Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Síða 17
Helgarblað 13.–16. janúar 2017 Fréttir Erlent 17 fólki að hann hefði skotið mann. Í fyrstu trúði honum enginn, enda var Edwin aðeins tólf ára og leit ekki út fyrir að vera deginum eldri. Lögregla var kölluð á staðinn og var Edwin handtekinn í kjölfar- ið. Við yfirheyrslur hjá lögreglu ját- aði hann að hafa skotið Edwards til bana og sagðist hann hafa tek- ið þá ákvörðun einn og óstuddur. Hardeman, sem þegar þarna var komið sögu, var nýbúinn að afplána dóm sem hann fékk fyrir morð á 86 ára karlmanni sem hann stakk til bana. Hann var einnig handtekinn og fékk hann 30 ára fangelsisdóm gegn því að vitna gegn Edwin og játa á sig vopnað rán. Lögunum breytt Árið 1987 var lögum breytt á þann veg að hægt var að rétta yfir börn- um líkt og um fullorðna einstaklinga væri að ræða. Þetta átti við um þau tilvik þegar börn frömdu sérstaklega alvarlega glæpi. Lögunum var kom- ið á í kjölfar aukinnar glæpatíðni meðal ungmenna og talin var tengj- ast gengjastarfsemi og útbreiðslu krakks sem hafði aukist hratt. Sak- sóknarar töldu að með morðinu á Edwards væri komið kærkomið tækifæri til að nota þessi nýju lög og fór svo að réttað var yfir Edwin líkt og um fullorðinn einstakling væri að ræða. Svo fór að hann var dæmdur í 27 ára fangelsi árið 1992 þrátt fyr- ir að verjendur hans hafi reynt að benda á að hann væri í raun sjálfur fórnarlamb slæms félagsskapar. „Var alveg sama um allt“ Edwin var í kjölfarið sendur í West Texas State School, fangelsi fyr- ir unga afbrotamenn, þar sem fangar lögðu einnig stund á nám. Þar lenti Edwin í alls konar vand- ræðum. Hann braut vasa á andliti sögukennara skólans með þeim af- leiðingum að kennarinn kinnbeins- brotnaði. „Mér var alveg sama um allt. Ég taldi mig ekki hafa neinu að tapa,“ sagði hann. Í kjölfarið var hann fluttur á milli afplánunarstofnana þar sem hann hélt áfram að vera til vandræða. Hann hafði þvaglát í klósettpappír og kastaði pappírnum í fangaverði, hafði hægðir á gólfið og dreifði úr þeim á veggi herbergis síns. Í janúar árið 1997, árið sem Edwin varð átján ára, mætti hann fyrir dómara þar sem átti að meta hvort hann hefði tekið framförum og hvort hann væri ef til vill hæfur til að fara í vægara úr- ræði en innan múra öryggisfangels- is. Faðir Edwins bar vitni í málinu og gagnrýndi hann yfirvöld harð- lega. Spurði hann dómara hvort hann teldi að um betrunarvist væri að ræða og hvort Edwin kæmi út úr kerfinu sem betri einstaklingur. Þegar saksóknarar bentu á að Ed- win hefði brotið 178 sinnum af sér í unglingafangelsum Texas-ríkis var dómaranum nóg boðið og fyr- irskipaði að Edwin þyrfti að afplána restina af dómnum í almenna fang- elsiskerfinu. Tilbúinn að breytast Svo fór að Edwin var fluttur í fang- elsi í Texas-ríki þar sem hann gekk í raðir klíku innan fangelsisins. Áður en hann varð tvítugur hafði hann brotið margoft af sér, þar á meðal var hann dæmdur til fjögurra ára hegningarauka fyrir að stinga sam- fanga sinn árið 1998. Síðan varð ákveðin hugarfarsbreyting hjá Ed- win, eins og hann lýsti í viðtali við Texas Monthly. Hann var tilbúinn að breytast og snúa við blaðinu. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að einstaklingar sem brjóta ítrek- að af sér sem börn hafi oft þá til- hneigingu að hætta afbrotum sínum þegar þeir komast á fullorðinsár. Í einni rannsókn sem vísað er til voru 1.300 ungir afbrotamenn skoðaðir og þeim fylgt eftir í sjö ár. Að þess- um sjö árum liðum höfðu aðeins tíu prósent þeirra brotið af sér eft- ir að á fullorðinsár var komið. Talið er að rekja megi ástæðuna til þess að framheilabörkurinn (e. prefron- tal cortex), sem hjálpar okkur með- al annars að taka ábyrgar ákvarðanir og stjórna tilfinningum og hvötum, þroskast ekki að fullu fyrr en komið er á þrítugsaldurinn. Áfall árið 2007 Í viðtalinu sagði Edwin að hann hefði fengið nóg af uppreisn, slags- málum og gengjastarfsemi. Hann hellti sér í lestur bóka, ritaði nið- ur æviminningar sínar og fór í nám þar sem hann kláraði til að mynda gagnfræðaprófið. Hann sneri baki við genginu sem hann tilheyrði og virtist vera að breytast. Eftir því sem árin liðu varð Edwin sannfærðari um að dómurinn sem hann hlaut hefði verið ósanngjarn og harðari en efni stóðu til. „Réttarkerfinu fyrir unga af- brotamenn var komið á svo þessi ungmenni gætu fengið annað tæki- færi í lífinu,“ segir hann. Hann fór að berjast fyrir endurupptöku á máli sínu og árið 2007, þegar Edwin var 27 ára og átti enn 12 ár eftir af dómi sínum, fékk hann ný réttarhöld af ástæðum sem verða ekki frekar raktar hér. Í réttarhöldunum sagði verjandi hans, Lisa Jarrett, að Edwin hefði verið rændur barnæsku sinni, hann hefði þegar afplánað sextán ár í fangelsi og ekki brotið af sér í nokk- ur ár innan fangelsisins. Saksóknar- ar lýstu því aftur á móti í smáatrið- um hvernig hann myrti Edwards á sínum tíma, hvernig hann gortaði sig af morðinu, stungunni á sam- fanga hans og öllum þeim brotum sem Edwin hafði gerst sekur um. Jill Mata, saksóknari í málinu, sagði kviðdómendum að þeir gætu lækkað refsinguna og jafnvel sleppt Edwin lausum, en þeir gætu einnig þyngt hana. Það er einmitt það sem gerðist. Edwin var dæmdur í 40 ára fangelsi, sem þýddi að 13 ár bættu- st við 27 ára dóminn sem hann upp- haflega fékk. Síðan þá hafa árin liðið og enn eru 14 ár þar til Edwin lýkur afplánun. Tilbreytingarsnautt líf Í viðtalinu lýsti hann því hvernig venjulegur dagur gengur fyr- ir sig. Hann vaknar klukkan fimm á morgnana, rakar sig, þvær sér og burstar tennurnar. Því næst les hann stuttlega tilvitnanir úr Biblí- unni áður en hann fer úr klefa sín- um klukkan 5.30 og niður í kaffi- teríuna þar sem hann starfar sem kokkur. Að vakt lokinni fer hann í sturtu, horfir á sjónvarpið með öðrum föngum: fréttir, Dr. Phil og Judge Judy þar á meðal. Því næst fer hann í klefa sinn, gerir æfingar og útbýr síðan kvöldmat sem sam- anstendur yfirleitt af Ritz-kexi með túnfiski eða makríl, kalkúni og flög- um. Á kvöldin horfir hann svo á sjónvarpið, eða dvelur í klefa sín- um og skrifar bréf til móður sinnar eða systur. Þegar hann er einmana opnar hann myndaalbúm og skoðar gamlar myndir af sér og fjölskyldu sinni. Klukkan 22.30 fer hann í hátt- inn. „Svona gengur lífið fyrir sig, dag eftir dag.“ Hafnað um reynslulausn Edwin kveðst reyna að bæta sig á hverjum degi en frá árinu 2007 hefur hann tvisvar brotið af sér innan fangelsisins. Í annað skipt- ið var hann gripinn með farsíma, sem hann sagðist nota til að hr- ingja í móður sína, og í hitt skipt- ið komst upp um ástarsamband hans og kvenfangavarðar í álmunni sem hann dvelur í. „Við stunduðum kynlíf inni í skáp. Hvernig átti ég að hafna því,“ spurði hann í viðtalinu. Edwin kveðst hafa sótt um reynslulausn nokkrum sinnum á undanförnum árum en ávallt verið hafnað. „Kannski halda þeir að ég muni drepa aftur,“ segir Edwin sem kveðst vera allt annar maður í dag, 37 ára gamall, en þegar hann var tólf ára. Á margt ólært Í viðtalinu var einnig rætt við að- standendur Edwards, leigubílstjór- ans sem Edwin myrti á sínum tíma. Þeir eru mótfallnir því að Edwin losni út og segja að réttlætinu verði ekki fullnægt fyrr en Edwin afplán- ar dóminn að fullu. „Þessi mað- ur svipti góðan mann lífi,“ sagði móðir Edwards, Jessie Mae. Óvíst er hvenær og þá hvort Edwin fái nokkru sinni reynslulausn, en hann verður orðinn fimmtugur þegar hann losnar út árið 2031. Í umfjöllun Texas Monthly er bent á þá augljósu staðreynd að einstaklingar, sem hafa verið innan veggja fangelsis nær allt sitt líf, séu mjög illa undir það búnir að aðlag- ast lífinu utan fangelsismúranna. „Þeir hafa í mörg ár lært hluti sem eru í algjöri andstæðu við það sem gengur og gerist úti í samfélaginu,“ segir Michele Deitch, prófessor við University of Texas, sem varið hefur stórum hluta af sínum ferli í rann- sóknir á ungum afbrotamönnum. „Þeim hefur verið kennt að passa sig, líta yfir öxlina í hvert skipti sem einhver nálgast þá og treysta eng- um. Þeim hefur verið kennt að slá fyrsta höggið til að verja sig. Þeir hafa ekki hugmynd um hvernig á að lifa eðlilegu fjölskyldulífi eða mynda eðlileg vinatengsl. Þessi börn hafa alist upp í litlum búrum þar sem þau hafa upplifað hluti sem við get- um ekki ímyndað okkur.“ Ljóst er að Edwin á margt ólært; hann hefur aldrei opnað bankareikning, aldrei leigt sér íbúð, aldrei sótt um starf, aldrei notað internetið. „Ég veit að sumir halda því fram að ég muni ekki ná að að- lagast þegar ég losna. En ég lofa því að ég mun aldrei koma hingað aft- ur, mér mun ganga vel,“ segir hann og bætir við að það sé hans draumur að skrifa endurminningar sínar og hjálpa ungmennum sem villst hafa af réttri braut. „Ég vil skipta máli og láta gott af mér leiða.“ n Curtis Ray Edwards Var 33 ára gamall þegar hann var myrtur. Hann lét eftir sig sex ára son. Tólf ára morði gi„Mér var alveg sama um allt. Ég taldi mig ekki hafa neinu að tapa. „Réttarkerf- inu fyrir unga afbrota- menn var komið á svo þessi ung- menni gætu feng- ið annað tækifæri í lífinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.