Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Side 50
Helgarblað 24.–27. mars 201750 Fólk
Gagnrýnd fyrir að beina sjónum að karlmönnum á baráttudegi kvenna
F
áir þjóðarleiðtogar – að
Guðna Th. Jóhannes-
syni forseta undanskild-
um – eru betur þokkaðir en
Justin Trudeau, forsætisráð-
herra Kanada. Hann þykir einstak-
lega auðmjúkur og viðkunnanleg-
ur. Hann hefur vakið athygli fyrir
virðingu sína gagnvart mannréttind-
um og ekki síður femínísk viðhorf.
Hann hefur að auki verið valinn
á lista yfir kynþokkafyllstu stjórn-
málamenn heims og var síðast á
lista Vogue yfir kynþokkafyllstu
menn í heimi.
Justin er giftur Sophie Grégorie
en þar til mjög nýlega hefur lítið
farið fyrir eiginkonu forsætisráð-
herrans geðþekka. Það var ekki fyrr
en í síðustu viku sem Sophie lét á
sér kræla með því að deila mynd af
þeim hjónum á samfélagsmiðilinn
Instagram í tilefni af alþjóðlegum
baráttudegi kvenna. Þar hvatti hún
konur til að deila myndum af sér
með mönnunum sínum í þeim til-
gangi að fagna þeim karlmönnum
í lífi sínu sem hvetja þær til að vera
þær sjálfar og koma fram við þær af
virðingu.
Sophie hlaut bágt fyrir uppátæki
sitt og var skömmuð fyrir að beina
sjónum að karlmönnum á þeim
eina degi sem kastljósinu væri sér-
staklega beint að konum. „Hvers
vegna eigum við að fagna karlmönn-
um á baráttudegi kvenna?“ spurði
Bibi Ebel í vinsælli athugasemd við
myndina. Þetta er raunar ekki í fyrsta
sinn sem hún lætur sig jafnréttismál
varða, svo sem í Because I Am a Girl-
verkefninu, en til þessa hefur það
ekki hlotið viðlíka athygli og nú.
En hver er þessi kona, Sophie
Grégorie Trudeau, ef frá er talin sú
staðreynd að hún er eiginkona for-
sætisráðherra Kanada, og fyrir hvað
stendur hún? Business Insider tók
saman nokkra punkta. n
Konan
að baki
Justin
Trudeau
n Hún útskrifaðist með BA-gráðu í boð-
skiptum frá McGill University í Montreal.
n Hún hefur opinberlega rætt um baráttu sína við átröskunarsjúkdóminn lotugræðgi, sem
hún glímdi við á yngri árum. Hún hefur þakkað foreldrum sínum bata sinn.
n Seinna um sumarið hittust þau aftur, fyrir
tilviljun. Þá bauð Justin henni á stefnumót.
Hún áttaði sig þá á því að hann væri rétti
maðurinn fyrir hana. „Í fyrsta lagi er hún glæsileg kona, eins og þið sjáið
á myndum,“ sagði Justin eitt sinn í viðtali um konuna sína. „En hún er líka indæl og sönn.“
Hann sagði hana afar greinda og að hún hefði gildi sem ekki yrði höggi á komið.
n Justin, sem virðist vera afar rómantískur, segist hafa sagt við hana á þeirra fyrsta
stefnumóti að loksins væri hún komin, konan sem hann hefði beðið eftir í 32 ár. „Ég hélt þú
ætlaðir aldrei að koma. Ég er búinn að bíða eftir þér allt mitt líf. Þú ert það sem ég hef beðið
eftir.“
n Síðan hefur
mikið vatn runnið
til sjávar. Hún hefur
þótt standa sig með
sóma, eins og maður
hennar, og hitt
ýmis fyrirmenni í
hlutverki sínu. Þeirra
á meðal má nefna
Barack og Michelle
Obama sem og
Elísabetu Englands-
drottningu.
n Sophie hefur helgað starfskrafta
sína mannúðarmálum. Sérstaklega
hefur hún beitt sér fyrir réttindum
kvenna, andlegri heilsu fólks og
hreinu drykkjarvatni þeirra sem ekki
hafa aðgang að slíku.
n Hún fæddist í Sainte-Adéle í Quibec
í Kanada og ólst upp í Mount Royal
í Montreal. Hún er einkabarn, dóttir
verðbréfasalans Jean Grégorie og
hjúkrunarfræðingsins Estelle Blais. Hún
hefur lýst því yfir að faðir sinn hafi kennt
henni hvað það er að vera femínisti og
innrætt henni trú á eigin getu, ekki síst
líkamlegrar.
n Sophie vann á fréttastofu áður en hún
nældi í stöðu sem kynnir í sjónvarpi. Hún
vann sem fréttamaður í vinsælasta skemmtiþætti Kanada, eTalk.
n Þau Justin hittust fyrst, allavega opinberlega, í júní 2003, þegar þau sáu saman um
samkvæmi á vegum Mercedes Benz, sem haldið var til styrktar góðu málefni. Þau náðu
vel saman, að hennar sögn, og það neistaði á milil þeirra. „Ég fann að þetta væri einhver
sem ég yrði að taka alvarlega.“ Hún ku hafa sent honum tölvupóst nokkrum dögum síðar
en honum svaraði hann aldrei.
n Sophie þekkti til fjölskyldu Trudeau frá unga aldri en hún var vinkona yngri bróður
Justins, Michel. Hann lést í snjóflóði árið 1998, þá 23 ára gamall.
n Parið gifti sig í maí 2005. Athöfnin þótti í senn glæsileg og látlaus, þótt brúðurin hafi
mætt til kirkju í Rolls-Royce Phantom bifreið. Eftir athöfnina óku þau
á brott á Mercedes-Benz 300SL bifreið föður brúðgumans, en bíllinn er
árgerð 1960. Sama ár voru blikur á lofti um stjórnmálaferil Justins. „Ég
veit að það gæti orðið og það gæti ekki orðið. Fyrir mér er þetta of fjarlægt
til þess að ég fari að setja mig í stellingar,“ sagði hún og bætti við: „En ég
hef fulla trú á því að ég geti aðlagast og tekist á við slíka áskorun.“ Hún
sagðist hafa fulla trú á dómgreind Justins og heiðarleika, en að hann væri
stundum of viðkvæmur. Það hræddi hana.
n Þeim hjónum hefur orðið
þriggja barna auðið. Þau eiga
Ellu-Grace, Hadrien og Xavier.
n Sophie er lærður jógakennari og hefur
listræna hæfileika. Hún þykir þannig
frambærilegur málari. Þau hjónin
stunda auk þess fjölbreytta útivist, svo
sem hjólreiðar, bátsferðir og skíði.
Brosmild „Í fyrsta lagi
er hún glæsileg kona, eins
og þið sjáið á myndum,“
sagði Justin eitt sinn um
eiginkonu sína. Mynd EPA
Í hlutverki Sophie taldi fyrst um sinn að Justin væri helst
til viðkvæmur til að geta átt pólitískan feril. Annað hefur
komið á daginn. Mynd EPA
Glæsilegar Sophie
ásamt Michelle Obama. Mynd EPA
Umdeild færsla Hér er myndin við
færsluna umdeildu, þar sem Sophie hvatti
konur, á baráttudegi kvenna, til að fagna
körlunum í lífi sínu.
Liðug Sophie er lærður jógakennari.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is