Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2017, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2017, Blaðsíða 31
Helgarblað 10.–13. febrúar 2017 Kynningarblað - Valentínusardagurinn 7 Sælkerabakarí í Hveragerði Almar bakari: Í Sunnumörk í Hveragerði er staðsett eitt besta bakarí á landinu og þótt víðar væri leitað. Almar bakari var opnað í apríl 2009 og hefur síðan þá verið bakað þar dýrindis brauð og ljúffengt bakkelsi ofan í þakkláta gesti. Húsnæðið er bjart og nota- legt og er pláss fyrir 70-80 manns í sæti. Allt aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna er til fyrirmynd- ar og er alla jafna brjálað að gera á sumrin, enda alltaf eitthvað nýtt og spennandi á boðstólum. Ljúffengur matur í hádeginu „Það er pastaréttur í hádeginu alla daga nema sunnudaga. Svo erum við með tvær tegundir af súpum á hverjum degi sem eru undan- tekningarlaust gerðar frá grunni. Annars vegar er önnur alltaf klass- ísk þykk súpa með rjóma og er uppbökuð. Hin er grænmetis- súpa sem er þá bæði mjólkur- og glútenlaus,“ segir Ólöf Ingibergs- dóttir, eða Lóa eins og hún er köll- uð. Súpa með ábót, brauð og kaffi er allt saman á 990 krónur, sem má teljast einstaklega hagstætt verð. „Við erum líka með töluvert úr- val af samlokum sem eru einnig mjög vinsælar. Lavasamlokurnar okkar eru til dæmis sérstaklega vinsælar hjá ferðamönnum, en það er svört ciabatta með laxi, eggjum, sinnepssósu og salati,“ segir Lóa. Súrdeigsbrauð og hverabrauð Hjá Almari bakara fást ótal tegund- ir af ýmiss konar brauði. „Við höfum alltaf verið með súrdeigsbrauð hér í bakaríinu. Brauðin okkar eru fram- leidd þannig að það þurfi að nota sem minnst ger. Öll brauðin eru án viðbætts sykurs. Súrdeigsferlinu er ekki flýtt og brauðin fá að hefast í kæli í 18 tíma. Að sama skapi verður bragðið meira og öflugra,“ segir Lóa. Hjá Almari bakara fást einnig dýrindis sælkerabrauð og meðal annars nefnir Lóa svokölluð bagu- ette-brauð með ristuðum lauk. „Þessi eru mjög vinsæl og algerlega þess virði að gera sér ferð úr bæn- um til að sækja eitt slíkt,“ segir Lóa. Almar bakari býður einnig upp á einstakt rúgbrauð. „Við bökum allt rúgbrauðið okkar í hvernum hér fyrir aftan húsið. Það liggur í álköss- um ofan í stórum potti sem byggð- ur er yfir hverinn og liggur þar í um 18 klukkustundir,“ segir Lóa. Sætabrauðsdrengurinn hann Almar „Við erum þekkt fyrir að vera með mikið úrval af sætabrauði. Almar er sannkallaður ástríðubakari og er sífellt að finna upp á nýju bakkelsi. Við erum dugleg að skipta út tegundum og það er alltaf eitt- hvað nýtt og spennandi að finna í borðinu hjá okkur. Reykvíkingar gera sér sumir hverjir ferð hingað til Hveragerðis því hér er að finna mjög margt sem aðrir eru ekki með, eins og hunangsbollur, franskar vöfflur og skeljar, sem eru eins konar kexskeljar fylltar með smjör- kremi og dýft í súkkulaði. Þessar eru alveg toppurinn. Svo erum við með gómsæta kleinuhringjasnúða, djúpsteikta með kanilsykri. Snúðn- um er oft lýst sem eins konar af- kvæmi venjulegs snúðs og kleinu- hrings. Þessir eru alveg einstakir og hvergi til annars staðar,“ segir Lóa. Opnunartími í Almari bakara á veturna: Opið alla virka daga frá 07–18 Um helgar er opið frá 08–18. Almar bakari – Bakarí og kaffi- hús er staðsett að Sunnumörk 2, í Hveragerði, rétt hjá Bónus og Arion banka. Hægt er að hafa samband í síma 483-1919. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu Almars bakara. n Hverabrauðið einstaka Dýrindis samloka úr baguettebrauði með steiktum lauk. Bakkelsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.