Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 2
Vikublað 28.–30. mars 20172 Fréttir
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - hannyrdabudin.is
Póst-sendum um allt land
Garn í sjöl
Lóan er komin
Lóan er komin. Fjórar heiðlóur
sáust á flugi við Einarslund á
Höfn í Hornafirði á mánudag. Á
Facebook-síðu Fuglaathugunar-
stöðvar Suðurlands, þar sem
þetta kemur fram, segir að óvenju
margar heiðlóur hafi haft vetur-
setu á suðvestanverðu landinu.
Í fyrra sást fyrsta lóan 26. mars
en hún kemur yfirleitt til landsins
um svipað leyti.
Vikan tileinkuð
fjármálalæsi
Nemendur í Háteigsskóla í
Reykjavík aðstoðuðu Benedikt
Jóhannesson, fjármála- og efna-
hagsráðherra, við að hringja inn
opnun markaða í Kauphöllinni á
mánudagsmorgun.
Tilefnið er alþjóðleg fjármála-
læsisvika sem hófst á mánudag og
lýkur á föstudag. Vikan er helguð
fjármálalæsi ungs fólks um heim
allan undir flaggi Alþjóðlegrar
fjármálalæsisviku og Evrópsku
peningavikunnar. Af því tilefni
munu Samtök fjármálafyrir tækja
og Stofnun um fjármálalæsi vekja
athygli á málefninu með ýmsu
móti til að efla vitund ungmenna
um mikilvægi þekkingar á fjár-
málum og sparnaði.
Haldin verður ráðstefna á
miðvikudag þar sem kennarar og
stofnanir sem vinna að eflingu
fjármálafræðslu ungmenna leiða
saman hesta sína og fjalla um
stöðu mála. Þá mun Krakkarúv
sýna tíu stutt myndbönd um fjár-
mál sem snúast um að auka fjár-
málalæsi barna á aðgengilegan
hátt svo örfá dæmi séu tekin.
Málum frestað til hausts
n Fjórir dagar til stefnu n Lyfjalögum frestað en jafnlaunavottun kemur fram
R
áðherrar ríkisstjórnarinnar
munu ekki leggja fram öll
þau þingmál sem boðað var
að kæmu fram í þingmála-
skrá. Þegar hefur verið tekin
ákvörðun um að fresta framlagningu
nokkurra frumvarpa til haustþings.
Ráðherrar hafa út þessa vinnuviku til
að leggja fram þingmál en frestur til
þess rennur út 1. apríl.
Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar,
sem lögð var fram 24. janúar síðast-
liðinn samhliða stefnuræðu forsætis-
ráðherra, var boðað að ráðherrar
hygðust leggja fram 101 þingmál. Í
frétt DV 17. mars síðastliðinn kom
fram að aðeins væri búið að leggja
fram 23 þingmál og að fjórir ráðherrar
hefðu enn ekkert mál lagt fram.
Mál fara að dælast inn
Frá því hefur staðan batnað lítið eitt.
Framkomnum þingmálum hefur
fjölgað um níu og eru nú orðin 32
talsins. Samkvæmt samtölum við
aðstoðarmenn ráðherra má búast
við að fjöldi mála verði lagður
fyrir ríkis stjórn á aukafundi henn-
ar í dag, þriðjudag. Nokkur fjöldi
þingmála var einnig lagður fram á
ríkisstjórnar fundi síðastliðinn föstu-
dag og eru þau nú til kynningar inni í
þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna.
Þá verður haldinn ríkisstjórnarfund-
ur á föstudaginn þar sem einnig gefst
tækifæri til að leggja fram mál.
Þegar er ljóst að einhver þeirra
mála sem boðað var að yrðu lögð
fram frestast, í það minnst fram á
haustþing. Meðal þeirra má telja
lyfja lög sem heilbrigðisráðherra
boðaði frumvarp um, boðað frum-
varp menntamálaráðherra til laga
um sviðslistir, boðað frumvarp
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpun-
arráðherra til laga um Ferðamála-
stofu og boðuð þingsályktunartillaga
utanríkisráðherra um alþjóðlega
þróunarsamvinnu.
Óvissa um búvörulög
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, lagði fram tvö frumvörp í
síðustu viku en eftir standa fimm
þingmál sem boðuð voru. Að sögn
aðstoðarmanns ráðherrans, Páls
Rafnars Þorsteinssonar, á eftir að
koma í ljós hvort þau verði lögð
fram eður ei. Þannig er til að mynda
ekki ljóst hvort frumvarp til laga um
breytingar á búvörulögum verði lagt
fram, enda um að ræða umfangs-
mikið mál. Páll sagði hins vegar að-
spurður að hann teldi nokkuð víst
að ekki næðist að leggja fram öll
umrædd mál. Fyrir því lægju ýmsar
ástæður en auðvitað fyrst og fremst
sú að ríkisstjórn hefði tekið við í
janúar og tíminn því verið naum-
ur. Þau mál sem ekki náist að leggja
fram nú verði að öllu jöfnu lögð
fram á haustþingi þess í stað.
Jafnlaunavottun kemur fram
Karl Pétur Jónsson, aðstoðarmaður
Þorsteins Víglundssonar, félags- og
jafnréttismálaráðherra, sagði í sam-
tali við DV að hluti þeirra mála sem
ráðherrann hefði boðað hefði verið
til umræðu á ríkisstjórnarfundi síð-
astliðinn föstudag. Þeim hefði hins
vegar verið frestað en reikna megi
með einhver þeirra verði lögð fram
í dag. Þorsteinn boðaði að hann
hygðist leggja fram 13 þingmál en
enn hafa engin þeirra litið dagsins
ljós. Karl Pétur bendir á, líkt og Páll
Rafnar, að stuttur tími sé liðinn frá
því að ríkisstjórnin tók við. Það sé
mögulegt að einhverjum málum
verði frestað. Frumvarp ráðherra
um jafnlaunavottun sé hins vegar
farið frá ráðherra og sé til umfjöll-
unar í forsætisráðuneytinu.
Jón Gunnarsson, samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra, hefur
lagt fram fjögur mál af átta sam-
kvæmt vef Alþingis. Vigdís Ósk
Häsler Sveinsdóttir, aðstoðarkona
Jóns, segir að tvö mál til viðbót-
ar hafi verið lögð fram í ríkisstjórn
síðastliðinn föstudag og séu nú til
umræðu inni í þingflokkum. Þeim
tveimur málum sem út af standa
hafi verið frestað til haustsins.
Reynt að klára mál
Benedikt Jóhannesson, fjármála-
og efnahagsráðherra, hefur lagt
fram ellefu þingmál af þeim sautján
sem boðuð voru. Unnið er að því að
klára þau mál sem út af standa en
samkvæmt upplýsingum frá Gylfa
Ólafssyni, aðstoðarmanni Bene-
dikts, er ekki ljóst hvort það tekst.
Sigríður Á. Andersen
dómsmála ráðherra hafði 17. mars
lagt fram þrjú þingmál af þeim tíu
sem boðuð voru. Síðan þá hefur
staðan ekki breyst samkvæmt vef
Alþingis, enn vantar sjö þingmál
upp á. Ekki fengust upplýsingar úr
ráðuneytinu um stöðu þeirra mála.
Utanríkisráðherra, Guðlaugur
Þór Þórðarson, hefur lagt fram
fimm þingsályktunartillögur en
eftir standa sjö önnur þingmál.
Borgar Þór Einarsson, aðstoðar-
maður Guðlaugs, segir að búið
sé að afgreiða fimm þeirra í ríkis-
stjórn þótt þau séu ekki komin inn
á borð Alþingis. Það gerist væntan-
lega á næstunni. Tveimur málum
hafi hins vegar verið frestað til
haustþings, frumvarpi til laga um
Íslandsstofu og þingsályktunar-
tillögu um alþjóðlega þróunar-
samvinnu Íslands. Seinna málinu
hafi verið frestað vegna þess að sett
hafi verið af stað vinna við endur-
skoðun á stefnu og markmiðum
utan ríkisþjónustunnar og því eðli-
legt að umrædd þingsályktunar-
tillaga bíði og fylgi þeirri endur-
skoðun í haust.
Kristján Þór Júlíusson, mennta-
og menningarmálaráðherra,
boðaði þrjú þingmál. Tvö þeirra
frestast. Eftir því sem Inga Hrefna
Sveinbjarnardóttir, aðstoðarkona
Kristjáns, sagði DV er í öðru tilfell-
inu um að ræða upptöku á ESB-til-
skipun sem ekki hefur verið kláruð
af hálfu sambandsins. Í hinu til-
fellinu er um að ræða frumvarp
til sviðslistalaga. Þriðja málið var
kynnt í ríkisstjórn síðasta föstudag.
Lyfjalögum verður frestað
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra
boðaði fimm þingmál en einu þeirra
verður frestað fram á haust, frum-
varpi til lyfjalaga. Stefnt að því að
leggja fram önnur mál, en þó er
ekkert þeirra fram komið.
Af þeim þingmálum sem Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferða-
mála-, iðnaðar- og nýsköpunarráð-
herra, boðaði eru þrjú af níu kom-
in fram. Samkvæmt upplýsingum
úr ráðuneytinu hefur tveimur mál-
um verið frestað, eitt mál verður lagt
fram í dag og stefnt er að því að leggja
fram tvö önnur þó tæpt sé á að það
muni nást fyrir tilskilinn frest.
Ekki fengust svör um stöðu mála
í umhverfisráðuneytinu en sam-
kvæmt Alþingisvefnum hefur Björt
Ólafsdóttir, ráðherra málaflokksins,
lagt fram þrjú af þeim þrettán þing-
málum sem hún boðaði í þingmála-
skrá. Þá er langt síðan forsætisráð-
herra, Bjarni Benediktsson, lagði
fram sitt frumvarp. n
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Ná ekki
öllum málum
fram Ráðherr-
ar hafa þegar
frestað boðuð-
um þingmálum
fram á haust.
Ástæðan er
ekki síst hversu
stuttan tíma
ríkisstjórnin
hefur haft til að
vinna þau. MyNdiR
SigtRygguR ARi
Þorgerður Katrín gunnarsdóttir
Þorsteinn Víglundsson
Þordís Kolbrún Reykfjörð gylfadóttir
Benedikt Jóhannesson