Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Side 20
Vikublað 28.–30. mars 201720 Sport
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Farðu nýjar leiðir og prófaðu gómsætar
hrefnulundir á grillið eða á pönnuna
snöggsteiktar að hætti meistarakokka
Frosið hrefnukjöt
fæst í næstu verslun
Marinerað
& ÓMarinerað
hreFnukjöt
Þessir geta verið svekktir
að komast ekki í landsliðið
n Höfuðverkur Heimis n Ótrúlega margir góðir leikmenn
Í
slenskir knattspyrnumenn hafa
aldrei staðið sig jafn vel og síð-
ustu ár, það er staðreynd sem
erfitt er að líta fram hjá miðað
við stöðu landsliðsins. Íslenska
karlalandsliðið átti eins og flestir
vita frábæru gengi að fagna á EM í
Frakklandi í fyrrasumar, liðið hefur
svo byrjað vel í undankeppni fyrir
HM í Rússlandi árið 2018.
Ísland vann góðan sigur á
Kósóvó á föstudag og er með tíu stig
þegar keppni í riðlinum er hálfn-
uð, liðið á ágæta möguleika á að
komast til Rússlands sem væri enn
merkilegra afrek en að komast á
Evrópumótið sem var fyrsta stór-
mót liðsins.
Þegar vel gengur vilja allir vera
með og í dag á Ísland marga mjög
frambærilega knattspyrnumenn.
Það eru því nokkrir sem sitja eftir
með sárt ennið.
Hér í þessari úttekt verða skoðaðir
átta leikmenn sem allir geta verið
svekktir út af því að komast ekki í
landsliðshóp Heimis Hallgrímssonar.
Ekki er verið að gagnrýna störf Heimis
með þessum lista heldur aðeins að
benda á hversu marga frábæra leik-
menn við eigum. Leikmennirnir átta
komust ekki í síðasta
hóp Heimis sem er
nú í verkefni. n
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Matthías
Vilhjálmsson
Rosenborg
Það virðist ekki breyta neinu fyrir
Matthías hvað hann gerir innan vallar,
hann fær ekki tækifæri með landsliðinu.
Mjög fjölhæfur leikmaður sem hefur sýnt
góða frammistöðu með Rosenborg í Noregi,
hefur hins vegar ekki náð að heilla Heimi
Hallgrímsson, þjálfara landsliðsins,
og það vekur furðu margra.
Þarf að halda áfram á sömu
braut og þá er líklegt að
kallið komi fyrr en síðar.
Rúnar Már Sigurjónsson
Grasshopper
Það kom gríðarlega á óvart að sjá Rúnar ekki í landsliðshópnum
sem nú er í verkefni, hann hefur átt fast sæti í hópnum og var
hluti af EM-hópnum. Hefur frá því að EM lauk farið í sterkara lið,
en hann leikur í dag með Grasshopper í Sviss. Hefur spilað vel þar
og skorað reglulega. Hann má vera hundsvekktur að vera ekki í
hópnum.
Rúnar Alex Rúnarsson
Nordsjælland
Okkar langefnilegasti markvörður er byrjaður að spila á fullu í
dönsku úrvalsdeildinni, framtíð hans er gríðarlega björt og ljóst
má vera að hann er farinn að setja mikla pressu á Heimi Hall-
grímsson. Maðurinn sem ætti að standa vaktina í marki Íslands í
framtíðinni ef fram fer sem horfir.
Albert Guðmundsson PSV
Hefur staðið sig virkilega vel í næstefstu deild Hollands og ljóst að ef hann yrði kallaður
í íslenska landsliðshópinn þá yrði enn meiri pressa á þjálfara PSV að velja hann í aðallið
félagsins. Albert ætti að fá tækifæri með aðalliði PSV á næstu leiktíð og þá ætti möguleiki
hans á að komast í landsliðið að aukast mikið. Er efnilegasti leikmaður Íslands í dag.
Hjörtur
Hermansson
Bröndby
Við erum með marga öfluga miðverði
en Hjörtur hefur stigið mikið upp síðustu
mánuði og er miklu betri leikmaður í dag
en hann var í fyrrasumar þegar hann
fór með landsliðinu á EM. Hjörtur
hefur spilað mjög vel í Dan-
mörku og frammistaða
hans hefur vakið
athygli.
Jón Guðni Fjóluson
IFK Norrköping
Jón hefur stimplað sig inn sem algjör lykil-
maður í einu besta liði Svíþjóðar og Heimir
Hallgrímsson hefur haft orð á því að Jón sé
ansi nálægt því að komast í landsliðshópinn.
Stóð sig vel í verkefnum landsliðsins í upphafi
árs og ætti með sama áframhaldi að banka
enn fastar á dyrnar. Sterkur, með fínan hraða
og góðar sendingar.
Guðlaugur
Victor Pálsson
Esbjerg
Miðað við hversu fáa miðjumenn við eig-
um í dag sem eru að gera góða hluti þá
ætti Guðlaugur Victor að vera svekktur
yfir að fá ekki tækifæri í hópnum. Miðju-
maðurinn hefur spilað vel með Esbjerg
í dönsku úrvalsdeildinni og sýnt góða
frammistöðu í liði sem á í vandræðum.
Björn Daníel
Sverrisson AGF
Björn Daníel sýndi í verkefni landsliðsins í
Kína í upphafi árs að snilli hans getur verið
mikil. Leikmaður með ótrúlega hæfileika
sem getur unnið leiki, gæti mögulega verið
leikmaðurinn sem leysir Gylfa Þór Sigurðs-
son af hólmi að einhverju leyti. Vitað er að
skarð Gylfa verðurm aldrei fyllt að fullu
missi hann úr leiki, en Björn Daníel hefur að
mörgu leyti svipaða eiginleika og Gylfi.
Heimir Hallgrímsson
Hefur úr mörgum góðum leik-
mönnum að velja. Mynd EPA