Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Page 32
Helgarblað 7.–10. apríl 201728 Skrýtið Sakamál
Á
rið 1948 fæddist sveinbarn
nokkuð í Toledo í Ohio í
Bandaríkjunum. Sveinninn
var skírður Bruce og eftirnafn
hans var Davis, líkt og föður
hans og móður.
Nú Bruce þessi ólst upp í dreif-
býli Fayette-sýslu í Georgíu og frekar
varð skólaganga hans endaslepp
á unglings árunum því hann sagði
skilið við miðskóla um miðjan sjö-
unda áratuginn. Flutti Bruce til
Manhattan í von um að hasla sér völl
sem söngvari en litlum sögum fer af
afrekum á því sviði.
Árið 1968 tókst honum að ljúka
miðskólanum í kvöldskóla, en sem
fyrr segir lét hvort tveggja frægð og
frami bíða eftir sér, en eftir stóð ung-
ur, bitur maður sem vart átti til hnífs
og skeiðar.
Hataði homma
Áður en lengra er haldið er vert að
nefna að þegar Bruce var þrettán ára
sætti hann kynferðislegu ofbeldi og
þaðan í frá lagði hann fæð á homma.
Því fór svo, þegar fram liðu stundir
og örvænting og örbirgð varð alls-
ráðandi, að Bruce greip til þess ráðs
að tæla samkynhneigða karlmenn
og hafa af þeim fé og verðmæti.
Manndráp og morð
Í febrúar 1972 var Bruce handtekinn
í Washington D.C. og ákærður fyrir
morð á kaupsýslumanninum James
Earl Hammer. Bruce var síðan sak-
felldur fyrir manndráp og fékk fimm
til fimmtán ára dóm fyrir vikið. En
skömmu síðar tókst yfirvöldum
í Illinois að færa sönnur á aðild
Bruce að morði á presti nokkrum,
Carlo Barlassina, sem hafði verið
kyrktur á hótelherbergi í Chicago í
júní 1971.
Bruce var framseldur til Chicago
í desember 1972 og við fyrri dóminn
bættust 25 til 45 ár.
Bruce afplánaði átta og hálft ár
af fyrri dómnum í Indiana en árið
1979 var hann fluttur í ríkisfangelsi
Illinois og þar var hann þangað til
október 1982.
Játningaflaumur
Síðdegis 24. október var Bruce falið
það verkefni að ganga frá nokkrum
verkfærum í skúr í fangelsinu. Tók
hann öxi traustataki, banaði fanga-
verðinum, Joe Cushman, með höggi
í höfuðið og flúði úr fangelsinu á bif-
reið hans.
Bifreiðin fannst yfirgefin næsta
dag skammt frá borginni Christopher
í Illinois, en Bruce lék hins vegar
lausum hala til 31. október. Hann
var gripinn glóðvolgur þegar hann
reyndi að taka bíl ófrjálsri hendi í
Smithers í Vestur-Virginíu.
Þegar búið var að koma Bruce í
varðhald á ný kjaftaði á honum hver
tuska og eins og hendi væri veifað
játaði hann á sig 32 morð, framin á
árunum 1969 til 1971.
Flest fórnarlambanna, að sögn
Bruce, voru auðugir kaupsýslumenn
sem Bruce hafði ginnt með fyrirheit-
um um kynlíf, en síðan myrt sér til
fjárhagslegs ábata og ánægju.
Lífstíðardómur
Á meðal fórnarlambanna voru átta
frá Washington D.C. og fleiri úr út-
hverfum borgarinnar, fimm frá
New York og einhver frá Baltimore,
Boston, Fort Lauderdale, Reno, Las
Vegas, New Orleans, Los Angeles og
San Juan í Púertó Ríkó.
Yfirvöld í Illinois gátu staðfest
að minnsta kosti fjögur morð vegna
þess að Bruce bjó að meiri vitneskju
um morðin en eðlilegt gat talist.
Lögreglan í New York var „ nokkuð
viss“ um að Bruce var sekur um
morð á söngkennara að nafni Eric
Tcherkezian sem hafði verið kyrktur
í maí 1970.
Um miðjan nóvember, 1982, var
Bruce Davis fluttur til Illinois og tíu
mánuðum síðar fékk hann lífstíðar-
dóm fyrir morðið á Joe Cushman. n
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Chicago Tribune Frétt um eitt ódæða Bruce Davis.
„Síðdegis
24. október
komst Bruce með
einum eða öðrum
hætti yfir öxi,
banaði fanga-
verðinum Joe
Cush man og flúði
úr fangelsinu á
bifreið Joe.
Morð á
Morð ofan
n Myrti að eigin sögn yfir þrjátíu manns n Lagði fæð á samkynhneigða karlmenn
Joe Cushman Fangavörður
sem Bruce Davis varð að bana.