Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Qupperneq 40
Helgarblað 13.–16. janúar 201736 Menning
Dæmið ekki, svo að þér
verðið ekki dæmdir
S
káldsagan Gott fólk kom
út árið 2015 og vakti þá
ekki síst athygli fyrir þær
sakir að framvinda sögunn-
ar var augljóslega í stórum
dráttum fengin að láni frá samskipt-
um tveggja einstaklinga sem að ein-
hverju leyti höfðu verið opinberuð á
samfélagsmiðlum og í viðtölum í DV
nokkrum árum áður. Bókin var ekki
skrifuð með vilja eða vitund þessara
einstaklinga og þeir ekki heldur
hafðir með í ráðum við uppsetningu
Þjóðleikhússins á verkinu. Nokkur
áþekk dæmi þar sem höfundur styðst
við harmleik úr lífi raunverulegra
einstaklinga og í opinberri óþökk,
eru vel þekkt úr bókmenntaheimin-
um. Nægir þar að nefna bæði Djöfla-
eyju Einars Kárasonar og Konu við
1000° eftir Hallgrím Helgason. Þessi
verk hafa, líkt og Gott fólk gerir nú,
skapað togstreitu á milli sjálfs tján-
ingarfrelsisins og þeirrar lífsreglu að
aðgát skuli höfð í nærveru sálar.
Ábyrgðarferli og dómstóll
götunnar
Leikritið fjallar um samskipti einstak-
linga sem áttu í einhvers konar sam-
bandi í rúmt ár. Sara elskar Sölva og
vill byggja framtíð sína með honum.
Sölvi er hins vegar uppfullur af sjálf-
um sér, klár og myndarlegur strákur
sem vegna vinnu sinnar í fjölmiðlum
er orðinn svolítið þekktur. Hann lærir
að troða niður öll mörk Söru, smán-
ar hugmyndir hennar og skoðanir
og fær hana til niðurlægjandi kyn-
lífsathafna. Sambandi þeirra lýkur
og niðurbrotin endar
Sara hjá Stígamótum. Í
samvinnu við vini sína
reynir hún síðar að fá
Sölva til þess að taka
þátt í ábyrgðarferli,
gangast við gjörðum
sínum, taka á þeim
ábyrgð og hlýða þeim
óskum sem þolandi
setur fram. Sölvi tekst
á við ábyrgðarferlið
en málið æxlast öðru-
vísi en ætlað var. Það
kemst í almenna umræðu, dóm-
stóll götunnar fellir grimma dóma
og miðlar þeim af miklu skilnings-
leysi til eins margra og málið nær til.
Refsing netverja er ævilöng, færslur á
vefnum eilífar.
Stefán Hallur fer með hlutverk
Sölva. Það hefði skapað meiri
spennu í verkinu að fínstilla hann
betur og sýna einstakling með meiri
sjarma. Það grimma
kynferðislega of-
beldi sem fram kom
að hann hefði beitt
Söru, gekk óþarflega
langt og veikti trú-
verðugleika efasemda
hans um ásakanirn-
ar. Að sama skapi er
Sara, sem leikin er af
Vigdísi Hrefnu Páls-
dóttur, svolítið ein-
föld. Höfundur beitir
ekki sömu kröftum í að
skýra hennar persónu og því er Vig-
dísi töluverður vandi á höndum. Í
verkinu svarar hún til dæmis aldrei
fyrir það að hafa boðið Sölva að taka
þátt í ábyrgðarferlinu, án þess að sjá
til þess að hann fengi nauðsynlegan
stuðning og ef til vill án nauðsyn-
legrar reynslu og þekkingar á að-
ferðinni. Hans besti vinur, Tryggvi,
sem leikinn er af Snorra Engilberts-
syni, gat til dæmis aldrei annað en
staðið með öllu sem Sölva datt í hug,
enda var hann að mörgu leyti í sömu
sporum og Sara, meðvirkur og undir
hælnum á Sölva.
Kröftug sýning þrátt fyrir
agnúa
Allir leikararnir voru í áþekkum
svörtum hlutlausum búningum en
það gerði persónurnar fjarlægari
áhorfendum. Hlutleysið rann líka
út í sandinn því í tilfelli Baltasars
Breka Sampers virkaði búningur-
inn valdeflandi og eins og sniðinn á
hann í hlutverki Grímars, á meðan
þeir voru ólögulegir á öðrum. Fyrri
hluti verksins var of hægur en það
rann mun betur eftir hlé. Þá voru
senur kvenleikaranna áberandi síð-
ur unnar af hálfu handritshöfundar
auk þess sem framsaga þeirra ein-
kenndist oft af stökum setningum
sem slitnar voru í sundur þannig að
flæði vantaði í frásögn. En þrátt fyrir
að þannig megi finna litla agnúa á
verkinu, þá er þetta kröftug og áleitin
sýning með góðum leikurum.
Það er mikilvægt að læra að setja
sín mörk og virða þau, sem og að
traðka ekki á mörkum annarra. Það
höfum við þó líklega öll gert með
einum eða öðrum hætti. Verkið vek-
ur upp margar spurningar, ekki síst
um stöðu þolenda og gerenda en
einnig um þolmörk vináttunnar og
afleiðingar hatursumræðu á sam-
félagsmiðlum, dómstól götunnar,
grimmd hans og ábyrgðarleysi. Efni
verksins leitar á mann, löngu eftir að
sýningu lýkur. n
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Gott fólk
Höfundur: Valur Grettisson
Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir
Leikgerð: Símon Birgisson og Valur Grettis-
son í samvinnu við Unu Þorleifsdóttur
Leikarar: Stefán Hallur Stefánsson, Vigdís
Hrefna Pálsdóttir, Baltasar Breki Samper,
Lára Jóhanna Jónsdóttir, Snorri Engilberts-
son og Birgitta Birgisdóttir
Dramatúrg: Gréta Kristín Ómarsdóttir
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger
Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson og Magnús
Arnar Sigurðarson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu
„Efni verksins leitar
á mann, löngu
eftir að sýningu lýkur.
mynD Hörður sveinsson
F
jórir rithöfundar undir þrítugu
fá úthlutað listamannalaun-
um í ár og hafa þeir ekki verið
jafn margir í meira en áratug,
eða frá árinu 2005. Þetta eru þau
Valgerður Þóroddsdóttir (f. 1989),
Alexander Dan Vilhjálmsson (f.
1988), Ásta Fanney Sigurðardótt-
ir (f. 1987) og Tyrfingur Tyrfings-
son (f. 1987). Öll hljóta þau þriggja
mánaða laun, nema Tyrfingur sem
hlýtur sex mánuði, en hann er jafn-
framt eini höfundurinn úr þessum
hópi sem hefur hlotið launin áður.
Heildarmánaðafjöldinn sem rithöf-
undarnir fjórir hljóta, 15 mánuðir,
er þó aðeins tæplega fjórðungur
þess mánaðafjölda sem ungskáldin
fjögur hlutu árið 2005, en þá var
mánaðafjöldinn 63.
Á síðustu árum hafa nokkrar
umræður spunnist um tak-
markaða möguleika ungra
skálda á að hljóta rit-
launin og hefur með-
al annars verið bent á
hversu fáir höfundar
undir þrítugu hafa hlot-
ið úthlutun undanfarinn
áratug. Á árunum 2007
til 2016 hlutu þannig að
meðaltali tveir ungir höf-
undar á ári laun, en á ár-
unum 1997 til 2006 voru
þeir rúmlega fjórir á
ári. Fjöldi mánaða sem
ungir höfundar á árun-
um 2007 til 2016 fengu
úthlutað var enn fremur
aðeins fjórðungur af fjöld-
anum áratuginn áður. n
kristjan@dv.is
Fjórir ungir höfundar fá listamannalaun
Ekki jafn margir höfundar undir þrítugu fengið listamannalaun frá 2005, en þá var mánaðafjöldinn fjórfalt meiri Mánuðir sem ungir
höfundar fá úthlutað
Fjöldi ungra rithöfunda
valgerður
ÞóroddsdóttirAlexander Dan
vilhjálmsson
Ásta Fanney
sigurðardóttir
Tyrfingur
Tyrfingsson