Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2017, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2017, Qupperneq 36
Helgarblað 10.–13. febrúar 201728 Sport Stjörnurnar sem Wenger keypti – næstum því Ronaldo, Messi, Suarez og allir hinir N ú þegar fjórtán umferðir eru eftir af ensku úrvals- deildinni er Arsenal á kunnuglegum slóðum í 4. sæti deildarinnar, 12 stig- um á eftir toppliði Chelsea eftir tvo tapleiki í röð. Þegar illa gengur hjá lærisveinum Arsene Wenger fer umræðan um leikmannahóp liðsins jafnan af stað og snýst hún yfirleitt um að liðið skorti sterkari leikmenn í nokkrar stöður. Wenger gaf það út fyrir stórleik- inn gegn Chelsea um liðna helgi að N‘Golo Kante, leikmaður Chelsea og fyrrverandi leikmaður Leicest- er, hafi verið einn þeirra leikmanna sem liðið skoðaði í sumar en af ein- hverjum ástæðum tókst ekki að klófesta. Svo fór að Chelsea samdi við þennan magnaða Frakka sem hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar í vetur. Þeir eru fleiri leikmennirnir sem Arsene Wenger hefur skoðað og jafnvel getað keypt. FourFour Two-tímaritið gerði á dögunum skemmtilega úttekt um leikmennina sem Arsene Wenger keypti næstum því. Þó að erfitt sé að fullyrða þar um er ómögulegt að útiloka að titlasafnið væri stærra ef einhverra þessara leikmanna hefði notið við á undanförnum árum. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is 1 Paul Pogba Arsene Wenger hefur áður gefið það út að félagið hafi reynt að fá Paul Pogba til liðsins þegar hann ákvað að fara frá Manchester United sumarið 2012. „Hlutirnir gerðust hratt. Við höfðum áhuga á honum og reynd- um að fá hann til að koma til okkar en Juventus var fljótt að semja við hann,“ sagði Wen- ger árið 2014. Paul Pogba er í dag dýrasti knattspyrn- umaður heims eftir að hafa verið keyptur á 89 milljónir punda til Manchester United frá Juventus í sumar. 4 Zlatan Ibrahimovic Saga um að Zlatan hefði hafnað því að koma til reynslu hjá Arsenal, meðan hann var enn leikmaður Malmö í Svíþjóð, á þeim forsendum að hann væri of góður til að fara á reynslu er ekki alveg sannleikan- um samkvæm. Arsenal vildi semja við Zlatan á sínum tíma og vildi fá hann á reynslu. En Hasse Borg, yfirmaður knattspyrnumála hjá Malmö, ráðlagði Zlatan að sleppa því að fara á reynslu og kom þeim skilaboðum áleiðis til Wengers að annaðhvort vildi hann leik- manninn eða ekki. Zlatan var að lokum seldur til Ajax í Hollandi og söguna eftir það þekkja flestir. 2 Yaya Toure Það eru tæp tólf ár síðan Patrick Vieira kvaddi Arsenal og á þeim tíma sem liðinn er hefur félaginu ekki enn tekist að fylla skarð hans almennilega. Yaya Toure var nálægt því að ganga til liðs við Arsenal árið 2003. Á þeim tíma var Toure leikmaður Beveren í Belgíu og kom hann á reynslu til Arsenal þar sem hann heillaði þjálf- arateymið. Vandamál sem tengdust vegabréfi Toure komu í veg fyrir að hann gæti samið við Arsenal og svo fór að hann samdi við Metalurh Donetsk í Úkraínu. Þaðan lá leiðin til Olympiacos, Monaco, Barcelona og loks Manchester City. 3 Luis Suarez Arsenal hafði mikinn áhuga á að fá Luis Suarez frá Liverpool sumarið 2013. Forsvarsmenn Arsenal töldu sig hafa virkjað klásúlu í samningi Úrúgvæans þegar þeir buðu 40 milljónir og einu pundi betur í leikmanninn. Liverpool- menn voru síður en svo hrifnir af vinnubrögðum Arsenal og svo fór að lokum að Suarez var seldur til Barcelona þar sem hann skorar og skorar. Liverpool hefði vafalítið samþykkt almennilegt tilboð frá Arsenal í Suarez, hefði Suarez á annað borð viljað fara til félagsins. 5 Gianluigi Buffon Buffon er langbesti markvörður sinnar kynslóðar og líklega einn besti markvörður knattspyrnusögunnar. Þegar Buffon var enn leikmaður Parma snæddi hann kvöldverð með Wenger sem hafði mikinn áhuga á að fá hann í sínar raðir. Þetta var á þeim tíma þegar David Seaman stóð enn milli stanganna hjá liðinu og var Wenger í leit að arftaka hans. En Wenger var of seinn því Juventus keypti Buffon árið 2001 og gerði hann um leið að dýrasta markmanni sögunnar – sem er met sem stendur enn. Það reyndust kostakjör enda er Buffon enn í fullu fjöri hjá Juventus, sextán árum síðar. 6 Joe Hart Joe Hart er ekki jafn góður og Buffon en þó býsna öflugur. Hart vakti athygli Wengers þegar hann lék sem lánsmaður hjá Birmingham árið 2009 og hreifst Wenger af töktum hans í markinu. Hart átti síðar eftir að verða markmaður númer eitt hjá Englandi. Ljóst er að City hefði selt Hart á þessum tíma hefði nógu gott tilboð borist. En aldrei kom tilboðið frá Arsenal og þess í stað notaði Wenger ýmsa misgóða markmenn þar til Petr Cech kom sumarið 2015. 7 Dimitri Payet Payet breyttist úr hetju í skúrk hjá stuðningsmönnum West Ham í janúar þegar hann vildi yfirgefa félagið. Arsene Wenger viðurkenndi ekki alls fyrir löngu að Arsenal hefði margoft skoðað Payet meðan hann lék í franska boltanum. Wenger hreifst af hæfileikum hans og það ekki að ástæðulausu. Mögulega gerði Wenger vel í að kaupa ekki Payet miðað við framkomu hans í garð West Ham í janúar. 8 Cristiano Ronaldo Wenger hefur látið hafa eftir sér að hans mesta eftirsjá sé að hafa ekki náð að klófesta Cristiano Ronaldo þegar hann var enn leik- maður Sporting í Portúgal. Ronaldo var boðið í heimsókn til Arsenal. „Ég sýndi honum svæð- ið og gaf honum treyju sem var með nafninu hans aftan á,“ sagði Wenger árið 2008. „En þegar á hólminn var komið var þetta spurning um kaupverð.“ Ronaldo samdi við Manchester United árið 2003 og varð dýrasti leikmaður heims árið 2009 þegar Real Madrid keypti hann. Ronaldo er að flestra mati í hópi bestu knattspyrnumanna sögunnar. 10 Didier Drogba Drogba skoraði eiginlega alltaf gegn Arsenal þegar hann spilaði með Chelsea. Fimmtán mörk í sextán leikjum segja allt sem segja þarf í þeim efnum. En Wenger vissi af Drogba þegar hann var enn leikmaður Le Mans í næstefstu deild Frakklands. Á þeim tíma var Drogba ekki sú stjarna sem hann átti eftir að verða og skoraði tiltölulega lítið. En hlutirnir eru fljótir að breytast. Árið 2002 lá leiðin til Guingamp, 2003 til Marseille og 2004 til Chelsea. „Ég vissi að hann væri góður leikmaður en ég missti af hon- um,“ sagði Wenger á sínum tíma. Drogba skoraði 157 mörk í 341 leik fyrir Chelsea. 9 Lionel Messi Arsenal hefur gert vel í að klófesta unga og efnilega leikmenn. Cesc Fabregas er gott dæmi um slíkan leikmann en hann var ungur þegar hann yfirgaf Barcelona og samdi við Arsenal. Litlu munaði að tveir leikmenn til viðbótar fylgdu Fabregas; Gerard Pique og Lionel Messi. Marca greindi frá þessu á sínum tíma og síðar sagði Guilem Balague, íþróttafréttamaður Sky Sports á Spáni, að Messi hefði ákveðið að vera um kyrrt í Barcelona þar sem Arsenal sýndi lítinn vilja við að finna íbúð fyrir fjölskyldu hans í London.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.