Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Page 24
Helgarblað 7.–10. apríl 20172 Brot af því besta - Kynningarblað
Engar tvær veislur eins
Culina veisluþjónusta framreiðir dýrindis mat fyrir alla
M
ín sérstaða felst meðal
annars í því að ég þjón-
usta margvíslega hópa.
Þegar hópur fólks er
samankominn er eðlilegt
að einhver hluti af þeim hópi sé
grænmetisætur og einhverjir séu
með ýmiss konar fæðuóþol eða of-
næmi. Þá reyni ég að setja matseðl-
ana saman með það fyrir augum að
allir geti fengið það sem þeir vilja.
Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að
semja matseðlana með hverjum og
einum þannig að engar tvær veislur
eru alveg eins því kröfurnar og
væntingarnar eru misjafnar, hóp-
arnir eru misjafnir að samsetningu
og maður reynir að endurspegla
þetta í hverri veislu. Ég býð ekki upp
á tilboð A, B eða C heldur er hver
veisla einstök.“
Þetta segir Dóra Svavarsdóttir,
eigandi veisluþjónustunnar Culina,
en hún leggur mikla áherslu á
að mæta sérþörfum allra og gera
hverja og eina veislu einstaka:
„Það er líka mjög eðlilegt að
veitingarnar endurspegli
fólkið sem er að bjóða til
veislu og mér finnst af-
skaplega gaman að
vinna á þennan hátt
með fólki, finna út
uppáhaldsmatinn og
spinna út frá því hvað
hægt er að gera. Síðan
eru það önnur tilefni
eins og til dæmis árshá-
tíðir eða haustfagnaðir á
vinnustöðum, þá eru oft einhver
þemu eða verið að búa til einhverja
sérstaka stemningu í fyrirpartíinu.
Þá er gaman að halda áfram með
það út í gegnum matinn líka.“
Allt frá vegan upp í svínslæri
Um áherslur í matargerðinni al-
mennt segir Dóra:
„Ég átti og rak á sínum tíma
grænmetisstaðinn Á næstu grösum
í tíu ár þannig að mínar rætur eru
grænar. Culina býður vissulega upp
á kjötrétti fyrir þá sem það vilja en
þegar maturinn kemur frá okkur
má samt alltaf búast við því að tölu-
vert stærri hluti hans sé grænmeti
en tíðkast hjá öðrum. Ég hef líka
mikla reynslu af því að vinna í sam-
ráði við fólk sem hefur ýmiss konar
fæðuofnæmi og get miðlað af þeirri
reynslu. Mér finnst líka alveg glat-
að að fólk geti ekki borðað matinn
í sinni eigin veislu og vil koma í veg
fyrir slíkar uppákomur. Það er lág-
markskrafa. Það hefur verið mikil
vakning í veganisma síðastliðin ár
– þetta hefur alveg sprungið út –
og undanfarið hef ég unnið með
nokkrar veislur þar sem fólk hef-
ur ákveðið að bjóða eingöngu upp
á vegan-fæði. Mér hef afskaplega
gaman af slíkum verkefnum. Á hinn
bóginn hef ég líka verið með veisl-
ur þar sem í boði eru lambaskankar,
svínslæri og fleira þvíumlíkt. Á end-
anum snýst þetta alltaf um óskir
viðskiptavinarins.“
Kostnaðurinn er jafn misjafn
og veislurnar eru margar. Þess
vegna er gott að fólk sé búið að
búa sér til ákveðinn ramma fyr-
irfram. Það er síðan hægt að laga
veisluna að kostnaðarramman-
um hverju sinni eða endurskoða
kostnaðarrammann. Það er hægt
að gera ýmislegt með góðu sam-
tali og samvinnu. Þú færð auðvit-
að ekki humarhala og nautalundir
fyrir klink en það er hægt að gera
frábæra veislu úr ódýrara hráefni og
vinna það öðruvísi.“
Til að panta veislu eða senda
fyrir spurnir er best að hafa samband
í gegnum netfangið dora@culina.is.
Einnig má hafa samband í síma-
númerið 892-5320. Síðan er gam-
an að skoða heimasíðuna, culina.is,
þar sem finna má fróðlegar og að-
gengilegar upplýsingar. n
Tófúspjót Girnilegt
Súkkulaðikaka Tómatur, mozzarella og basil, amen!
Dóra Svavarsdóttir eigandi Culina.
Laxasnittur
VeganmúffurRjúkandi pönnsur
Vægast sagt girnilegt veisluhlaðborð