Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Page 8
Helgarblað 7.–10. apríl 20178 Fréttir
Unnusti Sigrúnar Ástu fær ekki
viðurkennt faðerni
látinnar dóttur þeirra
A
ð jarða barnið sitt er eitthvað
sem við óskum ekki okkar
verstu óvinum. Það fá engin
orð lýst þeirri sorg sem við
höfum upplifað. Tímabilið
eftir fæðinguna var eins og í móðu en
ég er fegin að hafa ekki fengið fregnir
af þessu óréttlæti þá. Það hefði eflaust
orðið okkur um megn,“ segir Sigrún
Ásta Brynjarsdóttir í samtali við DV.
Dóttir Sigrúnar Ástu og unnusta henn-
ar fæddist andvana í byrjun mars.
Þar sem að parið unga var ekki skráð
formlega í sambúð þá fæst ekki viður-
kennt að unnusti Sigrúnar Ástu sé fað-
ir barnsins. Afleiðingarnar eru þær
að hinn syrgjandi faðir fékk synjun
úr fæðingarorlofssjóði og var þannig
þvingaður aftur út á vinnumarkað.
Látin í móðurkviði
Þann 28. febrúar, aðeins viku fyrir
settan dag, fengu Sigrún Ásta og
unnusti hennar þær fregnir að dóttir
þeirra, Emma, væri látin í móðurkviði.
„Hún fæddist síðan 2. mars og það var
afar erfið upplifun,“ segir Sigrún Ásta.
Í stað þess að njóta þess að kynnast
sínu fyrsta barni þurfti parið unga að
skipuleggja útför þess.
Að mörgum formsatriðum var að
hyggja og daginn eftir, þann 3. mars,
fóru þau á skrifstofu sýslumannsins
í Borgarnesi þar sem að þau sóttust
eftir því að fá faðerni barnsins viður-
kennt. Síðan sóttu þau um í Fæðinga-
orlofssjóði. Nokkrum vikum síðar,
þegar útför Emmu var afstaðin, þá
barst synjun frá báðum stofnunum.
Sigrún Ásta og unnusti hennar voru
ekki skráð í sambúð og á því byggðist
niðurstaðan.
Ekkert til um slík tilvik í lögum
„Það stendur ekkert í lögum um til-
vik sem þetta, enda byggist til dæmis
synjun Þjóðskrár á mati stofnunar-
innar. Ef dóttir okkar hefði fæðst
og lifað í nokkrar klukkustundir þá
hefði þetta farið í gegn. Maður upp-
lifir því að líf hennar sé minna virði
af því að hún var látin þegar hún
fæddist,“ segir Sigrún Ásta.
Að hennar mati eru hún og
unnusti hennar fórnarlömb aug-
ljósrar holu í kerfinu. „Það er afar
sárt að það bitni á manninum mín-
um með þessum hætti. Ég fæ greitt
fæðingarorlof en ekki hann og það
er ekki jafnrétti. Ég skil í raun ekki
að stofnunin hafi í sér að synja um-
sókninni, er ekki nógu mikið á okkur
lagt?“ spyr hún.
Hún og unnusti hennar hafa
kært úrskurð Þjóðskrár til innan-
ríkisráðuneytisins og hyggst gera
það sama við úrskurð Fæðingaror-
lofssjóðs. „Þetta er prinsippmál að
mínu mati. Ég held að flestir geti
verið sammála um að þetta er hróp-
legt óréttlæti. Ég vona að við náum
að knýja í gegn breytingar þannig að
engin annar þurfi að upplifa þetta,“
segir Sigrún Ásta.
Hafði ekki flutt lögheimilið
Unnusti Sigrúnar Ástu á íbúð sem
þau voru að standsetja meðan á með-
göngunni stóð. Ætlunin var að fjöl-
skyldan litla flytti þangað inn fljótlega
eftir fæðinguna. „Ég var ekki búinn að
færa lögheimili mitt þangað og það
skapar þessi vandræði. Við fengum
þær upplýsingar að ef við hefðum gert
einhverjar aðrar ráðstafanir varðandi
faðerni barnsins þá hefðu umsókn-
irnar farið í gegn. Í fyrra reyndi ég að
skrá sameiginlega forsjá fyrirfram en
fékk þær upplýsingar að það væri ekki
hægt. Það virðist ekki skipta neinu
máli nú,“ segir hún.
Ómetanleg fjölskylda og vinir
Ættingjar og vinir parsins hafa staðið
þétt við bak þeirra eftir að áfallið reið
yfir. Ástvinirnir settu af stað söfnun
fyrir unga parið á þessum erfiðu tím-
um. Liður í því er hlutavelta þar sem
fjölmargir glæsilegir vinningar eru í
boði. Allur ágóðinn rennur óskiptur
til Sigrúnar Ástu og unnusta hennar.
„Okkur finnst meira en nóg um það
sem þau hafa þurft að ganga í gegnum
þó svo þau þurfi ekki að rjúka strax í
vinnu eða hafa fjárhagsáhyggjur líka,“
segir á Facebook-síðu viðburðarins.
„Í þessu erfiða ferli höfum við verið
minnt á hvað við eigum ótrúlega góða
að. Það hafa allir okkar nánustu vinir
og ættingjar verið tilbúnir að gera allt
fyrir okkur. Við erum afar þakklát fyrir
það,“ segir Sigrún Ásta. n
Sigrún
Ásta
Brynjars-
dóttir„
Ég vona að við náum að
knýja í gegn breytingar
þannig að engin annar
þurfi að upplifa þetta.
n Afleiðingin er sú að hann fær ekki
fæðingarorlof og þar með tíma til að syrgja
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is