Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Blaðsíða 26
26 fólk Vikublað 9.–11. maí 2017
Þ
egar rætt er um fræga fólkið
í Hollywood sjá margir fyr-
ir sér sældarlíf í sól og mikla
peninga fyrir tiltölulega litla
vinnu.
Það
kann vel að vera að það sé þægilegt
að vera frægur leikari í Hollywood en
staðreyndin er sú að margir þeirra
hafa lent í miklum mótvindi í lífinu.
Hér að neðan gefur að líta yfirlit yfir
nokkrar stjörnur sem hafa þurft að
ganga í gegnum ýmis erfið áföll í lífi
sínu. n
Ráðgátan
leystist aldrei
Það þekkja ef til vill ekki allir James Ellroy
en fleiri þekkja líklega verkin hans. Ellroy
er einn dáðasti glæpasagnahöfundur
Bandaríkjanna og skrifaði hann til dæmis
bækurnar L.A Confidential og Black Dahlia
sem rötuðu báðar á hvíta tjaldið. Þegar
Ellroy var tíu ára, árið 1958, var móðir hans
myrt á hrottalegan hátt. Í ævisögu sinni, My
Darkest Places, rifjaði Ellroy þennan óhugn-
anlega atburð upp. Nokkrum dögum fyrir
morðið hafði hann lent í miklu rifrildi við
móður sína og fór hann í kjölfarið til föður
síns til að dvelja hjá honum yfir helgi. Þegar
hann sneri aftur heim til móður sinnar, í El
Monte, úthverfi Los Angeles, komst hann
að því að hún hafði verið myrt eftir að hafa
verið beitt kynferðisofbeldi. Ráðgátan um
hver varð henni að bana leystist aldrei.
Ellroy fór út af sporinu á unglingsárunum,
neytti eiturlyfja og stundaði smáglæpi áður
en hann tók sig saman í andlitinu og hóf að
skrifa glæpasögur með frábærum árangri.
Kenndi sjálfum sér
um andlátið
Walt Disney er nafn sem flestir þekkja. Þessi frumkvöðull
á sviði teiknimynda ólst upp í fátækt en eftir velgengni
myndar hans um Mjallhvíti og dvergana sjö árið 1938 ákvað
Walt að kaupa hús fyrir foreldra sína, Elias og Floru Disney.
Skömmu eftir að þau fluttu inn, í nóvember 1938, kom á
daginn að gasofn í húsinu lak. Walt kallaði á viðgerðarmann
sem virðist ekki hafa komist fyrir lekann. Þann 26. nóvem-
ber dundi ógæfan yfir þegar mikill gasleki gerði vart við
sig úr þessum sama ofni. Faðir hans, Elias, lifði af en móðir
hans, Flora, lést í slysinu. Dauði móður hans fékk mikið á
Walt og kenndi hann sjálfum sér um slysið að nokkru leyti.
Pabbi var leigu-
morðingi
Woody Harrelson hefur átt blómlegan feril sem leikari í
Hollywood. Uppvaxtarár Harrelson voru þó enginn dans
á rósum því faðir hans, Charles V. Harrelson, yfirgaf fjöl-
skylduna þegar Woody var sjö ára og sleit öllum samskipt-
um. Mörgum árum síðar heyrði Woody útvarpsfrétt þar sem
sagt frá því að maður að nafni Charles V. Harrelson væri á
leið fyrir dóm vegna morðs. Woody taldi að ekki væru margir
með þessu nafni í Texas og komst hann í kjölfarið að því að
um var að ræða föður hans. Árið 1970 var Charles sýknaður
af ákæru um morð á framkvæmdastjóranum Alan Berg en
árið 1973 var hann sakfelldur fyrir morð á manni að nafni
Sam Degelia. Charles fékk tvö þúsund dali fyrir morðið og
var hann dæmdur í 15 ára fangelsi. Fimm árum síðar var
honum sleppt úr haldi en hann var ekki frjáls lengi. 29. maí
1979, fimm mánuðum eftir að honum var veitt reynslulausn,
myrti hann dómara að nafni John H. Wood með langdræg-
um riffli. Í ljós kom að Charles
fékk 250 þúsund dali frá
fíkniefnabaróninum
Jimmi Chagra fyrir
morðið. Charles
var dæmdur í
lífstíðarfangelsi
fyrir morðið. Árið
1988 endur-
nýjaði Woody
kynnin við
föður sinn og
hóf að heim-
sækja hann í
steininn. Það
gerði hann
allt þar til
Charles lést
árið 2007.
Gátan leystist
mörgum árum síðar
Leikarinn Dylan McDermott varð fyrir áfalli árið 1967 þegar hann var
aðeins fimm ára gamall. Þá varð móðir hans fyrir skoti á heimili sínu
en í mörg ár var talið að hún hefði svipt sig lífi. Þetta örlagaríka kvöld
höfðu móðir hans, Diane, og kærasti hennar, John Sponza, rifist. John
þessi þótti ekki merkilegur pappír því hann var bæði ofbeldisfullur og
á kafi í eiturlyfjum. Hann skipaði Dylan að fara út úr húsinu með litla
systur sína og skömmu síðar heyrðist skothvellur. Diane hafði fengið
skot í höfuðið og var hún úrskurðuð látin í kjölfarið. Það var ekki fyrr
en árið 2011 að ráðgátan um andlátið leystist og beindust nú öll spjót
að fyrrnefndum John. Diane hafði verið skotin í hnakkann, vinstra
megin, sem vakti athygli í ljósi þess að hún var rétthent. John þurfti
þó aldrei að svara til saka enda var hann sjálfur myrtur árið 1972.
Móðir Charlize
skaut pabba
hennar
Sumarið 1991, þegar suður-afríska leikkonan
Charlize Theron var 15 ára, var faðir hennar
skotinn til bana. Faðir hennar, Charles, var
drykkfelldur ofbeldismaður og hafði hann farið
út og setið að sumbli þetta kvöld með móðurbróð-
ur Charlize. Síðar um kvöldið komu þeir heim, drukknir
mjög, og hóf Charles að skjóta úr byssu. Til orðaskipta
kom milli móður Charlize, Gerdu, og föður hennar sem
endaði með því að hann hótaði að drepa þær
báðar, eiginkonu sína og dóttur. Hann
skaut úr byssu sinni í læsta svefnher-
bergishurð og þá greip Gerda til þess
ráðs að ná í byssu og skaut hún
bæði eiginmann sinn og bróður.
Charles lést en bróðir hennar
slasaðist talsvert. Gerda var ekki
ákærð vegna málsins þar sem
litið var svo á að um sjálfsvörn
væri að ræða.
Hvert áfallið
rak annað
Keanu Reeves hefur mátt þola ýmislegt í gegnum tíðina. Faðir hans
yfirgaf fjölskylduna þegar hann var þriggja ára og þar sem Keanu var
mjög lesblindur gekk honum illa í skóla. Hann sneri sér því að leiklist
og kom hans fyrsta tækifæri árið 1991 þegar hann lék í myndinni My
Own Private Idaho ásamt River Phoenix. Þeir urðu fljótt bestu vinir en
tveimur árum síðar, árið 1993, lést Phoenix á sviplegan hátt. Árið 1998
kynntist Keanu ástinni í lífi sínu, Jennifer Syme, og ári síðar, 1999, varð
Jennifer ólétt. Þegar Jennifer var gengin átta mánuði fór hún af stað
en dóttir þeirra, sem fékk nafnið Ava, fæddist andvana. Vorið 2001
kom svo enn eitt áfallið. Jennifer fór í gleðskap á heimili tónlistar-
mannsins Marilyn Manson en á leiðinni heim lenti hún í alvarlegu
umferðarslysi og lést.
Missti
eiginkonu
og tvö börn
Eins og fyrri hluti sjöunda áratugar-
ins var frábær fyrir tónlistarmanninn
Roy Orbison var seinni hlutinn eins
erfiður og hugsast getur. Fyrir þá
sem ekki vita er Orbison maðurinn á
bak við lög eins og Only the Lonely,
Oh, Pretty Woman og Anything
You Want. Árið 1966 var Roy í
mótorhjólaferð á Englandi ásamt
eiginkonu sinni, Claudette, þegar
ógæfan dundi yfir. Claudette lenti í
slysi á hjólinu og lést. Tveimur árum
síðar kviknaði eldur í húsi tónlistar-
mannsins og létust tveir af þremur
sonum hans, Roy Duane, 11 ára, og
Tony, 6 ára. Áfallið var eðlilega mikið
og dró Roy sig að stóru leyti í hlé
eftir þetta. Hann sneri þó aftur á
tónlistarsviðið nokkrum árum síðar
og varð meðlimur í ofurgrúppunni
The Traveling Wilburys ásamt Tom
Petty, Bob Dylan, George Harrison
og Jeff Lynn. Orbison lést úr hjarta-
áfalli í desember 1988.
Harmleikir
stjarnanna
n Pabbi Woody Harrelson var leigumorðingi
n Hvert áfallið rak annað hjá Roy Orbison