Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2017, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2017, Blaðsíða 40
Helgarblað 10.–13. febrúar 201732 Heilsa Kynlíf eftir fæðingu – gefið ykkur tíma n Margt breytist í líkama konunnar eftir barnsburð n Traust og gagnkvæm virðing lykilatriði E ftir fæðinguna eiga sér stað miklar breytingar í líkama konunnar. Sum þeirra hormóna, sem hafa haft mik­ ið að segja á meðgöngunni fara í sitt eðlilega horf, en fram­ leiðsla annarra hormóna eykst vegna mjólkur framleiðslunnar. Legið dregst saman og blóð og slím hreinsast út. Ef spöngin hefur rifnað eða ver­ ið klippt (spangarskurður) grær hún yfirleitt fljótlega en getur verið aum dálítinn tíma eftir fæðinguna. Álag­ ið og viðbrigðin geta valdið geðsveifl­ um hjá konum og jafnvel þunglyndi. Allt í einu fer mikill tími í að annast barnið, og ef einnig eru eldri systkini getur vinnuálagið orðið býsna mik­ ið. Allar þessar breytingar geta haft í för með sér að sumar konur verða af­ skaplega þreyttar eftir fæðinguna. Á sama tíma er oft ekki mjög svefnsamt hjá foreldrunum og allt þetta hefur áhrif á samband þeirra. Til að góður andi ríki á heimilinu verðið þið að byggja samband ykkar á trausti og gagnkvæmri virðingu. Það er mikilvægt fyrir sambandið að þið gefið ykkur tíma fyrir ykk­ ur sjálf. Til dæmis er góð hugmynd að fara reglulega út saman án barn­ anna. Þá gefst ykkur tækifæri til að tala saman óáreitt sem fullorðið fólk. Opin og hreinskilin samskipti auð­ velda ykkur að takast á við þau ver­ kefni sem fylgja foreldrahlutverkinu. Hvenær getið þið haft samfarir eftir fæðingu? Það er mjög mismunandi hvenær pör fara að hafa samfarir eftir fæðingu. Máli skiptir hvort spöngin hefur rifn­ að eða verið klippt eða önnur sár eða rifur myndast. Það skiptir einnig máli hve vel sárin gróa. Meðan á hreinsuninni stendur (fyrstu 3–6 vikurnar eftir fæðingu) er hætta á að bakteríur berist upp í legið og valdi þar sýkingu. Ef þið ákveðið að hafa samfarir á þessu tímabili er því best að nota smokk til öryggis. Eftir u.þ.b. 6–8 vikur hefur legið oftast dregist vel saman og er orðið nærri jafn lítið og það var áður en meðgangan hófst. Legið er þó alltaf ívið stærra eftir fæðingu en áður en fyrsta þungun varð. Hvenær vaknar áhugi á kynlífi aftur eftir fæðingu? Mjög misjafnt er hvenær kynlífs­ löngun vaknar eftir fæðingu. Það er algengt að konan hafi ekki mikinn áhuga á kynlífi fyrst eftir fæðinguna. Oftast er hún þreytt, aum í botni og brjóstum og svitnar við minnstu áreynslu. Margar konur verkjar enn fremur í grindina í nokkurn tíma eft­ ir fæðinguna ef þær hafa verið með grindarlos. Ef fæðingin hefur auk þess verið erfið getur konan óttast að verða þunguð aftur. Margir karlar hafa einnig lítinn áhuga á kynlífi fyrst eftir fæðingu. Þeir upplifa líka þreytu sem fylgir því að gefa sig í náin kynni við nýja einstaklinginn, vakna á nóttinni og sinna heimilisstörfum ( vonandi) og ef þeir hafa horft upp á erfiða fæðingu getur hugsunin um nýja þungun virkað truflandi á kyn­ löngun. Það getur liðið heilt ár áður en kynlífið er orðið eins og fyrir fæðingu. Stundum reynir þetta mikið á samband foreldranna, en ef þið sýn­ ið hvort öðru skilning, þolinmæði og tillitssemi er von til að kynlífið batni eftir því sem frá líður. Hvaða tilfinningar geta vaknað hjá foreldrum? Sumum konum líður illa eftir fæðinguna. Þær geta verið þreyttar og niðurdregnar. Oft svitna þær mikið og sumum líður illa vegna hreinsunarinnar. Brjóstin geta verið stór, aum og þrútin og mjólkin lekur við minnsta áreiti. Sumum konum gengur líka illa að losna við aukakíló­ in sem komu á meðgöngunni. Öðr­ um konum líður framúrskarandi vel. Þær eru ánægðar með stór og þrýstin brjóstin og njóta þess að gefa brjóst. Þær finna að líkaminn fer í samt lag og finnst þær vera aðlaðandi og hafa löngun í kynlíf. Feðurnir finna líka fyrir ýmsum tilfinningum. Sum­ um karlmönnum finnst konan ýta þeim frá sér. Þeim finnst öll athygli konunnar beinast að barninu. Þeim finnst þeim ofaukið og verða jafnvel afbrýðisamir. Í öðrum fjölskyldum hjálpast for­ eldrarnir að við umönnun barnsins og hagnýt verkefni. Maðurinn styð­ ur konuna í brjóstagjöfinni og sumir karlmenn fá aukna virðingu fyrir lík­ ama konunnar eftir að kynnast þeim breytingum sem fylgja þunguninni og fæðingunni. Þeir feður eiga auð­ veldara með að tjá konunni tilfinn­ ingar sínar og taka tillit til hennar. Hvernig á að bera sig að þegar byrjað er að stunda kynlíf á ný eftir fæðingu? Oft kemur kynlífið af sjálfu sér í framhaldi af ánægjulegri samveru­ stund þegar báðir aðilar eru tilbún­ ir. Það er um að gera að fara rólega af stað. Mikilvægt er að konan fái að ráða ferðinni og að karlmaðurinn sé gætinn og tillitssamur. Það er góð hugmynd að velja þann tíma sólar­ hringsins þegar þið eruð minnst þreytt. Samt er ekki nóg að vera vel úthvíld, þið þurfið líka næði. Það kannast margir við að þegar for­ eldrarnir ætla að fara að láta vel að hvort öðru vaknar barnið. Það er eins og það skynji að athygli for­ eldranna beinist frá því. Þess vegna er gott að gefa barninu brjóst í ró og næði svo það sé örugglega mett og ánægt og vakni ekki alveg strax. Þá lekur heldur ekki eins mikið úr brjóstum konunnar við atlotin. Því er nefnilega þannig varið að þegar konan verður fyrir kynferðislegri örvun losnar hormónið Oxytósín út í blóðrásina eins og við brjóstagjöf og mjólkin byrjar að streyma. Stundum eru brjóstin mjög viðkvæm meðan barnið er á brjósti og því vilja sumar konur ekki að maðurinn snerti þau. Þið verðið í sameiningu að finna hvað hentar ykkur. Sumar konur eru fremur þurrar í leggöngunum, vegna hormóna­ breytinga, fyrstu þrjá mánuðina. Ef þetta er vandamál er hægt að fá margar tegundir af vatnsleysanleg­ um smurningskremum í apótekinu eða nota smokka með smurnings­ kremi. Það sem skiptir þó höfuð­ máli er að gefa sér góðan tíma í for­ leik og jafnvel munngælur þar sem munnvatn er náttúrulegt sleipiefni. Fyrstu skiptin, sem þið hafið sam­ farir getur reynst vel að nota stell­ ingar sem gefa konunni kost á að stýra því hversu djúpt maðurinn fer inn í hana. Henni gæti t.d. líkað vel að setjast ofan á hann. Þannig veldur þungi mannsins heldur ekki þrýstingi á brjóstin. Kynlíf án samfara? Margir mánuðir geta liðið áður en aftur kemst á jafnvægi í kynlífinu. Á þeim tíma getur verið ljúft að njóta annarra atlota. Til eru fjölmargar aðferðir við að sýna hvort öðru ást og hlýju. Þið getið talað innilega saman, faðmast og kysst. n „Það er algengt að konan hafi ekki mikinn áhuga á kyn- lífi fyrst eftir fæðinguna Mynd 123RF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.