Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Page 26
Helgarblað 7.–10. apríl 20174 Brot af því besta - Kynningarblað
Heilsa og útlit notar
nýjustu tækni og vísindi
Hlúa bæði að líkama og sál
S
nyrti- og heilsustofan Heilsa
og útlit sérhæfir sig í því
að hlúa bæði að líkama
og sál með notkun nýju-
stu og framþróuðustu tækja
og efna. Sandra Lárusdóttir, sem er
menntaður einkaþjálfari, stofnaði
fyrirtækið sumarið 2014 og hefur það
á skömmum tíma náð að festa sig í
sessi með sérhæfðum meðferðum
sem bæta vellíðan, útlit og heilsu.
„Okkar markmið er að kúnnanum
líði sem best með sjálfan sig og að
hann njóti sín í rólegu og afslappandi
umhverfi hjá okkur. Það er svo bón-
us ef útlitið lagast líka,“ segir Sandra.
Sandra er umboðsaðili fyrir heilsu-
vöruframleiðandann Weyergans,
en þeir framleiða hágæðatæki f yrir
hvers kyns sogæðameðferðir sem
Sandra notar í meðferðum sínum hjá
Heilsu og útliti. „Við sérhæfum okk-
ur í sogæðameðferðum og ber öllum
hér skylda til þess að læra á allar
meðferðirnar. En einnig bjóðum við
upp á aðrar meðferðir eins og húð-
meðferðir, vax og fitufrystingu,“ seg-
ir Sandra.
IONO-JET súefnisvél fyrir húðina
Fyrsta vélin sem hægt er að nota í
allt sem viðkemur húðinni! Dag-
lega verður húðin fyrir margs
konar skaðlegum áhrifum í nú-
tímasamfélagi, þar má telja upp
mataræði, eðlilegt öldrunarferli
og ýmsa umhverfisþætti sem
setja öll mark sitt á húð okkar.
IONO-Jet er einstök og víðfeðm
súrefnismeðferð fyrir allsherjar
húðfegrun og spornar gegn öldr-
unarmerkingu húðar. Þá er hægt
að stilla vélina á fimm meðferðar-
leiðir, það er;
Djúphreinsun (e. Peeling) með
áhrifaríkum ensímum Húðlýsing á
litablettum eða öldrunarflekkjum
Húðnæring fyrir húðina Húðlyft-
ing fyrir slappa húð Húðafeitrun (e.
Detox) sem gefur húðinni ljóma
Hægt er að vinna vel á hvers kyns
bóluvandamálum og fílapenslum.
IONO-JET tækið er framleitt í
Þýskalandi og er í stöðugri notkun
hjá Weyergans-stofnuninni. Þessi
nútímatækni er einstök og nýtist
sérlega vel í meðferðum gegn hin-
um fjölmörgu húðvandamálum.
Tæknin nýtist bæði í stök skipti til
húðfegrunar og fyrir heilar kúrmeð-
ferðir á erfiðari húðvandamál, þar
sem teknir eru fleiri tímar með tæk-
inu með reglulegu millibili. Eins má
nýta meðferðirnar með tilliti til árs-
tíðabundinna breytinga á húðinni.
„Þær meðferðir sem IONO-JET býð-
ur upp á eru allar algjörlega sárs-
auka- og skaðlausar og því er ekki
nokkur hætta á að viðskiptavinur
gangi út af stofunni okkar með rauða
og sára húð. Þetta er eina vélin sem
nota má til að skrúbba augnlokin,
sem segir töluvert um hvað þetta er
mikið undratæki,“ segir Sandra. Not-
ast er við rafgas og mismunandi nátt-
úruleg efni svo sem hreina plöntu-
sterkju, ákveðin serum, amínósýrur,
sérvalin vítamín og stofnfrumur sem
öll eiga það sameiginlegt að hafa
mjög afgerandi virkni í sjálfri húð-
meðferðinni.
Vacu Sport byggir á
geimvísindum
Hentar meðal annars íþróttamönn-
um og fólki með skert blóðflæði!
Þekkt er að eftir hvers kyns slys,
meiðsli og aðgerðir, virki heilunar-
og bataferli líkamans hægar en vana-
lega. Afleiðingar eftir slík áföll eru
meðal annars aukin vökvasöfnun
og bjúgmyndun. Æðakerfi líkam-
ans er þá oft undirlagt í marga daga
og algengt er að blóðrásar- og sog-
æðatruflanir geti jafnvel varað árum
saman. En með tilkomu Vacu Sport
vélarinnar frá Weyergans High Care
er hægt að flýta bataferli líkamans
svo um munar. Tæknin var upp-
haflega þróuð til að koma í veg fyrir
blóðrásarvandamál hjá geimförum
sem vinna í þyngdarlausu umhverfi.
Með Vacu Sport er hægt að minnka
bjúgmyndun hratt og endanlega. Þar
fer fram taktfast þrýstings- og loft-
tæmisnudd á æðakerfinu sem stór-
eykur blóðflæði í æðum og vöðvum
þannig að svæði, sem hafa orðið
fyrir meiðslum, jafna sig mun fyrr.
Þannig fær líkaminn meira súrefni
til sín og næringin skilar sér betur út
í frumurnar. Meðferðin kemur þér
mun fyrr í betra form og bætir heils-
una með því að hraða endurhæfingu
og endurnýjun þeirra svæða sem
þurfa á því að halda. Meðferðin hefur
einnig sannað sig gegn langvarandi
verkjum eins og gigt og liðavanda-
málum. „Fólk finnur töluverðan
mun á sér í öllum líkamanum eftir að
hafa fengið meðferð hjá okkur. Það
má einnig minnast á að fjölmargir
íþróttamenn nota Vacu Sport reglu-
lega til að hjálpa líkamanum að jafna
sig eftir íþróttameiðsl. Fótboltamað-
urinn Ronaldo á til dæmis tvö svona
tæki heima hjá sér og notar á hverj-
um degi. Einnig notar portúgalska
landsliðið í fótbolta Vacu Sport tækið
á leikmenn sína með góðum árangri.
Úti í heimi meðhöndla sjúkraþjálf-
arar, læknar og aðrir meðferðar-
aðilar alls konar fólk, allt frá ungum
íþróttamönnum til aldraðra einstak-
linga með skert blóflæði, með Vacu
Sport, enda eru áhrifin ótrúleg. Vacu
Sport virkar svo einnig í baráttunni
gegn appelsínuhúð,“ segir Sandra.
Súrefnishjálmur
„Ein af vinsælustu meðferðunum
okkar er húðmeðhöndlun í súrefnis-
hjálminum,“ segir Sandra. Um er að
ræða einstaka meðferð sem er 100%
náttúruleg og mjög fljótvirk. Í með-
ferðinni er unnið með oxun þar sem
neikvæðar súrefnisjónir draga til
sín súrefni í andrúmsloftinu. Orkan
sem myndast við samrunann er
leidd inn í höfuðhlífina sem virkar
eins og oxunarhjúpur utan um and-
litið. Þannig vinnur orkan sér leið
inn undir húðina og örvar sellulósa-
skiptin sem eru nauðsynleg til að
húðin geti gegnt sínu hlutverki sjálf,
eins og uppbyggingu, hreinsun,
viðhaldi, stinningu og styrkingu.
Á meðan meðferðaraðilinn and-
ar orkunni að sér í gegnum munn
og nef, nýtist súrefnisflæðið einnig
öllum líffærum og ekki síst heilan-
um. Þar sem engin aukaefni eru
nýtt í meðferðinni er hún fullkom-
lega náttúruleg. Meðferðin er viður-
kennd af þekktum húðmeðferðar-
stofnunum í Þýskalandi og hentar
viðskiptavinum vel sem gera miklar
kröfur til öldrunarmeðferða og vilja
sjá skjótan árangur. Í mörgum til-
fellum er árangurinn merkjanlegur
strax eftir fyrsta tímann.
„Helga Möller, söngkona og flug-
freyja, er í meðferðum hjá okkur.
Helga vinnur á mjög óreglulegum
tímum, bæði er hún að syngja
seint á kvöldin og svo er hún í flug-
inu. Þessi vinnutími getur tekið á
og þá sérstaklega Ameríkuflugið,
þá finnur hún fyrir bjúgi og fóta-
pirringi. Þá finnst henni sérstak-
lega gott að koma í Heilsu og útlit í
Vacu Sport þrýstingstækið og henni
líður líka alltaf vel eftir veru í súrefn-
ishjálminum,“ segir Sandra.
Fleiri meðferðaraðilar úti um
allt land
„Þess má geta að á Siglufirði er að
finna heilsustofuna Weyergans
Studio, þar sem boðið er upp á með-
ferðir með tækjunum sem við flytj-
um inn. Einnig notar Heilsu & Fegr-
unarstofa Huldu í Borgartúni tæki
frá okkur. Svo veit ég til þess að það á
að opna aðra stofu á Akureyri,“ segir
Sandra.
Heilsa og útlit er staðsett að
Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi. Af-
greiðslutími: Alla virka daga 09.00–
18.00. Hægt er að hafa samband
með því að hringja í síma: 562-6969
eða senda tölvupóst á sandra@
heilsaogutlit.is. Nánari upplýsingar
má nálgast á vefsíðu Heilsu og útlits
og á Facebooksíðunni. n
Eftir fimm skipti í súrefnishjálminum.
Súrefnishjálmur
100% náttúruleg meðferð.
IONO-JET
myNd SIgTryggur arI
Vacu Sport
myNd SIgTryggur arI