Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Síða 23
Grænar vörur fyrir fjölskylduna
Bambus.is: Sköpunargleði barnsins og náin tengsl við foreldra
V
efverslunin Bambus.is býð
ur upp á afar fjölbreyttar
vörur innan ákveðinnar
hugmyndafræði. Allar
vörurnar eru umhverfis
vænar og meðal annars er í boði
fatnaður, unninn úr lífrænni ull og
silki. Enn fremur býður verslunin
upp á umhverfisvænar ungbarna
vörur eins og margnota taubleiur
og fylgihluti ásamt burðarsjölum og
pokum sem styrkja tengsl foreldra og
barns, sem og leikföng, föndurvörur
og skólavörur sem byggja á Waldorf
stefnunni, en hún veitir mikið rými
fyrir sköpunargleði barnsins og
gengur út á að fræða þau með leik og
uppgötvun í stað ítroðslu.
„Í Waldorfstefnunni er ekki
bara verið að þjálfa heilann
heldur snýst þetta um
allt í senn, hug, hönd og
hjarta. Jöfn áhersla er á
listgreinar eins og bók
legar greinar. Vakinn er
áhugi og eftirvænting
hjá barninu, stærð
fræði, framkoma, lestur
og heimanám – allt er
þetta gert spennandi,“
segir Dagný Ósk Ás
geirsdóttir, eigandi
Bambus.is.
„Í samræmi
við þetta eru líka
leikföngin sem
við erum með en
þau eru úr nátt
úrulegum efn
um og til dæm
is eru púslin ekki
bara með eina
rétta leið held
ur fær sköpunar
gleði barnsins fær
að njóta sín,“ segir
Dagný enn fremur.
„Taubleiur eru alltaf að verða vin
sælli og eru ástæðurnar helst um
hverfisvitund og sparnaður. Sam
kvæmt tölum sem ég hef fengið frá
Sorpu og íbúafjölda á höfuðborgar
svæðinu þá reiknast út að á
árinu 2014 fóru 2.616 tonn
af bréfbleium og bréf
dömubindum til Sorpu til
urðunar. Og svo tekur það
hverja einustu bréfbleiu
200–600 ár að leysast
upp í umhverfinu. Síðan
eru taubleiurnar líka
miklu flottari. Við erum
með mikið úrval af tau
bleium og veitum foreldrum
allar upplýsingar um eigin
leika og notkun.“
Ýmiss konar upp
byggilegar bækur eru til
sölu í Bambus.is, meðal
annars skemmtilegar
föndurbækur fyrir
foreldra til að
föndra
fyrir og með börnum sínum.
Sem fyrr segir eru allar vörur í
Bambus.is umhverfisvænar og sem
dæmi má nefna að verslunin selur
margnota dömubindi og brjóstainn
legg.
Nánari upplýsingar og vefverslun
eru inni á vefsvæðinu www.bambus.
is. Vörur eru sendar hvert á land
sem er. Auk netverslunarinnar rekur
Bambus.is verslun að Borg
artúni 3 og þar er gott að
koma og skoða úrvalið og
fá ráðgjöf. Verslunin er opin
mánudaga og fimmtudaga frá
kl. 10 til 14. n
Netverslanir
Kynningarblað
Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is
13. janúar 2017