Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Síða 8
Vikublað 28.–30. mars 20178 Fréttir
Nýjar vörur
í hverri viku
Holtasmári 1, Kópavogur / Sími: 571 5464
Sjáðu úrvalið á
tiskuhus.is
Íslendingar
óttast ekki
hryðjuverk
Aðeins tæplega 8 prósent Ís
lendinga á aldrinum 18 til 75
ára telja að hryðjuverk verði
framin á Íslandi, en 76–77 pró
sent telja það ólíklegt. Þeir
yngstu og elstu telja það lík
legra en þeir sem eru á miðjum
aldri. Þetta kemur fram í nýrri
könnun Maskínu.
Með auknum tekjum og
lengri skólagöngu telur fólk
ólíklegra að hryðjuverk verði
framin hér á landi. Þá er
athyglis vert að hér finnst ekki
munur á mati kjósenda flokk
anna á hryðjuverkaógninni.
Síðan kemur í ljós að því oftar
sem fólk hugsar um að hryðju
verk verði framin á Íslandi
þeim mun líklegra telur það að
þau verði framin hér.
Langstærstur hluti lands
manna, 76–77 prósent, hugs
ar sjaldan eða aldrei um að
hryðjuverk verði framin á Ís
landi, en aðeins um 4 prósent
hugsa oft um það. Konur hugsa
örlítið oftar um hryðjuverk en
karlar og þeir yngstu oftar en
eldri. Þá kemur í ljós að kjós
endur Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins hugsa oftar
um að hryðjuverk verði framin
á Íslandi en kjósendur annarra
flokka.
Könnunin var gerð dagana
10. til 22. mars 2017 og náði til
877 manns á aldrinum 18 til 75
ára um allt land.
S
autján umferðaróhöpp voru
tilkynnt til lögreglunnar á
Suðurlandi í liðinni viku. Í
einu tilviki var um að ræða
ölvunarakstur en í dagbók lög
reglu kemur fram að ökumaður hafi
misst stjórn á bifreið sinni sem valt á
Hrunavegi skammt frá Grafarbakka
aðfaranótt fimmtudags.
Maðurinn kastaðist út úr bílnum
og fótbrotnaði. Að sögn lögreglu hlaut
félagi mannsins, sem var með hon
um í för, minni háttar áverka. Öku
maðurinn var fluttur með sjúkrabif
reið á slysadeild Landspítalans þar
sem gert var að beinbrotinu. n
Ölvaður ökumaður
kastaðist úr bílnum
Leigubíllinn frá Leifsstöð
kostaði á sjötta þúsund
H
onum fannst bílstjórinn
fara svo miklar krókaleiðir,“
segir Ásthildur Harðar
dóttir, starfsmaður á
Keflavíkurflugvelli, sem var
spurð af erlendum kollega sínum
í gær, mánudag, hvort hann hefði
mögulega verið féflettur af leigubíl
stjóra frá Hreyfli sem keyrði hann
frá Keflavíkurflugvelli og
á Hótel Keflavík síðast
liðinn miðvikudag. Fyrir
ferðina borgaði hann
rúmar 5.000 krónur.
Ferðin tók 16 mínútur
Þegar Ásthildur leit á
kvittun félaga síns sá hún
undir eins að leigubíl
stjórinn hafði ekið með
farþegann rúmlega 10
kílómetra leið í stað þess
að skila honum beint á
áfangastað, en sú leið er
tæpir fjórir kílómetrar.
Ferðin tók því rúmar
16 mínútur og borgaði
farþeginn 5.260 krónur
fyrir. Ásthildur kvartaði
til stjórnenda Hreyfils
sem könnuðu málið í
gær.
Ásthildur kveðst
sjálf hafa orðið fyrir
barðinu á óprúttnum
leigubílstjórum sem hún segir að
hafi engan áhuga á að skutla fólki til
Reykjanesbæjar. Í fyrrasumar þegar
Ásthildur, sem er búsett í Keflavík,
var nýkomin úr flugi frá London og
settist upp í leigubíl fyrir utan flug
stöðina sagði leigubílstjórinn henni
að það væri fast verð, 3.500 krónur,
fyrir ferðir til Keflavíkur.
„Ég hef líka heyrt hærri upp
hæðir en í mínu tilfelli sagði leigu
bílstjórinn að ferðin kostaði 3.500.
Hann kveikti ekki á gjaldmælinum
og sagði að ef þeir tækju minna fyrir
túrinn tæki það sig ekki að keyra
fólk inn í Keflavík. Ég fór ekki lengra
með málið þá. Þess vegna ákvað ég
að leggja fram kvörtun fyrir hönd
kollega míns. Mér blöskrar þessi
þjónusta og ég veit að þetta er ekki
einsdæmi.“
Þekkti ekki leiðina
Þröstur Hjálmarsson, deildarstjóri
hjá Hreyfli, segir í samtali við DV
vegna málsins að bílstjórinn sem
tók kollega Ásthildar upp í bílinn
hjá sér síðastliðinn miðvikudag hafi
ekki ratað í Keflavík. Þess vegna hafi
hann farið lengri leið en hann hefði
annars átt að keyra. „Hann fór fram
hjá afleggjaranum þar sem hann átti
að beygja og fór næst niður. Þá var
leiðin orðin töluvert lengri, það er
ekkert flóknara en það.“
Inntur svara um hvort umræddur
bílstjóri hefði ekki átt að stoppa mæl
inn fyrst hann þekkti ekki leiðina og
var kominn langt frá áfangastað far
þegans, svarar Þröstur. „Það verður
að skrifast á vanþekkingu bílstjórans
sem hefði átt að stöðva mælinn en
hann er nýlega byrjaður svo hann
klikkar á því.“ Þröstur segir jafnframt
að brugðist hafi verið við kvörtun
Ásthildar og farþeganum verði
endurgreiddur mismunurinn.
Enginn þarf að bjóða
upp á sama gjald
Þá segir Þröstur að í tilfelli Ásthildar
sé þetta vandamál til staðar eftir að
samkeppnislögum var breytt. Þá
séu 3.500 krónur ekki óeðlilegt gjald
frá Keflavíkurflugvelli og í miðbæ
Keflavíkur á kvöld og helgartaxta.
„Enginn þarf að vera með sama gjald
eftir að lögunum var breytt. Það
finnst okkur hjá Hreyfli ekki snið
ugt en við reynum að halda gjaldinu
niðri í krafti stærðar fyrirtækisins.“
Að lokum segir Þröstur það af og
frá að bílstjórar Hreyfils reyni að hafa
fé af notendum þjónustunnar, þá
sérstaklega ferðamönnum, með því
að fara með þá krókaleiðir. „ Ef svo er
þá fengju þeir sjálfsagt að leita sér að
vinnu einhvers staðar annars staðar.
Auðvitað geta samt kjánar sem eru
að byrja þvælst rangar leiðir.“ n
n Leiðin í miðbæ Keflavíkur er fjórir kílómetrar n Bílstjórinn sagður hafa villst
Kvittunin
Bílstjórinn
keyrði með
hann 10,5
kílómetra
vegalengd.
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Harma vinnu-
brögð nýliðans
Hreyfill segir að
mismunurinn verði
endurgreiddur.
Ásthildur Ása Harðardóttir Blöskraði
upphæðin sem félagi hennar þurfti að
reiða fram. Mynd Úr EinKasaFni
„Mér blöskrar þessi
þjónusta og ég
veit að þetta er ekki
einsdæmi.