Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Síða 20
Helgarblað 7.–10. apríl 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
20 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjóri: Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Sigurvin Ólafsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Bara einhver
Nú þegar aðeins eru tæpir fjórt-
án mánuðir til næstu sveitar-
stjórnarkosninga eru forsvars-
menn flokkanna í Reykjavík
farnir að ókyrrast verulega.
Meðal þeirra eru áhrifamenn
í Vinstri grænum sem leita nú
logandi ljósi að frambærilegum
kandídat til að leiða flokkinn í
borgarstjórnarkosningunum
sem fram eiga að fara 26. maí á
næsta ári. Vinstri græn horfa til
þess að oddviti flokksins hljóti
að vera borgarstjóraefni þar eð
fylgi flokksins, á landsvísu og í
Reykjavík, gefi tilefni til að ætla
að flokkurinn fái fimmtungs-
eða fjórðungsfylgi í borginni,
sé vel haldið á spöðunum. Það
muni hins vegar aldrei ger-
ast með núverandi oddvita, Líf
Magneudóttur, sem efsta mann á
lista. Þá sé ekki um auðugri garð
að gresja þegar horft sé niður
listann. Sagan segir að framá-
mönnum flokksins sé slétt sama
um hvort viðkomandi kandídat
sé meðlimur í flokknum eða
ekki, bara að einhver öflugur fá-
ist til verksins.
Sirrý sögð áhugasöm
Vandræðagangurinn er hins
vegar ekki einskorðaður við
Vinstri græn heldur hafa
bæði Framsóknarmenn og
Sjálfstæðis menn verulegar
áhyggjur af stöðu mála inn-
an sinna raða. Sjálfstæðismenn
hafa raunar glímt við oddvita-
vandræða um langt skeið.
Halldór Halldórsson sem kom
að vestan til að rífa upp borg-
arstjórnarflokkinn hefur ekki
reynst sá bjargvættur sem vonir
stóðu til að hann yrði flokknum
og ekki þykja næstu menn á list-
um, Kjartan Magnússon, Áslaug
Friðriksdóttir eða Marta Guðjóns-
dóttir líkleg til afreka. Því er lík-
legt að einn ganginn enn verði
reynt að sækja einhvern utan-
aðkomandi til starfans. Nafn
Gunnars Einarssonar, bæjarstjóra
í Garðabæ, hefur verið nefnt í
þeim efnum. Nýjasta nafnið sem
heyrst hefur hvað varðar áhuga á
oddvitasætinu er hins vegar Sirrý
Hallgrímsdóttir, fyrrverandi að-
stoðarkona Illuga Gunnarssonar
í menntamálaráðuneytinu. Ekki
er ljóst hvað flokksforystunni
þykir um þær hugmyndir.
Það þarf ekki meira
en eitt högg
Friðrik Smári Björgvinsson um óhugnanlegt ofbeldi íslenskra ungmenna. – DV
Þú verður að taka þig
saman í andlitinu
Kári Stefánsson með skýr skilaboð til Bjarna Benediktssonar. – Fréttablaðið
Hann var fyrst og
fremst mjög hræddur
Faðir Ísaks Loga sem var bjargað úr sjónum í höfninni í Garði. – DV
Á
meðan amma mín sat hjá
mér og las mig í svefn með
sitt silfurgráa hár bundið í
fléttu, sjal yfir herðarnar og í
kjól sem var sprunginn út í blóm-
um og hvíslaði Ævintýraeyjunni
með sinni fögru röddu lá pabbi
góðrar vinkonu minnar uppi í
rúmi hjá dóttur sinni og nauðg-
aði henni. Hann nauðgaði barninu
sínu í mörg ár. Þessi vinkona mín er
dáin. Hún framdi sjálfsmorð. Hún
reyndi að drekkja minningunum í
brennivíni, síðar dópi. Ekkert gekk.
Minningarnar flutu alltaf upp á yfir-
borðið og vöfðu sig að lokum utan
um hana og þegar þær loks sukku
tóku þær hana með niður í djúpið.
Líklega mun einhver halda því
fram að DV sé að birta drottningar-
viðtal við barnaníðing þegar hann
flettir þessu tölublaði DV. Það er
fjarri lagi. Barnaníðingurinn mun
hata þessa umfjöllun. Reiðast.
Öskra. Berja í borðið svo músin
sem býr á bak við örbylgjuofninn í
húsi hans mun hrökkva í kút.
Á þessari stundu, sem þú ert að
lesa þessi orð, þá er Gunnar Jakobs-
son dæmdur barnaníðingur örugg-
lega fyrir löngu búinn að hringja í
mig og hrópa í símann. Gunnar vill
vera í felum. Hann vill ekki að þú
vitir hvernig hann lítur út, ekki leita
sér hjálpar. Og yfirvöld gera ekkert.
Á dögunum fékk hann skilorð fyrir
vörslu á rúmlega fjörutíu þúsund
barnaníðsmyndum og um fimm
hundruð hreyfimyndum.
Með því að benda á Gunnar,
segja sögu hans, bendum við á aðra
líka, það sem þarf að laga í samfé-
laginu. Því menn sem eru haldn-
ir barnagirnd telja oft að þeir séu
ekki að gera nokkuð rangt og kenna
jafnvel barninu um. Barninu sem
þeir eru búnir að skemma. Barninu
sem seinna á eftir að ánetjast fíkni-
efnum. Barninu sem er komið svo
langt niður í myrkrið að það ratar
ekki til baka.
Faðir vinkonu minnar játaði
aldrei ofbeldið. Leitaði sér aldrei
aðstoðar. Hann gerði ekkert rangt.
Hann bar kistuna út úr kirkjunni
og lýsti því yfir í erfidrykkjunni hve
rammur af afli alkóhólisminn væri.
Hvernig fíknin færi með fólk og átt-
aði sig ekki á að dóttir hans hafði
flúið minningarnar út í bílskúr og
hengt sig.
Barnaníðingar átta sig heldur
ekki á að barnið sem er beitt kyn-
ferðisofbeldi deyr kannski ekki
þessa kvöldstund sem þeir níðast
á því þegar enginn sér til. En af-
leiðingarnar eru rosalegar. Þær
sjást til dæmis á löngum biðlistum
eftir plássi á geðdeildum fyrir börn
og unglinga.
Æskuvinur minn skrifaði opið
bréf árið 2015 til að greina frá af-
leiðingum kynferðisofbeldis á ung-
lingsárum. Þar sagði hann:
„Ég hef barist við fíknina.
Mamma hefur reynt sjálfsmorð oft-
ar en einu sinni. Þá var mér strítt
fyrir að vera beittur kynferðisof-
beldi af karlmanni. Stundum var
reiðin að gera út af við mig og mér
fannst samfélagið hafa brugðist
mér. Réttara sagt: Samfélagið brást
mér. Ég veit líka að sumir sigrast á
misnotkun og lifa eðlilegu lífi. Ná
að komast yfir áfallið. Fíknina. Það
er gott. Mér hefur ekki tekist það.“
Hans barátta stendur enn yfir.
En það er von. Ég hef sjálfur ferð-
ast langt ofan í myrkrið og villst af
leið. Mér tókst að rata til baka með
hjálp góðs fólks eitt þungt skref í
einu. Og á meðan vonin er til stað-
ar er nauðsynlegt að fjalla um barna-
níðinga. Í DV í vikunni greindum við
frá ársskýrslu Stígamóta fyrir árið
2016 sem dregur upp dökka mynd af
stöðu mála þegar kemur að kynferð-
isbrotum hér á landi. Aldrei frá árinu
1992 hafa fleiri leitað til Stígamóta.
Við munum ekki hika við að
segja sögur níðinga, hvernig þeir
reyna að fela sig og hvaða af-
leiðingar það hefur, og um leið
benda á að yfirvöld eru að bregðast
börnum og foreldrum. Ef við gerð-
um það ekki værum við að bregðast
hlutverki okkar.
Í dag er framið meira en eitt kyn-
ferðisbrot á dag og þetta er orðið
gott. n
Stelpan sem níðingurinn drap
Myndin Í slipp Þau eru margvísleg verkin í slippnum. Hér er verið að undirbúa málningarvinnu á togaranum Páli Jónssyni frá Grindavík. Mynd SIGtryGGur ArI
Leiðari
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
„Því menn sem eru
haldnir barnagirnd
telja oft að þeir séu ekki
að gera nokkuð rangt og
kenna jafnvel barninu um.