Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Blaðsíða 10
Helgarblað 24.–27. mars 201710 Fréttir
G
engisstyrking krónunnar
og fall pundsins gerir veiði-
leyfasölum erfitt fyrir. Þess
eru allmörg dæmi að stór
holl á besta tíma í íslensk-
um veiðiám hafi afbókað ferðir sínar
fyrir sumarið. Veiðileyfasölum ber
saman um að Bretar fari þar fremstir
í flokki. Þeir séu sýnd veiði, í orðsins
fyllstu merkingu, en ekki gefin.
Á heildina litið leigutakarnir sig
þó vel, eins og venjulega, og telja sig
ekki í vandræðum. Flestir eru þeir
þó á því að aðrir en þeir sjálfir finni
meira fyrir gengisbreytingum og af-
bókunum þeirra vegna. Einhverjir
létu um leið í það skína, að það kæmi
sér ekki vel fyrir viðskiptin að gang-
ast við því að orðrómur um trega
sölu ætti við rök að styðjast. Slíkt
gæti seinkað sölu á veiðileyfum til Ís-
lendinga, sem séu tækifærissinnaðir.
Óvæntar afpantanir
„Vegna óvæntra afpantana er nú tals-
vert til af lausum stöngum í Litluá á
góðum tíma, t.d. seinni hluta júní og
fyrra hluta júlí.“ Svo hljómar tilkynn-
ing frá leigutaka Litluár í Keldu-
hverfi, en um er að ræða einhverja
fengsælustu silungsveiðiá landsins.
Sturla Sigtryggsson í Keldunesi seg-
ir í samtali við DV að þrjú vikuholl –
hópar veiðimanna sem veiða í viku -
hafi afbókað ferðir sínar nýlega.
„Þeir segja að við hefðum þurft að
færa niður verðið en við erum með
verðtryggðan samning á ánni. Við
getum ekki fellt verðið.“ Sturla segir
að um helmingur veiðimanna í ánni
séu útlendingar; flestir frá Skandin-
avíu, Bretlandseyjum auk Banda-
ríkjamanna og Þjóðverja. Helst séu
það Bretarnir sem hafi afbókað.
Nokkur umræða hefur í fjölmiðl-
um verið um afbókanir á ferðum til
Íslands. Þar leikur styrking krónunn-
ar stórt hlutverk. Þó er rétt að halda
til haga að undanfarin misseri hefur
fjölgun ferðamanna sem til Íslands
koma verið ævintýraleg og flest virð-
ist benda til þess að ferðamönnum
muni halda áfram að fjölga.
Bretarnir bakka
DV ræddi við fimm leigutaka og
veiðileyfasala vegna fréttarinnar.
Þeim ber flestum saman um að Bret-
ar haldi að sér höndum en þeir hafa
verið fyrirferðarmiklir við íslenska
árbakka undanfarin ár. Menn eru al-
mennt á því að gengið gangi nærri
hluta þeirra útlendinga sem hér hafa
veitt en að ekki sé hægt að tala um
meiriháttar hremmingar.
Kristján Benediktsson er sölu-
stjóri hjá SVFR. Hann segir við DV
að félagið hafi aðeins fundið fyr-
ir því að viðskiptavinir hafi afbókað
veiðileyfi. Hann segir þó að stærstur
hluti viðskiptavinanna sé íslensk-
ir meðlimir stangaveiðifélagsins og
þar greini hann uppgrip. „Við finn-
um hins vegar fyrir því að Bretarnir,
sérstaklega silungsveiðimennirnir,
hafa haldið að sér höndum, en félag-
ið leigir út tvö af flottari silungsveiði-
svæðum landsins, í Mývatnssveit.
Þarf aukningu á hverju ári
„Það er ekki mikið minni sala en
í fyrra,“ segir Matthías Þór Hákonar-
son hjá Iceland Fishing Guide. „En
það þarf að vera aukning á hverju ári
því samningarnir eru bundnir vísi-
tölu.“ Félagið selur veiðileyfi í fimm
silungs- og laxveiðiár á Norðaustur-
landi. Hann segir fjölgun erlendra
ferðamanna vega að mestu upp á
móti þeim föstu hollum sem helst
hafi úr lestinni. Mikið sé af túrist-
um sem kaupi einn dag eða tvo með
skömmum fyrirvara á sumrin. Þar
sé um að ræða veiðimenn sem ekki
komi gagngert til Íslands til þess að
veiða.
Jóhann Ólafsson, sölustjóri hjá Lax
-á, sem meðal annars hefur Blöndu
á sínum snærum, segir að í kjölfar
Brexit hafi Bretar ekki komið í sama
mæli og áður. Það hafi vissulega áhrif
á reksturinn. Á heildina litið gangi
veiðileyfasala vel og sé á svipuðum
nótum og í fyrra. Hann segir aðspurð-
ur að sala til Íslendinga sé svipuð og
verið hafi, en veiðileyfasalar segja
þó almennt að Íslendingar panti
ekki veiðileyfi með sama fyrirvara og
útlendingar. Nú fari fiðringurinn að
koma í menn. Jóhann segir almennt
að lítið svigrúm sé fyrir íslenska leig-
utaka að hækka verð á laxveiðileyfum
á Íslandi. Sterkt gengi krónunnar leiki
þar stórt hlutverk.
Metárin hjálpa í Miðfjarðará
Fáir leigutakar á Íslandi eiga
jafn mikið undir viðskiptum við
útlendinga og Rafn Valur Alfreðsson,
leigutaki Miðfjarðarár og eigandi
Fishing and Hunting Destinations.
Hann segir að án þess að hafa reikn-
að það út, þá telji hann að 95 prósent
viðskiptavina séu útlendingar. „Við
höfum verið með mjög hátt hlutfall
af Bretum, kannski um 70 prósent.“
Hann segir við DV að allnokkrir
Bretar hafi gengið úr skaftinu, þá að-
allega á svokölluðum jaðartímum. Á
móti því vinni að undanfarin tvö ár
hafi í Miðfjarðará verið þau fengsæl-
ustu frá upphafi.
„Við erum með frábæra vöru. Við
höfum verið með lista af fólki sem
vill koma. En það má alveg segja að
við höfum þurft að hafa meira fyrir
því að selja þetta núna en hingað til
– jafnvel þótt við höfum farið í gegn-
um tvö bestu ár sögunnar í ánni.“
Rafn segir við DV að þegar hann
horfi á þessar aðstæður í gengismál-
um séu ekki margar ár sem hann
myndi treysta sér til að selja. Pund-
ið hafi á farið úr 206 krónum í 138
á einu og hálfu ári. Fall pundsins
eitt og sér hafi leitt til þess að Bret-
ar haldi að sér höndum þegar kemur
að ferðalögum en fall þess gagnvart
krónunni sé viðbót sem snúi bara að
Íslandi.
Hafa áhyggjur af 2018
Veiðileyfasalar segja við DV að
þótt salan fyrir sumarið 2017 hafi
sumpart gengið mjög vel, séu menn
uggandi yfir næsta laxveiðisumri,
2018. Einn viðmælandi DV bendir
á að ágúst og september séu stærstu
mánuðirnir þegar kemur að sölu
laxveiðileyfa til útlendinga. Í ágúst
í fyrra hafi pundið verið í um 160
krónum og evran í 130 til 134. Síð-
an þá hafi gengið krónunnar styrkst
mikið og pundið sé komið niður fyr-
ir 140 krónur. Leyfin verði þannig
enn dýrari fyrir útlendinga á næsta
sumri, ef ekki verði breyting á geng-
ismálum. „Það er ekki öruggt að
salan verði upp á marga fiska,“ seg-
ir hann. n
Veiðileyfasalar uggandi
yfir óvæntum afbókunum
n Óttast að 2018 verði þungt í skauti vegna gengisins n Bretar hætta við veiðiferðir
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is „Þeir segja
að við
hefðum þurft að
færa niður verðið
en við erum með
verðtryggðan
samning á ánni
Rennt fyrir lax Það er ekki
sniðugt að vaða laxveiðiár
berleggjaður, en kappið ber menn
stundum ofurliði. Mynd 123Rf.coM
Stór lax Matthías Þór
Hákonarson með vænan
lax í Laxá í Aðaldal í
fyrrasumar.