Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Side 48
Helgarblað 13.–16. janúar 2017 3. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Vatnagörðum 24-26 • 104 Reykjavík • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985 • Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535 Honda HR-V kostar frá kr. 3.840.000 MEÐ SJÁLFSKIPTINGU Öruggur, fullkomið skipulag, nákvæmur frágangur og betri í alla staði. Honda HR-V er ekki bara fimm stjörnu bíll hvað varðar öryggi, í HR-V á hver hlutur sinn stað og hlutverk. Við hönnuðum nýjan Honda HR-V með þetta að leiðarljósi. Útkoman er fallegur borgarjeppi, með frábæra eiginleika innan sem utan. Nýr Honda HR-V, fullkominn fyrir þig. ALLT Á SÍNUM FULLKOMNA STAÐ Opið laugardaga milli kl. 12:00 og 16:00 Ég segi og skrifa: B-O-B-A! Bubbi trompar Kött Grá Pjé n Akureyrski rapparinn, Atli Sig- þórsson, betur þekktur sem Kött Grá Pjé, deildi því á Twitter-síðu sinni að það væri „sérstök nautn“ hans að vakna snemma dag hvern til þess að fá sér kaffi og sígó í myrkrinu. Bubbi Morthens var fljótur að yfirtrompa upplifun Atla rækilega. „Ég reykti 40 sígó á dag í áratugi með bundið fyrir augun. Tíu jónur. Sá aldrei fokk- ing ljósið. Það var æði,“ sagði Bubbi. Ekki hefur heyrst múkk í Kött Grá Pjé eftir þessa sleggju. Selur allt – síma- númerið líka n Undanfarna mánuði hefur Brynjúlfur Jóhannesson aug- lýst allt sitt hafurtask til sölu á samfélagsmiðlum. Ráðgerir hann að flytjast til Gvatemala þann 1. febr- úar og þá aðeins með veraldlegar eig- ur sem rúmast í einum bakpoka. Brynjúlfur var til umfjöllunar á síðum DV fyrir skemmstu út af umfangsmikilli ofskynjunarsveppasölu sinni. Brynjúlfur tilgreinir að síma- númerið hans sé einnig til sölu og er lágmarksboð 120 þúsund krónur. Sköllóttar stjörnur n Ragnhildur Steinunn Jóns- dóttir, Annie Mist Þórisdóttir, Björgvin Páll Gústavsson, Jón Jónsson, Saga Garðarsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson taka þessa dagana þátt í árvekni- átaki Krafts, stuðningsfélags fyr- ir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra. Athygli vekur að stjörnurnar eru allar sköllóttar en þetta var gert með hjálp tölvutækni. Kraft- ur hefur boðað til vitundarvakn- ingar um ungt fólk og krabba- mein en félagsmenn Krafts eru einstaklingar á aldrinum 18 til 40 ára sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. „Brynjar er ekki nákvæmur maður“ Alþingismaður setur spurningarmerki við ökuhæfni utanríkisráðherra É g kannast alveg við að hafa heyrt kvartanir en á þessu stigi vil ég ekki tjá mig frekar um þetta mál. Eins og alþjóð veit þá er Brynjar ekki nákvæmur maður og freistar þess við hvert tækifæri að fara með gaman- mál á minn kostnað. Það er alveg ljóst að þessu verður svarað á heppilegum vettvangi,“ segir nýskipaður utanríkis- ráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, í samtali við DV. Ástæða samtalsins er sú að sama dag og tilkynnt var um ráðherraskip- an ríkisstjórnarinnar birti alþingis- maðurinn Brynjar Níelsson fær- slu á Facebook-síðu sinni þar sem hann gantaðist með að fjölmargir Sjálfstæðis menn, einkum ökumenn og gangandi vegfarendur, legðu ríka áherslu á að Guðlaugur Þór yrði ráð- herra. „Þeir segjast ekki sjá eftir þeim kostnaði sem fer í ráðherrabílstjóra fyrir hann,“ sagði Brynjar í færslunni. Færslan féll í góðan jarðveg en þó virtust ekki allir skilja brandarann. Þannig spurði einn góðborgari hvort Guðlaugur Þór væri ekki með bílpróf og því svaraði Brynjar: „Jú, það er einmitt vandamálið.“ Að kvöldi þess sama dags var síðan loks tilkynnt um ráðherraskipanina. Brynjar lét opinberlega í ljós óánægju sína með hana, sérstaklega að reynsla og umboð hafi ekki ráðið för frekar en „kynjasjónarmið“. Hins vegar varð honum og ástríðufullum áhuga- mönnum um íslenska umferðar- menningu úr ranni Sjálfstæðisflokks- ins að ósk sinni þegar Guðlaugur Þór fékk úthlutað utanríkissráðuneytinu og þar af leiðandi bílstjóra. n bjornth@dv.is Brynjar Níelsson Ýjar að því á Facebook að Guðlaugur Þór Þórðars- son utanríkisráðherra sé ekki beinlínis besti bílstjóri landsins. MyND SiGtRyGGuR ARi Guðlaugur Þór Þórðarson Kannast við að hafa heyrt kvartanir vegna aksturslags síns en vildi ekki tjá sig frekar um málið að sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.