Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Síða 14
Helgarblað 7.–10. apríl 201714 Fréttir „Ég hef nú ekki lent í vandræðum af neinu tagi með mínar tilfinningar í tuttugu ár og ég fer ekki að fórna öðr­ um lífsgæðum varðandi það. Ég hef bara ekki neina trú að það sé hægt að gera nokkuð. – Ég ætla alla vega ekki að taka þátt í því. Ég hef enga trú á þessu.“ Músin veifar á brauðristinni Við Diddi förum að sýna á okkur fararsnið. Þá birtist músin uppi á brauðristinni. Hún rís upp á afturlappirnar og það er líkt og hún sé að veifa þessum gestum, síðan stekkur hún niður og hverfur undir örbylgjuofninn Diddi segir: „Þú þarft að setja hann Megas upp á eldhúsbekk hjá þér, þá nær hann þessari músardruslu sem er fyrir aftan örbylgjuofninn.“ „Ert hún búin að vera lauma sér þar?“ spyr Gunnar. „Æi, hún má vera þar. Ég held að þetta sé eina músin sem er hérna. Það pirrar mig ekki neitt.“ Gunnar er einnig á leið til Reykja­ víkur og stefnir á að fara í Árbæjar­ laug. Hann greinir einnig frá því að hann ætli ekki að skerða hár sitt og skegg. „Ég ætla ekki að fara að raka af mér skeggið og klippa á mér hárið til að ég þekkist á þessari viðbjóðslegu mynd af mér.“ Gunnari er meinað að fara í sund á Selfossi og á Stokkseyri. Hann sækir því sundlaugar í Reykjavík og það er ástæðan fyrir síðu skeggi og miklu hári. Ef þú ferð í sund ertu þá að horfa á börn þar? „Ef þau eru í pottinum fyrir fram­ an mig þá sný ég mér ekki undan, ég get ekki svarað því öðruvísi,“ segir Gunnar og bætir við þegar hann er spurður hvað eigi sér stað í hausnum á honum þegar hann sér barn í sundi: „Í mínum augum er barnið kyn­ vera. Ég þarf ekki að skammast mín fyrir það. Það er engin skömm fyr­ ir mig. Þetta er eins og ég er bú­ inn að segja þér, þetta er kynvera. Kannski skýrir þetta málið; alveg eins og þegar þú horfir á fallega konu í pottinum eða Páll Óskar á fallegan strák, þetta eru kynverur. Þær eru kynverur fyrir mér á þessum aldri. Þær eru ekki í minnstu hættu líkt og fullorðnar konur fyrir þér. Enda hef ég aldrei áreitt krakka í svona tilfell­ um. Svona er það mitt prívat einka­ mál sem kemur ekki þér við ef ég held mig réttum megin við línuna.“ Gunnar greinir svo frá því að hon­ um hafi borist bréf frá Árborg þar sem honum var bannað að fara í sund í tveimur laugum á Suðurlandi. Í bréfinu var hann sakaður um að áreita börn. Líkt og með aðrar ásak­ anir neitar hann öllum slíkum ásök­ unum. Gunnar hvergi að sjá Lungun fyllast af hreinu sjávarlofti og það er góð tilfinning að vera kominn út úr þessu húsi sem myndi sóma sér vel í hvaða hryllingsmynd sem er. Mér var hugsað til ótal kvenna sem ég þekki sem hafa verið beittar kyn­ ferðislegu ofbeldi. Óhjákvæmilega hugsa ég til vina sem ég hef misst, vina sem voru beittir kynferðislegu ofbeldi og lifðu það ekki af. Seinna um daginn legg ég bíln­ um fyrir utan Árbæjarlaug og fer í sund. Það er ákveðin hreinsun eftir daginn. Ég svipast um eftir Gunnari. Hann ætlaði að vera hér í dag. Hann er hvergi sjáanlegur. Þar sem ég sit í pottinum og bíð eftir að reyna að góma Gunn­ ar hugsa ég hvort það sé rétt að birta viðtal við mann sem hefur beitt börn skelfilegu ofbeldi og er einn þekktasti níðingur landsins. Hvert er svarið? Svarið er alltaf, já. Gunnar afsakar gjörðir sínar líkt og komið hefur fram. Hann viðurkenn­ ir að vera barnaníðingur og það sé ólæknandi. Hann sér þriggja til ell­ efu ára stelpur sem kynverur. Hann neitar að leita sér aðstoðar. Hann lætur sér vaxa hár og skegg til að komast óáreittur í sund á höfuð­ borgarsvæðinu. Og hann hefur játað að hafa horft á myndir af fá­ klæddum börnum eftir að lögreglan lagði hald á rúmlega 40 þúsundir barnaníðsmyndir. Allar viðvörunarbjöllur hringja. Þess vegna ætla ég að segja sögu Gunnars. Hann á ekki að vera í þögn­ inni og myrkrinu. Svona talar mað­ ur sem hefur beitt einhverju skelfi­ legasta ofbeldi sem hægt er að beita barn. Hann er barnaníðingur sem þarf á hjálp að halda, samfélags okk­ ar vegna. Ég rís á fætur. Horfi í kringum mig. Gunnar lætur ekki sjá sig í lauginni í dag. Ég verð ekki fyrir vonbrigðum. Ég er feginn. n „Þessar 40 þúsund myndir, þær hafa nú ekki alltaf legið á hörðum diskum einhvers staðar á bak við lás og slá hjá mér. Gunnar hellir upp á kaffi Gunnar hellir upp á í hrörlegu húsinu. Gunnar segir að í hans huga séu stelpur á aldrinum 3 til 11 ára kynverur. Hann neitar að leita sér hjálpar. Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.