Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2017, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2017, Blaðsíða 41
Helgarblað 10.–13. febrúar 2017 Heilsa 33 Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður? Þ að er ekki alltaf auðvelt að vera karlmaður og af ein- hverjum ástæðum eiga margir karlmenn erfitt með að fóta sig í samfélagi dags- ins öfugt við það sem ýmsir halda. Þessir erfiðleikar birtast í mörgum myndum. Við sjáum þá strax skjóta upp kollinum í barnaskólanum þar sem drengir eru líklegri til þess að lenda upp á kant við kerfið en stúlk- ur. Drengir fá reyndar oft mun meiri athygli í skólakerfinu en stúlkurnar, en sú athygli er gjarnan af nei- kvæðum toga. Kannski eiga margir drengir svona erfitt með að finna sig í skólanum vegna þess að þá skortir þar fyrirmyndir. Langflestir kennar- ar eru konur og skólinn hlýtur þar af leiðandi að mótast mikið af hugs- unarhætti kvenna. Það er allt gott um þann hugsunarhátt að segja í sjálfu sér, en eins og dæmin sýna þá pass- ar hann ekki alltaf fyrir drengi sem verða gjarnan að hálfgerðum vand- ræðagemsum í skólanum, eingöngu vegna þess að þeir fá ekki að vera strákar í friði. Karlmenn í meirihluta … Þessi vandræðagangur heldur áfram þegar strákarnir stækka. Flestir ungir ökumenn sem lenda í árekstrum og slysum eru karlmenn. Efalaust eru ástæðurnar margar, en oft er hægt að kenna um töffaraskap og því að hinn ungi ökumaður vill ekki „missa and- litið” frammi fyrir félögunum sem mana hann til að gefa allt í botn. Og það er ekki bara í hárri slysatíðni sem karlmenn toppa konur. Í fangelsum landsins eru karlmenn í miklum meirihluta og hið sama má segja um þau sem leita sér hjálpar vegna mis- notkunar áfengis og fíkniefna. Þar hafa karlmenn aftur forystuna. … eða hvað? En þegar komið er að langskóla- námi, þá eru það stelpurnar sem skjóta strákunum ref fyrir rass. Í flestum deildum Háskóla Íslands svo dæmi sé tekið, eru það kon- ur sem eru í meirihluta. Ætli strák- arnir hætti ekki fyrr í námi til þess að drífa sig út á vinnumarkaðinn? Nú er enginn maður með mönnum nema hann græði peninga og það sem mesta. Það þarf að ganga hratt fyrir sig og bókvitið verður ekki í ask- ana látið eins og Íslendingar hafa vitað frá fornu fari. Sóknin í gróð- ann skiptir í dag öllu, þótt hún kosti langan vinnudag fjarri fjölskyldu, stress og þreytu. Ekki minnkar álag- ið ef illa gengur. Eitthvað verður und- an að láta og oft endar þetta ástand með upplausn fjölskyldunnar, óhóf- legri áfengisneyslu, depurð og von- leysi. Að undanförnu hafa verið að birtast sorglegar tölur sem sýna að þeim karlmönnum fer fjölgandi sem á miðjum aldri sjá ekki lengur til- ganginn með tilverunni og kjósa því að svipta sig lífinu. Ástæðurnar geta verið margar og erfitt að vita hvað veldur því að ungir og hraustir karl- menn grípa til slíkra örþrifaráða. Þar er þunglyndi oftar en ekki undir- rótin, þunglyndi sem svo aftur á sér líkar orsakir. Brotna undan kröfum Já, það er oft erfitt að vera karlmað- ur og kannski hefur það sjaldan verið eins erfitt og á okkar tímum. Þar með er ekki verið að gera lítið úr jafnréttis- baráttu kynjanna. Konur eru vissu- lega enn í minnihluta í stjórnunar- stöðum í þjóðfélaginu, eiga undir högg að sækja gagnvart karlaveldinu og eru á lægri launum en karlmenn. Þessu þarf að breyta. En það þjóðfé- lag gróðahyggju og markaðsdýrkun- ar sem við höfum komið okkur á fót fer ekki síður illa með karlmennina, eins og dæmin hér að framan sanna. Það eru sífellt fleiri karlmenn sem brotna undan kröfum samfélagsins, brotna undan vinnuálagi og stressi, brotna undan ímynd sem enginn í raun ætti að þurfa að rísa undir. Og þegar það gerist eiga karlmenn í fá hús að venda, öfugt við konurn- ar sem eru vanari að tala saman um vandamál sín og áhyggjur. Til þess að snúa þessari þróun við er ekki nóg að skrifa út fleiri lyfseðla á þung- lyndis- og geðlyf. Það þarf hugarfars- breytingu í þjóðfélaginu. Og það fyrr en seinna. n doktor.is www.avaxtabillinn.is avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110 ÁVAXTA- LUNDUR Gómsætir veislubakkar, sem lífga upp á öll tilefni. Er kannski heilsuátak framundan? Ávextir í áskrift kosta um 550 kr. á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins er engin. Við komum með ávexti og þið uppskerið hressara starfsfólk Áhrif ávaxtakörfunnar eru göldrótt á sálarlíf og heilsufar starfsfólks. Fyrir óverulega upphæð er því hægt að hafa afar góð áhrif á mannskapinn. Fyrir nokkru tók Múlalundur við pökkun Ávaxtabílsins á sendingum ávaxta til fyrirtækja. Hefur það samstarf gengið prýðilega, enda vel vandað til verka hjá Múlalundi hvert sem verkefnið er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.