Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Blaðsíða 24
Helgarblað 7.–10. apríl 20172 Brot af því besta - Kynningarblað Engar tvær veislur eins Culina veisluþjónusta framreiðir dýrindis mat fyrir alla M ín sérstaða felst meðal annars í því að ég þjón- usta margvíslega hópa. Þegar hópur fólks er samankominn er eðlilegt að einhver hluti af þeim hópi sé grænmetisætur og einhverjir séu með ýmiss konar fæðuóþol eða of- næmi. Þá reyni ég að setja matseðl- ana saman með það fyrir augum að allir geti fengið það sem þeir vilja. Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að semja matseðlana með hverjum og einum þannig að engar tvær veislur eru alveg eins því kröfurnar og væntingarnar eru misjafnar, hóp- arnir eru misjafnir að samsetningu og maður reynir að endurspegla þetta í hverri veislu. Ég býð ekki upp á tilboð A, B eða C heldur er hver veisla einstök.“ Þetta segir Dóra Svavarsdóttir, eigandi veisluþjónustunnar Culina, en hún leggur mikla áherslu á að mæta sérþörfum allra og gera hverja og eina veislu einstaka: „Það er líka mjög eðlilegt að veitingarnar endurspegli fólkið sem er að bjóða til veislu og mér finnst af- skaplega gaman að vinna á þennan hátt með fólki, finna út uppáhaldsmatinn og spinna út frá því hvað hægt er að gera. Síðan eru það önnur tilefni eins og til dæmis árshá- tíðir eða haustfagnaðir á vinnustöðum, þá eru oft einhver þemu eða verið að búa til einhverja sérstaka stemningu í fyrirpartíinu. Þá er gaman að halda áfram með það út í gegnum matinn líka.“ Allt frá vegan upp í svínslæri Um áherslur í matargerðinni al- mennt segir Dóra: „Ég átti og rak á sínum tíma grænmetisstaðinn Á næstu grösum í tíu ár þannig að mínar rætur eru grænar. Culina býður vissulega upp á kjötrétti fyrir þá sem það vilja en þegar maturinn kemur frá okkur má samt alltaf búast við því að tölu- vert stærri hluti hans sé grænmeti en tíðkast hjá öðrum. Ég hef líka mikla reynslu af því að vinna í sam- ráði við fólk sem hefur ýmiss konar fæðuofnæmi og get miðlað af þeirri reynslu. Mér finnst líka alveg glat- að að fólk geti ekki borðað matinn í sinni eigin veislu og vil koma í veg fyrir slíkar uppákomur. Það er lág- markskrafa. Það hefur verið mikil vakning í veganisma síðastliðin ár – þetta hefur alveg sprungið út – og undanfarið hef ég unnið með nokkrar veislur þar sem fólk hef- ur ákveðið að bjóða eingöngu upp á vegan-fæði. Mér hef afskaplega gaman af slíkum verkefnum. Á hinn bóginn hef ég líka verið með veisl- ur þar sem í boði eru lambaskankar, svínslæri og fleira þvíumlíkt. Á end- anum snýst þetta alltaf um óskir viðskiptavinarins.“ Kostnaðurinn er jafn misjafn og veislurnar eru margar. Þess vegna er gott að fólk sé búið að búa sér til ákveðinn ramma fyr- irfram. Það er síðan hægt að laga veisluna að kostnaðarramman- um hverju sinni eða endurskoða kostnaðarrammann. Það er hægt að gera ýmislegt með góðu sam- tali og samvinnu. Þú færð auðvit- að ekki humarhala og nautalundir fyrir klink en það er hægt að gera frábæra veislu úr ódýrara hráefni og vinna það öðruvísi.“ Til að panta veislu eða senda fyrir spurnir er best að hafa samband í gegnum netfangið dora@culina.is. Einnig má hafa samband í síma- númerið 892-5320. Síðan er gam- an að skoða heimasíðuna, culina.is, þar sem finna má fróðlegar og að- gengilegar upplýsingar. n Tófúspjót Girnilegt Súkkulaðikaka Tómatur, mozzarella og basil, amen! Dóra Svavarsdóttir eigandi Culina. Laxasnittur VeganmúffurRjúkandi pönnsur Vægast sagt girnilegt veisluhlaðborð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.