Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Blaðsíða 50
Helgarblað 24.–27. mars 201750 Fólk Gagnrýnd fyrir að beina sjónum að karlmönnum á baráttudegi kvenna F áir þjóðarleiðtogar – að Guðna Th. Jóhannes- syni forseta undanskild- um – eru betur þokkaðir en Justin Trudeau, forsætisráð- herra Kanada. Hann þykir einstak- lega auðmjúkur og viðkunnanleg- ur. Hann hefur vakið athygli fyrir virðingu sína gagnvart mannréttind- um og ekki síður femínísk viðhorf. Hann hefur að auki verið valinn á lista yfir kynþokkafyllstu stjórn- málamenn heims og var síðast á lista Vogue yfir kynþokkafyllstu menn í heimi. Justin er giftur Sophie Grégorie en þar til mjög nýlega hefur lítið farið fyrir eiginkonu forsætisráð- herrans geðþekka. Það var ekki fyrr en í síðustu viku sem Sophie lét á sér kræla með því að deila mynd af þeim hjónum á samfélagsmiðilinn Instagram í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Þar hvatti hún konur til að deila myndum af sér með mönnunum sínum í þeim til- gangi að fagna þeim karlmönnum í lífi sínu sem hvetja þær til að vera þær sjálfar og koma fram við þær af virðingu. Sophie hlaut bágt fyrir uppátæki sitt og var skömmuð fyrir að beina sjónum að karlmönnum á þeim eina degi sem kastljósinu væri sér- staklega beint að konum. „Hvers vegna eigum við að fagna karlmönn- um á baráttudegi kvenna?“ spurði Bibi Ebel í vinsælli athugasemd við myndina. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn sem hún lætur sig jafnréttismál varða, svo sem í Because I Am a Girl- verkefninu, en til þessa hefur það ekki hlotið viðlíka athygli og nú. En hver er þessi kona, Sophie Grégorie Trudeau, ef frá er talin sú staðreynd að hún er eiginkona for- sætisráðherra Kanada, og fyrir hvað stendur hún? Business Insider tók saman nokkra punkta. n Konan að baki Justin Trudeau n Hún útskrifaðist með BA-gráðu í boð- skiptum frá McGill University í Montreal. n Hún hefur opinberlega rætt um baráttu sína við átröskunarsjúkdóminn lotugræðgi, sem hún glímdi við á yngri árum. Hún hefur þakkað foreldrum sínum bata sinn. n Seinna um sumarið hittust þau aftur, fyrir tilviljun. Þá bauð Justin henni á stefnumót. Hún áttaði sig þá á því að hann væri rétti maðurinn fyrir hana. „Í fyrsta lagi er hún glæsileg kona, eins og þið sjáið á myndum,“ sagði Justin eitt sinn í viðtali um konuna sína. „En hún er líka indæl og sönn.“ Hann sagði hana afar greinda og að hún hefði gildi sem ekki yrði höggi á komið. n Justin, sem virðist vera afar rómantískur, segist hafa sagt við hana á þeirra fyrsta stefnumóti að loksins væri hún komin, konan sem hann hefði beðið eftir í 32 ár. „Ég hélt þú ætlaðir aldrei að koma. Ég er búinn að bíða eftir þér allt mitt líf. Þú ert það sem ég hef beðið eftir.“ n Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Hún hefur þótt standa sig með sóma, eins og maður hennar, og hitt ýmis fyrirmenni í hlutverki sínu. Þeirra á meðal má nefna Barack og Michelle Obama sem og Elísabetu Englands- drottningu. n Sophie hefur helgað starfskrafta sína mannúðarmálum. Sérstaklega hefur hún beitt sér fyrir réttindum kvenna, andlegri heilsu fólks og hreinu drykkjarvatni þeirra sem ekki hafa aðgang að slíku. n Hún fæddist í Sainte-Adéle í Quibec í Kanada og ólst upp í Mount Royal í Montreal. Hún er einkabarn, dóttir verðbréfasalans Jean Grégorie og hjúkrunarfræðingsins Estelle Blais. Hún hefur lýst því yfir að faðir sinn hafi kennt henni hvað það er að vera femínisti og innrætt henni trú á eigin getu, ekki síst líkamlegrar. n Sophie vann á fréttastofu áður en hún nældi í stöðu sem kynnir í sjónvarpi. Hún vann sem fréttamaður í vinsælasta skemmtiþætti Kanada, eTalk. n Þau Justin hittust fyrst, allavega opinberlega, í júní 2003, þegar þau sáu saman um samkvæmi á vegum Mercedes Benz, sem haldið var til styrktar góðu málefni. Þau náðu vel saman, að hennar sögn, og það neistaði á milil þeirra. „Ég fann að þetta væri einhver sem ég yrði að taka alvarlega.“ Hún ku hafa sent honum tölvupóst nokkrum dögum síðar en honum svaraði hann aldrei. n Sophie þekkti til fjölskyldu Trudeau frá unga aldri en hún var vinkona yngri bróður Justins, Michel. Hann lést í snjóflóði árið 1998, þá 23 ára gamall. n Parið gifti sig í maí 2005. Athöfnin þótti í senn glæsileg og látlaus, þótt brúðurin hafi mætt til kirkju í Rolls-Royce Phantom bifreið. Eftir athöfnina óku þau á brott á Mercedes-Benz 300SL bifreið föður brúðgumans, en bíllinn er árgerð 1960. Sama ár voru blikur á lofti um stjórnmálaferil Justins. „Ég veit að það gæti orðið og það gæti ekki orðið. Fyrir mér er þetta of fjarlægt til þess að ég fari að setja mig í stellingar,“ sagði hún og bætti við: „En ég hef fulla trú á því að ég geti aðlagast og tekist á við slíka áskorun.“ Hún sagðist hafa fulla trú á dómgreind Justins og heiðarleika, en að hann væri stundum of viðkvæmur. Það hræddi hana. n Þeim hjónum hefur orðið þriggja barna auðið. Þau eiga Ellu-Grace, Hadrien og Xavier. n Sophie er lærður jógakennari og hefur listræna hæfileika. Hún þykir þannig frambærilegur málari. Þau hjónin stunda auk þess fjölbreytta útivist, svo sem hjólreiðar, bátsferðir og skíði. Brosmild „Í fyrsta lagi er hún glæsileg kona, eins og þið sjáið á myndum,“ sagði Justin eitt sinn um eiginkonu sína. Mynd EPA Í hlutverki Sophie taldi fyrst um sinn að Justin væri helst til viðkvæmur til að geta átt pólitískan feril. Annað hefur komið á daginn. Mynd EPA Glæsilegar Sophie ásamt Michelle Obama. Mynd EPA Umdeild færsla Hér er myndin við færsluna umdeildu, þar sem Sophie hvatti konur, á baráttudegi kvenna, til að fagna körlunum í lífi sínu. Liðug Sophie er lærður jógakennari. Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.