Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Blaðsíða 19
Vikublað 9.–11. maí 2017 KYNNING Úr og skartgripir 19
Glæsileg
íslensk
hönnun
frá Gilbert
úrsmið
JS Watch co. ReYKJavIK
JS Watch co. Reykjavik úrin eru íslensk frá grunni. Þau eru hönnuð á teikniborði JS
hér heima á Íslandi. allir íhlutir úrsins
eru síðan sérframleiddir eftir þeirra
hönnun í mörgum, sérhæfðum
verksmiðjum í Þýskalandi og Sviss
og settir saman hér á landi undir
ströngu gæðaeftirliti Gilberts Ó.
Guðjónssonar úrsmiðameistara sem
nýtir áralanga þekkingu og reynslu
sína af úrsmíði til að tryggja að hvert
og eitt úr standist ströngustu kröfur.
Frá upphafi framleiðslunnar
hefur verið leitast við að sameina,
glæsilega hönnun, gæði, fyrsta
flokks úrverk og falleg armbönd.
vönduð úr eru munaðarvara og
fylgihlutir sem bæði karlmenn og
konur njóta þess að velja, bera og
eiga. en úr er ekki bara skartgripur.
Það er nytjahlutur sem hjálpar okk-
ur að gegna skyldum okkar, halda
loforð og skapa góðar minningar.
Sérstaða úranna á íslensk-
um markaði ásamt persónulegri
þjónustu og árangursríku mark-
aðs- og kynningarstarfi hefur leitt
til þess að úrin hafa orðið eftirsótt
meðal heimsfrægra einstaklinga
sem koma til landsins. Meðal
þekktra einstaklinga má til gamans
nefna Ben Stiller, tom cruise,
Quentin tarantino, Jude Law,
viggo Mortensen, Mads Mikkelsen,
tobey Maguire, Dennis Quaid, elvis
costello, Ian anderson, Yoko ono,
Sean Lennon, Dalai Lama, Katie
couric, vinnie Jones og con-
stantine Grikklandskonung.
Fágæti úranna ásamt því að
vera framleidd í
hæsta gæða-
flokki er
það
sem gerir þau eftirsóknarverð,
en á skífu allra úranna stendur
Reykjavík. Það ásamt, vönduðu
verki, framleiðslu og sígildu útliti
gerir úrin fágæt og einstök.
Gilbert úrsmiður hefur lagt
sitt af mörkum við að hvetja til
bættrar verslunar og þjónustu
við ferðamenn efst á
Laugaveginum og
hefur ásamt fleirum tekið ríkan
þátt þátt í að byggja upp verslun í
vitahverfinu. Persónuleg þjónusta
og góð vöruþekking er aðalsmerki
verslunarinnar og þjónustustig
verslunarinnar er til fyrirmyndar.
viðskiptavinir eiga kost á
að hitta framleiðendur,
fá að sjá úrsmiði
að störfum og
koma með ábendingar varðandi
samsetningu og útlit þeirra úra
sem þeir hyggjast kaupa. Ferða-
menn geta óskað eftir einkaheim-
sókn komist þeir ekki í verslunina á
hefðbundnum opnunartíma og eru
þeir þá jafnan sóttir á hótel sitt og
ekið til baka að lokinni heimsókn.
heildstæð áferð og framúrstefnu-
leg ásýnd markaðs- og kynn-
ingarmála JS Watch co. Reykjavík
hefur vakið athygli bæði innan-
lands og utan.
Úrvalið hefur aldrei verið meira
en nánari upplýsingar um úrin og
hönnunina má finna á vefsíðunni
www.gilbert.is. n
Gilbert úrsmiður,
Laugavegi 62,
sími: 551-4100.