Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Síða 28
Vikublað 28.–30. mars 201728 Menning
Framúrskarandi fimm
stjörnu söngskemmtun
F
yrst af öllu, ef þú ert á leið á
Elly í Borgarleikhúsinu, ekki
mæta rétt fyrir sýningu og
búast við því að sætið bíði eftir
þér. Það ríkir nefnilega allt
önnur stemning á Nýja sviði Borgar
leikhússins en maður er vanur. Taktu
þér góðan tíma í að hafa þig til, hér
dugar ekkert minna en árshátíðar
klæðnaður og glæný greiðsla.
Slepptu kvöldmatnum heima, klapp
aðu kortinu þínu og mættu svo
klukkutíma fyrir sýningu. Náðu borði
strax á góðum stað í salnum, það sitja
yfirleitt fjórir til borðs þannig að ef
þið eruð færri þá kynnist þið líklega
nýjum og skemmtilegum leikhús
vinum þetta kvöld. Farðu svo á bar
inn og pantaðu þér einn af frábærum
smáréttum Borgarleikhússins ásamt
glasi af góðu víni. Smárétturinn verð
ur borinn til þín inn í sal og disk
urinn tekinn áður en sýningin hefst.
Þá er ég nokkuð viss um að þú verðir
kominn í réttu stemninguna fyrir
fyrstu söngskemmtun Ellyjar með KK
sextettinum árið 1953.
Ný stjarna stígur á svið
Sýningin er söngferðalag um lífs
hlaup og feril Ellyjar. Við kynnumst
henni fyrst þegar hún mæt
ir í söngprufu hjá KK aðeins 18
ára gömul og fylgjumst með vax
andi vinsældum hennar sem söng
konu með nokkrum ólíkum hljóm
sveitum. Við kynnumst jafnframt
eigin mönnum Ellyjar, apanum
hennar, kjafta sögunum, endur
komunni og endalokunum. Katrín
Halldóra Sigurðardóttir sýnir al
gjöra stjörnuframmistöðu í hlutverki
Ellyjar. Fínlegur leikur, hófstilltur
en fullur af smáatriðum ásamt óað
finnanlegum söng, bókstaflega lyftir
anda áhorfenda upp á æðra plan.
Katrín Halldóra hefur með þessari
sýningu stimplað sig inn sem ein
fremsta leikkona landsins og ástæða
til þess að óska henni sérstaklega til
hamingju með frammistöðu sína.
Ég var fyrirfram svolítið hrædd
um að Björgvin Franz Gíslason færi
að ofleika í hlutverki Ragnars Bjarna
sonar. Björgvin er frábær eftirherma,
en hann hefur mjög opið og tján
ingarríkt andlit og þarf því stund
um að tempra svipbrigði sín svo
þau verði ekki yfirdrifin. Ótti minn
var hins vegar ástæðulaus, Björgvin
komst vel frá öllum sínum hlutverk
um sem voru sjö talsins. Ánægjulegt
er að geta þess að söngrödd hans í
hlutverkum Ragnars Bjarnasonar og
Vilhjálms Vilhjálmssonar var hreint
og beint mögnuð. Það væri gaman
að sjá Björgvin Franz oftar á sviði í
sönghlutverkum.
Hjörtur Jóhann Jónsson fór með
hlutverk Svavars Gestssonar með
mjög eftirminnilegum hætti. Leik
húsgestir munu ekki eiga í nokkrum
vandræðum með að meta áhrif
Svavars á líf Ellyjar, fas hans og
framkoma sagði oftast miklu meira
en handritið og það var gaman að
sjá leikara leggja svona mikla vinnu í
undirtexta og sköpun á vilja og hugs
unum persónu sinnar. Auk þess var
hann vakandi yfir salnum líkt og
maður ímyndar sér að Svavar hafi
sjálfur verið, jafnvel kastað tölu á
gesti til þess að gera sér grein fyrir
væntanlegri innkomu. Hjörtur fór
einnig með hlutverk Eyþórs Þor
lákssonar, fyrsta eiginmanns Ellyjar,
og var það ekki síður vel gert. Þá fór
hann einnig með tvö minni hlutverk.
Þau Katla Margrét Þorgeirsdóttir
og Björn Stefánsson fóru í fjölmörg
aukahlutverk sem of langt mál yrði
að fjalla um en voru öll vel af hendi
leyst.
Galdri líkast
Tónlistin vegur þungt í þessari sýn
ingu þar sem um fjörtíu lög hljóma
á milli textabrota. Handritið telur
ef til vill ekki margar blaðsíður en
það sem er sagt er vandlega unnið
og hver einasta setning skiptir þar
máli og gegnir sínu hlutverki. Hljóð
færaleikararnir voru mikið á sviðinu,
leikur þeirra lipur í öllum stílbrögð
um og þeim tókst að vera bæði eðli
legir og spennandi án þess þó að
trufla fókusinn á aðalleikurunum.
Leikstjórnin er vel unnin hjá
Gísla Erni Garðarssyni, hann
byggir sýninguna réttilega á hæfni
listamannanna, er trúr vandaðri
framkomu Ellyjar og þeim tíðaranda
sem hér ríkti. Útkoman er fjarska ólík
þeirri sem við sáum nýlega í Laugar
dalshöll í tengslum við Eurovision og
er áhorfenda að meta muninn. Aug
ljóslega er unnið að því að draga úr
sýnileika hátæknilegs ljósabúnaðar
leikhússins og var lýsingin einstak
lega vel unnin. Það var galdri líkast
að sjá hvernig birtan breytti rauða
panelnum á veggjum klúbbsins allt í
einu í viðarlitaðan panel í upptöku
stúdíóinu. Um búningana mætti
skrifa langan lofsöng, ég held að nóg
sé að segja að varla sé til sú kona sem
ekki máti sig í huganum í einhverjum
þeirra glæsilegu kjóla sem Katrín
skartar á sýningunni. Sviðsmyndin
er einnig mjög vel heppnuð, ekki
síst ljós og dreglar sem mynda róm
antíska stjörnu yfir áhorfendum. Þá
voru leikgervi og hárgreiðsla mjög
glæsileg. Það eina sem hægt væri
að setja út á var að einstaka sinnum
hljómaði söngur Katrínar óþarflega
hátt miðað við hljóðfæraleikinn en
það kann þó að vera stílbragð síns
tíma.
Ef leikhúsgestir taka áskorun
Borgarleikhússins um að hverfa aftur
til gamalla tíma með tilheyrandi
takti, tárum og notalegum minning
um, þá munu þeir sannarlega eiga
fimm stjörnu rómantíska kvöldstund
með framúrskarandi ljúfum tónum.
Jafnvel á ofurvenjulegum miðviku
degi líkt og ég gerði. n
„Katrín Hall-
dóra Sigurðar-
dóttir sýnir algjöra
stjörnuframmistöðu í
hlutverki Ellyjar. Fínlegur
leikur, hófstilltur en full-
ur af smáatriðum ásamt
óaðfinnanlegum söng,
bókstaflega lyftir anda
áhorfenda upp á æðra
plan.
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Elly
Höfundur: Ólafur Egill Egilsson og Gísli Örn
Garðarsson
Leikstjóri: Gísli Örn Garðarsson
Leikarar: Katrín Halldóra Sigurðardóttir,
Björgvin Franz Gíslason, Hjörtur Jóhann
Jónsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og
Björn Stefánsson
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Hljómsveit: Sigurður Guðmundsson, Aron
Steinn Ásbjarnarson, Björn Stefánsson,
Guðmundur Óskar Guðmundsson og Örn
Eldjárn
Tónlistarstjórn: Sigurður Guðmundsson
Sýnt í Borgarleikhúsinu
Aftur í tímann Leikritið Elly á Nýja sviði
Borgarleikhússins.
Dæmd í þriggja ára
fangelsi fyrir málverk
Zehra Doğan málaði mynd af eyðileggingu í Nusaybin
T
yrkneskkúrdíska blaða og
listakonan Zehra Doğan var fyrr
í mánuðinum dæmd í tveggja
ára, níu mánaða og tuttugu og
tveggja daga fangelsi fyrir að deila mál
verki eftir sig á samfélagsmiðlum. Mál
verkið er gert eftir ljósmynd sem sýnir
eyðileggingu í kúrdísku borginni Nusa
ybin í Mardinhéraði, en tyrkneski her
inn sprengdi borgana í herferð sinni
gegn kúrdíska verkamannaflokknum
(PKK) í fyrra. Á myndina af eyðilagðri
borginni bætti Doğan við nokkrum
hangandi tyrkneskum fánum.
Yfirvöld segja að ekki sé verið að
refsa henni fyrir listaverkið heldur
fyrir að deila mynd sem sýndi yfir
standandi hernarðaraðgerð, en lög
maður hennar segir hins vegar að
dómurinn sé árás á list og alla list
ræna tjáningu. n
kristjan@dv.is