Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Side 31
Helgarblað 13.–16. janúar 2017
fyrsta tækifæri hans með enska
landsliðinu kom. Það gerðist í vin-
áttuleik Englands og Frakklands á
Wembley í nóvember 2015 og þakk-
aði Alli traustið með því að skora í
sínum fyrsta landsleik í 2-0 sigri.
Erfið æska
„Það sem verður að hafa í huga
varðandi Dele Alli er að hann átti
ekki auðvelda æsku,“ sagði Mike
Dove, yfir maður unglingaakadem-
íu MK Dons í áðurnefndu viðtali í
Tele graph, um leikmanninn. „Æska
hans gerði hann að þeim leikmanni
sem hann er. Hann er algjörlega
óttalaus og það er ekkert sem veld-
ur honum áhyggjum,“ sagði Mike
Dove. Alli er alinn upp í Bradwell-
hverfinu í Milton Keynes sem er eitt
fátækasta hverfi borgarinnar. Og
uppvaxtarár Alli voru enginn dans
á rósum.
„Hlutirnir voru erfiðir, mjög erf-
iðir,“ sagði Denise, móðir hans, í
viðtali um æskuár sonarins. „Ég átti
fjögur börn með fjórum mönnum,“
sagði hún og bætti við að hún hafi
alið börnin upp ein í þriggja her-
bergja félagsíbúð í hverfinu. Faðir
Alli, Kenny, er frá Nígeríu og flutti
hann til Bandaríkjanna viku eftir
að Alli kom í heiminn. Hann hafði
því enga föðurímynd á uppvaxtar-
árum sínum, engan sem gat leið-
beint honum um hvernig hlutirnir
gengu fyrir sig í samfélaginu í Brad-
well. Denise þjáðist þar að auki af
áfengissýki og leitaði Dele Alli mik-
ið út fyrir heimilið og ávallt með
bolta í farteskinu. Hann eyddi öll-
um stundum á sparkvöllum hverf-
isins. „Það er ekkert leyndarmál að
sem barn var hann mikið úti á götu.
Það er stundum sagt að til að verða
afreksmaður í knattspyrnu þurf-
ir þú að eyða tíu þúsund klukku-
stundum við æfingar. Og ef þú get-
ur gert það á eigin spýtur og ekki
undir leiðsögn, þeim mun betra.
Hann lærði fótbolta sjálfur, lærði að
gera mistök og lærði af þeim,“ sagði
Mike Dove.
Breytti nafninu á treyjunni
Samskipti Alli og föður hans hafa
verið lítil á undanförnum árum og
í haust vakti til að mynda athygli
þegar Alli ákvað að nota nafnið
Dele aftan á treyju sinni í stað þess
að nota Dele Alli eins og hann gerði
á síðustu leiktíð. Þetta gerði Alli
að sögn þar sem hann kvaðst ekki
finna neina tengingu við föðurnafn
sitt. Í kjölfarið steig faðir hans fram í
viðtali við breska fjölmiðla þar sem
hann sagðist allur af vilja gerður
til að koma á betra sambandi milli
þeirra feðga. Það virðist ekki hafa
skilað tilætluðum árangri og notast
leikmaðurinn enn við nafnið Dele.
Sem fyrr segir gekk Alli ekki í
unglingaakademíu MK Dons fyrr
en hann var ellefu ára, sem er
nokkuð hár aldur í nútímafótbolta
þegar leikmenn allt niður í fimm
ára aldur eru handvaldir af útsend-
urum knattspyrnuliða. Dove segir
að hann hafi strax séð að Alli væri
einstakur leikmaður, allt frá hans
fyrstu æfingu. Dove segir að Alli hafi
einnig verið þeim kostum búinn að
vera náttúrulega góður íþróttamað-
ur; fljótur og með einstakt úthald
sem fleytti honum langt. En Dove
segir að hugarfarið hafi einnig verið
einstakt hjá Alli. „Hann setti sér sí-
fellt nýjar áskoranir og leitaði leiða
til að gera í leikjum hluti sem hann
hafði æft á æfingum.“
Flutti af heimilinu 13 ára
Þegar Alli var þrettán ára ákvað
Denise, móðir hans, að best væri
fyrir Alli að hann færi í fóstur hjá
annarri fjölskyldu í Milton Key-
nes. Heimilið var undir smásjá
félagsmála yfirvalda, meðal annars
í ljósi áfengisvanda Denise, og
kvaðst Denise í viðtali hafa talið að
Alli væri betur kominn hjá annarri
fjölskyldu. Svo fór að Alli flutti í
betra hverfi, Cosgrove, og bjó hann
þar allt þar til hann var seldur til
Tottenham. Þessi ráðahagur virðist
hafa gert Alli gott því að sögn Dove
tók hann stórstígum framförum um
leið og hann var kominn í betra og
rólegra umhverfi. Það sést kannski
best á því að sextán ára gamall var
hann farinn að æfa og spila með
aðalliði MK Dons. Alli er aðeins
tvítugur og í raun enn að stíga sín
fyrstu skref sem atvinnumaður í
vinsælustu íþrótt heims.
Robinson kvaðst í viðtalinu við
Telegraph ekki vera undrandi á
þeirri velgengni sem Alli hefur not-
ið fyrstu misseri sín í ensku úrvals-
deildinni. „Í hvert skipti sem hann
fær nýja áskorun lætur hann hend-
ur standa fram úr ermum og ger-
ir sitt besta. Hann lætur ekkert á
sig fá; ef þú skammar hann sýn-
ir hann engin svipbrigði og ef þú
hrósar honum sýnir hann engin
svipbrigði. Hann er bara þannig
leikmaður og einstaklingur,“ sagði
Robinson.
Dele Alli, sem á 15 landsleiki
að baki fyrir England, verður í
eldlínunni í hádeginu á laugar-
dag þegar Tottenham tekur á móti
WBA. n
„Hann er
algjörlega
óttalaus og það er
ekkert sem veldur
honum áhyggjum.
Magnaður Dele Alli
hefur skorað 20 deildar-
mörk í 52 deildarleikjum
fyrir Tottenham. Mynd EPA
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar
sem lífga upp á allar uppákomur
Aðeins
á viku
á starfsmann
Ávextir í áskrift
kosta um 550 kr.
á mann á viku og
fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
Sport 27