Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 28
Helgarblað 13.–16. janúar 201724 Fólk Viðtal að sækja um örorkubætur sem duga varla fyrir húsnæði, hvað þá meiru, þarf að auki að punga út tugum þús- unda í hverjum mánuði því það er rándýrt að vera veikur. Auðvitað ætti fólk í þessari stöðu ekki einu sinni að þurfa að taka upp veskið þegar það fer til læknis eða í rannsóknir.“ Eftir stutta þögn heldur Ragn- heiður áfram og segir: „Það eru margir sem missa allt þegar þeir veikjast. Það er svo margt rangt við þetta en samt gerir enginn neitt.“ Frumskógur Hún sjálf kveðst vera heppin mið- að við marga. „Mamma mín býr hjá okkur. Hún hugsar um mig þegar Ravi er að vinna. Við búum í Hvera- gerði og mamma á húsið. Ég sjálf hefði aldrei haft efni á að kaupa mér þak yfir höfuðið. Áður en ég veiktist hélt ég að ég hefði nægan tíma til að vinna og safna mér peningum fyrir íbúð. En svo var víst ekki. Ef ég hefði ekki manninn minn og mömmu þá væri ég örugglega á götunni. Svo er það hin hliðin, það er hversu fáránlega flókin þessi kerfi eru. Það er mjög erfitt fyrir sjúklinga að þeytast um allan bæ til að stússast í pappírsvinnunni sem tilheyrir því að vera öryrki. Þetta er algjör frum- skógur.“ Ragnheiður segist oft hafa rætt þetta við starfsmenn innan kerfisins. Yfirleitt fær hún þau svör að kerfið sé gert svona flókið í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að fólk svindli á því. „Það er algjörlega fáránlegt. Í fyrsta lagi; hver í ósköpunum myndi kjósa að vera öryrki og þurfa að sætta sig við að lifa undir fátækramörkum? Í öðru lagi; þetta geta ekki verið svo margir einstaklingar miðað við þann fjölda sem treystir alfarið á kerfið. Og það bitnar á okkur.“ Enginn vill vera sjúklingur Ragnheiður segir að desember hafi verið erfiður mánuður fjárhagslega. Örorkubæturnar dugðu ekki fyrir jólunum og hún þurfti enn og aftur að leita í varasjóð sem átti þó aðeins að vera fyrir útgjöldum sem tengjast krabbameininu. Sjóðurinn er tilkominn vegna söfnunar í tengslum við viðtalið á bleikt.is. Ragnheiður er gríðarlega þakklát þeim sem lögðu hönd á plóg. „Sjóðurinn er ástæða þess að ég á fósturvísi í frysti. Ég fyllist auðmýkt þegar ég hugsa út í hvað fólkið, sem þekkti mig ekki neitt, gerði fyrir mig. Hvernig þakkar maður eiginlega fyrir svona?“ Hún segist hugsa mikið til þeirra sem eru í svipuðum sporum og hún sjálf en hafa hvorki bakhjarla né varasjóð. „Að takast á við fjárhagsáhyggjur ofan í alvarleg veikindi er algjörlega galið. Alltof margir eru í þessari ömur legu stöðu. Það velur sér enginn að vera sjúklingur. Það þarf ekki að vera saga eða langur aðdragandi að því að veikjast. Þú ert bara að lifa lífinu og allt í einu breytist allt. Fótunum er kippt undan þér og þú verður fangi sjúkdómsins. Þú hefur ekkert val.“ Gömul tugga Ragnheiður bendir réttilega á að það sem hún sé að segja í sambandi við stöðu öryrkja á Íslandi sé alls ekkert nýtt. „Það hafa svo margir lýst þessum aðstæðum en lítið gerist. Mér finnst þegar rætt er um kjör öryrkja þá sé ávallt talað fyrir daufum eyrum.“ Þá segir hún að þrátt fyrir það þurfi að halda umræðunni áfram í þeirri von að á endanum verði eitthvað almennilegt gert í málunum og kjör fólks sem þráir ekkert heitar en að verða heilbrigt og geta tekið virkan þátt í samfélaginu verði leiðrétt í samræmi við launaþróun í landinu. „Þögn er sama og samþykki og ég ætla aldrei að samþykkja hvernig farið er með öryrkja á Íslandi.“ n S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Innleiðingu á greiðsluþátt- tökukerfi frestað til 1. maí Reglugerðir um hlutdeild í kostnaði verða settar fyrir lok janúar Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fresta innleiðingu á nýju greiðsluþátttökukerfi vegna heilbrigðisþjónustu til 1. maí næstkomandi. Þetta er í annað skipti sem gildistökunni er frestað. Ákvörðunin byggist á því að meiri tíma þurfi til að undirbúa kerfisbreytinguna, fyrst og fremst vegna ýmissa tækni- legra örðugleika við útfærslu hennar. Alþingi samþykkti 2. júní síðastliðinn breytingu á lögum um sjúkratryggingar þar sem kveðið var á um grundvallarbreytingar á fyrirkomulagi á greiðslu sjúklinga fyrir heilbrigðisþjónustu. Lögin áttu að taka gildi 1. febrúar næstkomandi. Samkvæmt nýju greiðsluþátttökukerfi verður tryggt að mánaðarlegar greiðslur fólks fyrir heilbrigðisþjónustu fari aldrei yfir tiltekið hámark og að þar með verði jafn- framt sett þak á árleg heildarútgjöld fólks fyrir þá heilbrigðisþjónustu sem fellur undir nýja greiðsluþátttökukerfið. Undir nýja kerfið fellur þjónusta heilsugæslu, sjúkrahúsa, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna, rannsóknir og geisla- og myndgreining. Ekki hefur verið gert ráð fyrir að auknu fé verði varið inn í kerfið heldur að fjármagn verði fært til innan þess. Stefnt er að því að reglugerðir um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heil- brigðisþjónustu verði settar fyrir lok þessa mánaðar. Núverandi fyrirkomulag greiðsluþátttöku helst því áfram óbreytt þar til nýja kerfið tekur gildi þann 1. maí næstkomandi. „Þetta er fáránlegt, næstum því hlægilegt“ Ellen segir stöðu örorkulífeyrisþega á Íslandi mjög slæma „Staða örorkulífeyrisþega á Íslandi í dag er mjög slæm og mannréttindi eru ekki virt að fullu þegar fólki er gert að lifa á slíkri lúsarfram- færslu.“ Þetta segir Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands, og bendir á að örorkulífeyrisþegar, sem eru aðeins með örorkulífeyri frá Tryggingastofnun, fái um 197 þúsund krónur á mánuði til framfærslu. Á sama tíma er heilbrigðisþjónusta á Íslandi enn sem komið er alltof dýr. „Þeir örorkulífeyrisþegar sem þurfa að nýta sér heilbrigðisþjónustuna reglulega og nota lyf hafa ekki efni á að standa undir húsnæðis kostnaði. Hvað þá að lifa með mannlegri reisn í íslensku samfélagi.“ Þá tekur Ellen dæmi: „Ef örorkulífeyrisþegi er með fastan kostnað upp á 30 til 50 þúsund krónur á mánuði í heilbrigðistengd útgjöld þá standa eftir 150 þúsund krónur. Þú leigir ekki eða greiðir af lánum af íbúð undir 100 þúsund krónum á mánuði. Enginn getur það. Þetta er fáránlegt, næstum því hlægilegt. Þá standa eftir 30 til 50 þúsund krónur til að kaupa í matinn, borga fyrir samgöngur, fara til tannlæknis og allt annað er tilheyrir því að vera til.“ Ellen bendir á að framfærsla öryrkja sé langt fyrir neðan dæmigerð neysluviðmið. „Svo horfum við á að laun kjörinna fulltrúa hækka um hærri upphæð en heildarupphæð örorkulífeyrisþega er. Og það á einu bretti. Það finnst mér ómannúðlegt.“ „Það hafa svo margir lýst þess- um aðstæðum en lítið gerist. Mér finnst þegar rætt er um kjör öryrkja þá sé ávallt talað fyrir dauf- um eyrum. Tekur á Ragnheiður á tvær erfiðar lyfja- meðferðir að baki. Mynd Úr EinkasaFni Mynd siGTryGGur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.