efstu sætin í
niðurtalningu sinni og þarf engan að
undra að íþróttamaður ársins, Gylfi
Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea
í ensku úrvalsdeildinni, er þar í efsta
sæti með 512 milljónir króna eða 42,7
milljónir á mánuði. Sá næstlauna
hæsti er Kolbeinn Sigþórsson, sem er
á mála hjá Nantes í Frakklandi, og er
hann ekki hálfdrættingur á við Gylfa
þegar kemur að launum. Ekki einu
sinni fimm launahæstu forstjórarnir í
Kauphöll Íslands til samans, ná Gylfa
í launum.
Það er ekkert leyndarmál að af
reksmenn í knattspyrnu fá ríkulega
launað fyrir vinnu sína en til saman
burðar og gamans tók DV saman lista
yfir nokkrar starfsstéttir hér á landi og
fann út hversu langan tíma það tæki
tiltekinn fjölda starfsmanna þeirra
stétta að vinna sér inn árslaun at
vinnumannanna. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Fá ríkulega launað Gylfi Þór Sigurðsson er mjög líklega með hæstu laun allra íslenskra launþega. Mynd EPA
Gylfi Þór Sigurðsson
– Swansea
Árslaun: 512 milljónir Mánaðarlaun:
42,7 milljónir
Kolbeinn Sigþórsson
– nantes
Árslaun: 220 milljónir Mánaðarlaun:
18,3 milljónir
Aron Jóhannsson
– Werder Bremen
Árslaun: 201 milljón Mánaðarlaun: 16,7
milljónir.
Ragnar Sigurðsson
– Fulham
Árslaun: 147 milljónir Mánaðarlaun:
12,2 milljónir
Emil Hallfreðsson
– Udinese
Árslaun: 145 milljónir Mánaðarlaun:
12,1 milljón
Samtals grunnárslaun
knattspyrnumannanna
fimm: 1.225 milljónir króna
Ríkisstjórnin
Árslaun forsætisráðherra: 24,2 milljónir Árslaun hinna 10 ráðherranna: 219 milljónir.
Árslaun ríkisstjórnar: 243,4 milljónir.
Tími sem tæki alla ellefu ráðherra ríkisstjórnarinnar að vinna fyrir árslaunum fimm launahæstu
knattspyrnumannanna: 5 ár
Læknar
Á mánuði: 922.845 kr. Árslaun: 11 millj-
ónir Árslaun fimm lækna: 55 milljónir
Tími sem tæki fimm íslenska lækna að
vinna fyrir árslaunum fimm launahæstu
knattspyrnumannanna: 22 ár
Miðað við meðaldagvinnulaun fyrir
Læknafélag Íslands fyrstu 9 mánuði
ársins 2016. Til dagvinnulauna teljast
mánaðarlaun og tímakaup í dagvinnu.
Grunnskóla-
kennarar
Á mánuði: 397.555 kr. Árslaun: 4,7
milljónir Árslaun fimm grunnskóla-
kennara: 23,5 milljónir.
Tími sem það tæki fimm grunnskóla-
kennara að vinna fyrir árslaunum fimm
launahæstu knattspyrnumannanna: 51 ár
Miðað við grunnlaun grunnskólakennara.
Forstjórar
Árslaun fimm forstjóra:
493,9 milljónir
Tími sem það tæki forstjórana
fimm að vinna fyrir árslaunum
fimm launahæstu knattspyrn-
umannanna: 2,5 ár
Miðað við launahæstu forstjóra
félaga sem skráð eru í Kauphöll
Íslands eins og þau birtust í
ársreikningi fyrir árið 2015.